Fréttablaðið - 13.11.2003, Blaðsíða 30
ferðir o.fl.
Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
Í uppáhaldi:
Quaqartoq
skemmtilegur bær
Bærinn Quaqartoq áGrænlandi er í upp-
áhaldi hjá Frey Eyjólfs-
syni, útvarpsmanni og
tónlistarmanni. „Þetta
er mjög hlýlegur og
vinalegur bær. Náttúr-
an er afskaplega falleg
og það er einhver him-
nesk ró yfir staðnum,“
segir Freyr sem fór
þangað í skákferðalag
með Hróknum í sumar.
Freyr var í viku í
bænum og náði að fara í
langa og skemmtilega
göngutúra um bæinn og
ganga á fjöll í nágrenni
hans. „Mér finnst oft fyndið hvað
við Íslendingar leitum langt yfir
skammt. Grænland er það land
sem er næst okkur. Þar er að finna
ótrúlega áhugaverða þjóð og fal-
legt og skemmtilegt land,“ segir
Freyr sem hvetur alla til að skella
sér til Grænlands.
„Svo má bæta við að þarna býr
vel upplýst, menntað og skemmti-
legt fólk. Fólk heldur alltaf að það
séu bara skrælingjar á Grænlandi
en þarna blómstrar mikil menn-
ing.“
Íbúar Quaqartoq, sem er á Suð-
ur-Grænlandi, eru 2000 talsins. ■
■ Út í heim
■ Út í heim
NETTILBOÐ TIL BALTIMORE
Icelandair býður nettilboð til
Baltimore, 15. til 17./18. nóvem-
ber á 31.470 kr.
NETTILBOÐ TIL ÓSLÓ Icelandair
býður nettilboð til Ósló 14. til
16./17. nóvember á 20.900 kr. Sýn-
ing Matthew Barney í Astrup
Fearnley safninu stendur til 16.
nóvember.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Farþegum
fjölgar
milli ára
Farþegum um Flugstöð Leifs Ei-ríkssonar fjölgaði um tæplega
18% í október miðað við sama
tíma í fyrra, úr rúmlega 100 þús-
und farþegum 2002 í tæplega 118
þúsund nú. Mest vegur fjölgun
farþega til og frá Íslandi sem er
rúmlega 21% milli ára. Á sama
tíma hefur farþegum sem milli-
lenda á leið yfir Norður-Atlants-
hafið fjölgað um 3,5%. Þetta er í
fyrsta skipti á þessu ári sem fjölg-
un verður á skiptifarþegum borið
saman við tölur frá 2002.
Alls hefur farþegum um Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar fjölgað um
tæplega 11% það sem af er árinu
miðað við sama tíma árið 2002,
eða úr tæplega 1.087 þúsund far-
þegum í rúmlega 1.202 þúsund
farþega. ■
FREYR EYJÓLFSSON
Kann að meta þá himnesku ró sem er yfir
Quaqartoq.
QUAQARTOQ
Þar blómstrar menningin,
segir Freyr Eyjólfsson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
KANARÍ Í JANÚAR Úrval Út-
sýn er með gistitilboð 17.
janúar í eina, tvær eða þrjár
vikur í Carolina. Verðdæmi í
eina viku 73.330 kr. á mann í
tvíbýli í sjö nætur í íbúð í
Carolina. Innifalið er flug,
flugvallarskattar, gisting,
akstur og íslensk fararstjórn.
Air Greenland hefur ákveðið að
hætta áætlunarflugi á flugleiðinni
milli Akureyrar og Kaupmanna-
hafnar. Síðasta ferðin verður 1.
desember næstkomandi. Í frétta-
tilkynningu kemur fram að vænt-
ingar sem Air Greenland gerði til
þessa flugs hafi ekki gengið eftir,
hvorki í fjölda farþega né fragt-
flutningum. Einnig sé sýnt að á
næsta ári muni samkeppni í flugi
milli Íslands og Danmerkur
aukast.
Air Greenland hóf áætlunar-
flugið milli Akureyrar og Kaup-
mannahafnar 28. apríl í vor og
hefur verið flogið tvisvar í viku.
Síðan hefur verið ákveðið að fjöl-
ga ferðum milli Keflavíkur og
Kaupmannahafnar um helming á
næsta ári, auk þess sem verð á
þeirri flugleið hefur lækkað.
Í fréttatilkynningu frá Mark-
aðsskrifstofu ferðamála á Norð-
urlandi segir að ákvörðunin um að
fella niður áætlunarflug milli Ak-
ureyrar og Kaupmannahafnar séu
vonbrigði fyrir allan almenning á
Norðurlandi. Tilraunin hafi þó
sannað mikilvægi þess að haldið
verði uppi reglubundnu flugi frá
Akureyri til áfangastaðar erlend-
is. Því hefur verið ákveðið að leita
allra leiða til að framhald verði á
beinu flugi milli Akureyrar og
áfangastaðar í Evrópu.
Mat ferðaþjónustufyrirtækja á
Norðurlandi er að beina flugið til
Kaupmannahafnar skipti miklu
máli fyrir ferðaþjónustu og bú-
setu á svæðinu til framtíðar.
Reynslan af beina fluginu síðustu
mánuði hafi styrkt þá skoðun. ■
Air Greenland:
Hættir flugi milli
Akureyrar og Köben
AKUREYRI
Áætlunarferðum þaðan til Kaupmanna-
hafnar verður hætt um næstu mánaða-
mót.
15. NÓVEMBER
13 RÉTTA VILLIBRÁÐARHÁTÍÐARMATSEÐILL ásamt
vínum, lifandi tónlist, einungis 8.000 pr. mann.
50% AFSLÁTTUR af gistingu í lúxusherbergjum m/baði
laugardaginn 15. nóvember.
Pantanir í síma 487 8050
VINNUSTAÐIR - VINAHÓPAR! Við gerum veisluna fyrir
ykkur. Athugið málið, við komum á óvart.Hótel Hvolsvöllur, Hlíðarvegur 7, 860 Hvolsvöllur.