Fréttablaðið - 13.11.2003, Blaðsíða 38
34 13. nóvember 2003 FIMMTUDAGUR
ÁKALL
Stuðningsmaður írska rúgbílandsliðsins
biður um stuðning æðri máttarvalda í leik
gegn Frökkum á heimsmeistaramótinu
sem nú stendur yfir í Ástralíu.
Rúgbí
Bikarkeppni Evrópu:
Keflavík leikur gegn Hyères-Toulon
KÖRFUBOLTI Íslands- og bikarmeist-
arar Keflavíkur leika í kvöld ann-
an leik sinn í Bikarkeppni Evrópu
í körfubolta. Keflavíkingar leika
við franska félagið Hyères-Toulon
VAR og fer leikurinn fram í
Espace 3000 höllinni í Toulon.
Keflavíkingar unnu portúgalska
félagið Ovarense Aerosoles 113-
99 í fyrstu umferð en Hyères-Tou-
lon tapaði fyrir CAB Madeira 111-
92 í Portúgal.
Hyères-Toulon var stofnað árið
1990 með sameiningu Omni Sport
Hyerois og CS Toulon. Félagið
hefur lengst af leikið í PRO B
deildinni, en fyrir þremur árum
komst félagið upp í PRO A og hef-
ur fest sig í sessi þar með góðri
spilamennsku. Tímabilið 2001-02
varð Hyères-Toulon í 12. sæti og í
10. sæti í fyrra. Sem stendur er
félagið í 15. sæti í 18 liða deild,
með tvo sigra í sjö leikjum. Félag-
ið hefur aðeins náð að sigra Paris
BR og Besançon BCD sem eru
bæði neðar í deildinni.
Franska PRO A deildin er ein
sterkasta deild Evrópu og var
Hyères-Toulon álitið sigurstrang-
legasta félagið í riðli Keflvíking-
anna. Með félaginu leika tveir
Bandaríkjamenn, Jason Rowe og
Wade Gugino, Nedeljko Asceric,
38 ára framherji frá Serbíu, og
Frakkarnir Laurent Legname og
Franck Bouteille. Bakvörðurinn
Laurent Legname var stigahæst-
ur Hyères-Toulon gegn Madeira
með 27 stig og hitti hann úr átta af
átján þriggja stiga tilraunum sín-
um. ■
Ragna og Sara stefna
á Ólympíuleikana
Ragna Ingólfsdóttir og Sara Jónsdóttir stefna á þátttökurétt í Ólympíuleikunum. Þær keppa á
Iceland Express International 2003, alþjóðlegu badmintonmóti sem hefst í TBR-húsinu í dag.
BADMINTON „Það þarf ákveðin pen-
ingaverðlaun til þess að þetta
verði alþjóðlegt stigamót og það
þarf að standast þær kröfur sem
Evrópska badmintonsambandið
setur,“ sagði Broddi Kristjánsson
landsliðsþjálfari um alþjóðlega
badmintonmótið sem hefst í TBR-
húsinu í dag. Vægi mótsins fer
hins vegar ekki eftir styrkleika
keppenda. „Þegar mótið er af
ákveðnum standard þá koma þeir
átómatískt,“ sagði Broddi.
Athygli Íslendinga beinist að
Söru Jónsdóttur, sem er í 57. sæti
styrkleikalistans í einliðaleik, og
Rögnu Ingólfsdóttur sem er í 60.
sæti. Ragna og Sara eru í 29. sæti
á styrkleikalistanum í tvíliðaleik.
„Þær eru að reyna að komast inn á
Ólympíuleikana og það eru meiri
líkur á að þær komist inn í tvíliða-
leik sem gefur um leið keppnis-
rétt í einliðaleik. Ef fresturinn
væri að renna út núna væru þær
ekki inni en þær eru mjög nálægt
því og framundan mikil barátta
fram á vorið.“
Broddi segir að margir er-
lendu keppendurnir á mótinu
séu í svipaðri stöðu Ragna og
Sara. „Þess vegna koma þeir
hingað. Það eru allir að reyna að
næla sér í þessi stig.“
Broddi segir að ekki séu fleiri
Íslendingar sem standa í sömu
sporum og Ragna og Sara. „Það
er bara peningamál því þetta er
rosalega dýrt dæmi,“ sagði
Broddi en vonar að yngri leik-
menn séu að vinna að langtíma-
markmiðum. „Það er ákveðinn
hópur yngri leikmanna sem von-
ast til að fá tækifæri árið 2008.
Þetta er þá einn liðurinn í þeirri
tilraun.“
„Það verða bæði íslenskir og
erlendir dómarar á mótinu,“ sagði
Broddi. „Það hefur verið svolítið
vandamál hjá okkur að okkur hef-
ur vantað fleiri dómara til að
dæma í þessu móti. En þetta tekst
alltaf og það koma nokkrir erlend-
ir dómarar líka.“
Mótið hefst klukkan fjögur síð-
degis með undankeppni í einliða-
leik karla en aðalkeppni einliða-
leiksins hefst klukkan níu í fyrra-
málið. Tvíliðaleikur kvenna hefst
klukkan tvö á morgun. ■
Michael Owen:
Hugurinn hvarfl-
ar frá Anfield
FÓTBOLTI „Óskastaðan er sú að
Liverpool gangi vel á þessari leik-
tíð og keppi um deildameistaratit-
ilinn,“ sagði Michael Owen. „En
ég þarf að leika í meistaradeild-
inni og þangað verðum við að ná.“
Gerard Houllier, fram-
kvæmdastjóri Liverpool, hefur að
undanförnu þráfaldlega neitað
því að Owen langi að fara frá fé-
laginu. Owen sagði hins vegar í
gær að það væri útilokað að segja
nokkuð um framtíð sína hjá Liver-
pool. „Ef félagið sigrar í deildinni
ár eftir ár þarf ég ekki að taka
ákvörðun um hvort ég leik erlend-
is.“
„Ég hef aldrei efast um hæfi-
leika mína,“ sagði Owen. „Ég hef
áður staðið mig vel í veigamestu
keppnunum. Mig langar ekki að
vera venjulegur atvinnumaður.
Ég stefni á toppinn og til þess að
komast þangað verð ég að leika
gegn bestu félagsliðum heims.“
Real Madrid og Chelsea eru
sögð hafa áhuga á Owen og segir
fréttavefur BBC að Liverpool
gæti þurft að velja milli þess að
selja sinn besta leikmann eða
missa hann frá sér bótalaust þeg-
ar samningurinn hans rennur út
árið 2005. ■
19.15 Haukar leika við Breiðablik
að Ásvöllum í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
19.15 UMFN og ÍR keppa í Njarð-
vík í INTERSPORT-deildinni í körfubolta.
19.15 Tindastóll fær Þór Þorl. í
heimsókn á Sauðárkrók í INTERSPORT-
deildinni í körfubolta.
19.15 Snæfell mætir Hamri í
Stykkishólmi í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
16.45 Handboltakvöld á RÚV.
18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
hvað?hvar?hvenær?
10 11 12 13 14 15 16
NÓVEMBER
Fimmtudagur
KEFLAVÍK
Guðjón Skúlason, annar þjálfara Keflavíkur, fagnar sigri félagsins í bikarkeppninni í fyrra.
REYNA AÐ KOMAST Á ÓLYMPÍULEIKANA
Ragna og Sara eru í 29. sæti á styrkleikalistanum í tvíliðaleik.
OWEN
„Ég stefni á toppinn og til þess að komast
þangað verð ég að leika gegn bestu fé-
lagsliðum heims.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M