Fréttablaðið - 13.11.2003, Blaðsíða 6
6 13. nóvember 2003 FIMMTUDAGUR
■ Viðskipti
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 76.18 -0.59%
Sterlingspund 127.23 -0.41%
Dönsk króna 11.88 0.30%
Evra 88.33 0.30%
Gengisvístala krónu 124,99 -0,02%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 223
Velta 3.155 milljónir
ICEX-15 1.965 -0,16%
Mestu viðskiptin
Íslandsbanki hf. 171.546.813
Pharmaco hf. 122.138.739
Opin Kerfi Group hf. 36.684.471
Mesta hækkun
Opin Kerfi Group hf. 1,79%
Landsbanki Íslands hf. 0,89%
Flugleiðir hf. 0,86%
Mesta lækkun
Líftæknisjóðurinn hf. -18,37%
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. -2,63%
Nýherji hf -2,17%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ* 9.797,7 0,6%
Nasdaq* 1.954,3 1,2%
FTSE 4.371,2 0,6%
DAX 3.748,3 0,5%
NK50 1.304,8 0,3%
S&P* 1.052,9 0,6%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Háhyring rak á fjöru við Íslands-strendur í gær. Í hvaða firði?
2Hversu mikla aukafjárveitingu fábændur frá ríkinu?
3Hvaða tveir leikmenn sömdu í gær viðknattspyrnufélagið Val til þriggja ára?
Svörin eru á bls. 42
Landspítali - Háskólasjúkrahús:
Stendur ekki undir nafni
HEILBRIGÐISMÁL „Talsvert vantar
upp á að Landspítali-Háskóla-
sjúkrahús standist samanburð við
erlend háskólasjúkrahús,“ segir
Runólfur Pálsson, læknir á Land-
spítala-Háskólasjúkrahúsi og
lektor við læknadeild Háskóla Ís-
lands. Hann gagnrýnir að augljós
tækifæri til að gera spítalann að
miðstöð kennslu og rannsókna í
heilbrigðisvísindum hafa ekki
verið nýtt.
„Þar á ég við að einn grunn-
þáttur háskólasjúkrahúsa í hinum
vestræna heimi eru rannsóknir og
vísindastörf ýmis konar. Hér á
landi eru grunnrannsóknir veik-
burða og mikill skortur á allri að-
stöðu til þess konar starfa. Ekkert
fé er sérstaklega eyrnamerkt til
kennslu og rannsókna innan spít-
alans þrátt fyrir að við eigum
mikinn fjölda hæfra og vel mennt-
aðra einstaklinga sem gjarna vilja
takast á við slík verkefni. Árang-
ur Íslenskrar erfðagreiningar og
Hjartaverndar sýnir hversu langt
er hægt að ná á sviði vísindarann-
sókna ef aðstaða og fjármagn er
fyrir hendi.“
Runólfur segir að til að LSH
standi undir nafni sem háskóla-
sjúkrahús þurfi markvisst skipu-
lag, fjármögnun í samræmi við
hlutverk og ráðningu hæfustu
fagaðila sem völ er á. ■
Skeytin flugu á víxl
Þingmenn spöruðu ekki stóru orðin þegar þeir ræddu aðgerðir og stefnu í landbúnaðarmálum.
Samfylkingarmenn sögðu landbúnaðarráðherra helsta vanda bænda. Hann svaraði því til að
þeir hefðu ekkert vit á landbúnaði.
STJÓRNMÁL Einhver líflegasta um-
ræða ársins á þinginu átti sér stað
í gær þegar þingmenn tókust á um
hversu góð viðbrögð stjórnvalda
við vanda sauðfjárbænda væru.
Þrír þingmenn Samfylkingar
gagnrýndu Guðna Ágústsson
landbúnaðarráðherra harkalega
fyrir skort á framtíðarsýn í land-
búnaðarmálum og formaður
flokksins, Össur Skarphéðinsson,
gekk svo langt að segja Guðna
helsta vanda bænda. Guðni sagði
hins vegar ljóst að Samfylkingar-
menn hefðu ekk-
ert vit á land-
búnaðarmálum.
„Það eru bara
tvær búgreinar í
orðaforða ríkis-
stjórnarinnar,“
sagði Jóhann Ár-
sælsson, þing-
maður Samfylk-
ingar, þegar
hann kvartaði
undan því að
lausnir stjórn-
valda á vanda
sauðfjárbænda tækju ekkert mið
af landbúnaði í heild sinni. Aðrir
en sauðfjár- og kúabændur
gleymdust.
„Maður verður alltaf meira og
meira hissa eftir því sem maður
hlustar meira á Samfylkinguna,“
sagði landbúnaðarráðherra. Hann
sagði þingmenn Samfylkingar ít-
rekað hafa rekið eftir aðgerðum
vegna sauðfjárbænda en þetta
breyttist þegar aðgerðirnar væru
kynntar. „Kemur ekki svarti her-
inn úr Samfylkingunni upp í dag
og er á allt annarri skoðun?“
Drífa Hjartardóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokks sem sæti átti í
nefndinni sem mótaði tillögur fyr-
ir ríkisstjórnina, furðaði sig á
andmælum Jóhanns við þeirri leið
sem væri farin. Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstri-
grænna, sagði aðgerðirnar „skref
í rétta átt“.
Össur Skarphéðinsson sagði
sauðfjárbændur ekki ofsæla af
þeim 140 milljónum sem stjórn-
völd úthlutuðu þeim. „Sauðfjár-
bændur eru heldur ekki ofsælir af
þeim landbúnaðarráðherra sem
hefur engar lausnir,“ sagði Össur
og kvað sauðfjárbændur aldrei
hafa búið við lakari kjör en í ráð-
herratíð Guðna. „Er ekki eina
lausnin á vanda sauðfjárbænda sú
að skipta um landbúnaðarráð-
herra?“
„Þessi ríkisstjórn, líkt og aðrar
af svipuðu tagi í gegnum tíðina,
kann ekkert í landbúnaðarmálum
annað en þessa gömlu stefnu,“
sagði Jóhann Ársælsson og vildi
að stjórnin breytti hinni fornu
landbúnaðarstefnu.
„Ég sá það langar leiðir úr
ræðustólnum að Össur Skarphéð-
insson er með höfuðverk í dag.
Málflutningur hans er fyrir neðan
allar hellur,“ svaraði Guðni gagn-
rýninni. „Þess vegna þakka ég
þessa vitibornu ræðu Steingríms
Sigfússonar en harma hinar.“
brynjolfur@frettabladid.is
TAP HJÁ OK Tap á rekstri Opinna
kerfa Group fyrstu níu mánuði
ársins var 76 milljónir króna en á
sama tímabili í fyrra var hagnað-
ur upp á 158 milljónir. Á þriðja
ársfjórðungi nam tapið 14 millj-
ónum en á sama ársfjórðungi í
fyrra var 13 milljóna króna hagn-
aður.
MINNI HAGNAÐUR Hagnaður
Hraðfrystihússins Gunnvarar
nam 250 milljónum króna fyrstu
níu mánuði ársins. Á sama tíma-
bili í fyrra nam hagnaðurinn 560
milljónum. Rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir nam 369 milljón-
um króna eða 18% af rekstrar-
tekjum samanborið við 724 millj-
ónir króna og 28% árið áður.
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
1
0
3
RUNÓLFUR PÁLSSON
Segir mikið skorta á að Landspítali-
Háskólasjúkrahús standi undir nafni sem
háskólasjúkrahús.
Skipt um í brúnni:
Jón Helgi
tekur við
VERSLUN Breytingar hafa orðið á
stjórn Kaupáss, sem rekur Nóatúns-
búðirnar og fleiri verslanir, eftir að
Jón Helgi Guðmundsson, eigandi
Byko, keypti fyrirtækið. Á hluthafa-
fundi var ákveðið að Ingimar Jóns-
son, forstjóri félagsins, léti af störf-
um og tekur Jón Helgi við sem
starfandi stjórnarformaður.
Lengi var orðrómur um að Jón
Helgi myndi kaupa Kaupás. Það
kom því nokkuð á óvart þegar til-
kynnt var að Ingimar og hópur fjár-
festa og starfsmanna hefði keypt
fyrirtækið. Landsbankinn nýtti sér
forkaupsrétt að bréfum í Kaupási og
seldi síðan Jóni Helga. ■
„Sauðfjár-
bændur eru
heldur ekki
ofsælir af
þeim land-
búnaðarráð-
herra sem
hefur engar
lausnir.
GUÐNI
Samfylkingarmenn hafa ekki vit á landbún-
aðarmálum.
ÖSSUR
Afkoma sauðfjárbænda aldrei verri en í tíð
Guðna.
STEINGRÍMUR
Taldi ríkisstjórnina taka skref í rétta átt,
Guðna til ánægju.