Fréttablaðið - 13.11.2003, Síða 12

Fréttablaðið - 13.11.2003, Síða 12
12 13. nóvember 2003 FIMMTUDAGUR ■ Evrópa LÍKAN AF GEIMFLAUG Yfir 200.000 gestir heimsóttu vísindasafnið í Shanghai til að virða fyrir sér líkan af Shenzhou 5 geimflauginni sem flutti fyrsta geimfara Kínverja út fyrir gufuhvolf jarðar. Jessica Lynch: Ég er engin hetja BANDARÍKIN Bandaríski hermaður- inn Jessica Lynch, sem tekin var til fanga í Íraksstríðinu segir að bandarísku sérsveitarmennirnir sem björguðu henni séu hinar sönnu hetjur en ekki hún sjálf. Þetta kom fram í sjónvarpsvið- tali við Lynch á bandarísku ABC- sjónvarpsstöðinni, því fyrsta sem hún kemur fram í síðan hún var flutt heim frá Írak, en í viðtalinu gagnrýndi hún bandaríska varn- armálaráðuneytið fyrir að nota björgun sína til áróðurs. „Þeir gerðu mig að táknmynd fyrir þessu öllu, sem var rangt,“ sagði Lynch, sem í byrjun Íraks- stríðsins var handtekin ásamt sex öðrum bandarískum hermönnum eftir fyrirsát nálægt borginni Nasiriya. Ellefu bandarískir hermenn féllu í árásinni og þar á meðal Lori Piestewa, 23 ára gömul vin- kona Lynch. Lynch, sem hlaut beinbrot og önnur meiðsl í átökunum, sagðist aðeins hafa verið einn af mörgum hermönnum á röngum stað á röngum tíma og aðrir eins og Piestewa hefðu sýnt mun meira hugrekki. „Ég einfaldlega lifði þetta af,“ sagði Lynch. ■ Þakklætisvottur frá Bush: Áritaður hafnabolti BANGKOK, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti sendi varnar- málaráðherra Taílands áritaðan hafnarbolta úr kristal í þakk- lætisskyni fyrir móttökurnar sem hann fékk á leiðtogafund í Bangkok í október. Með boltan- um sendi forsetinn bréf þar sem hann þakkaði taílenskum hermönnum fyrir að taka þátt í friðargæslustarfi í Austur- Tímor og Afganistan. Thammarak Isarangkura, sem tók á móti Bush þegar hann heimsótti höfuðstöðvar taí- lenska hersins, hafði áður sent Bush forláta rýting til minning- ar um heimsóknina. Bush var framkvæmdastjóri hafnaboltaliðsins Texas Rangers áður en hann varð rík- isstjóri í Texas. ■ BRESK FARÞEGAÞOTA NAUÐLENTI Farþegaþota British Airways af gerðinni Boeing 747 nauðlenti í Las Vegas í Bandaríkjunum eftir að reyks varð vart í stjórnklef- anum. Flugvélin, sem var með fjölda farþega innanborðs var á leið frá Los Angeles til Lundúna. Engin slys urðu á fólki og ekki er talið að eldur hafi kviknað í vélinni. Yfirvöld í Bandaríkunum munu rannsaka hvað olli því að reykur kom upp í stjórnklefa flugvélarinnar. ÞRJÚ BÖRN FÓRUST Í ELDSVOÐA Þrjár systur, á aldrinum sautján mánaða til sex ára, fórust þegar heimili þeirra brann til grunna í bænum Goole í Englandi. Móðir stúlknanna sat í örvilnun í garðin- um þegar slökkviliðið bæjarins kom á vettvang. Fjórir slökkviliðs- menn héldu strax inn í húsið til að reyna að bjarga börnunum en það reyndist of seint. BANDARÍKJAFORSETI George W. Bush var ánægður með þær móttökur sem hann fékk þegar hann heimsótti höfuðstöðvar taílenska hersins í Bangkok. HÆLI „Loksins hafa öll gögn borist sem okkur vantaði. Þannig að málið hefur verið tekið til úr- skurðar og má bú- ast við að hann liggi fyrir í næstu viku,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofn- unar, um mál rúm- lega tvítugs pars sem beðið hefur um hæli hér á landi; hún er frá Úsbekistan en hann frá Afganistan. Georg segir þau hafa komið hingað frá Afganistan í gegnum París í mars. Hann segir málið hafa dregist þar sem langan tíma hafi tekið að afla upplýsinga frá útlöndum um hugsanlega stöðu þeirra og fjölskyldu í Danmörku. Konan er ófrísk og á ekki nema um mánuð eftir af meðgöngunni. Georg segir málið hafa verið meðhöndlað meira hér á landi en oft áður. „Hér er ekki um neina stefnubreytingu að ræða hvað varðar slík mál.“ Hann segir að í þessu tilvik beri einfaldlega að vinna málið hér þar sem það falli ekki undir Dublinarsamkomulag um endursendingar né undir fyrsta landsreglu því þau hafi komið beint til Íslands. Stór hluti mála sem komið hafa inn á borð útlendingastofnunar hefur verið sendur til meðferðar, til ríkja þar sem fólkið dvaldi áður en það kom til Íslands. „Málið er alfarið Íslands að meðhöndla þar sem þau komu beint til Íslands og ekki er kostur á að senda þau annað en aftur heim til sín.“ Georg segir að ekki sé erfið- ara að fá hæli hér heldur en í öðrum löndum. „Staðan er hins vegar þannig að Ísland er eyja og flestir sem hingað koma hafa haft viðdvöl annars stað- ar.“ Hann segir erfiðleikana fyrst og fremst liggja í legu landsins. Mál Ástralans og kínversku stúlknanna tveggja sem komu til Íslands á fölsuðum vegabréf- um hefur ekki komið inn á borð hjá Útlendingastofnun. hrs@frettabladid.is GEORG LÁRUSSON Georg segir erfiðleika við að fá hæli hér á landi stafa fyrst og fremst af legu landsins. ■ Málið er alfarið Íslands að meðhöndla þar sem þau komu beint til Íslands og ekki er kostur á að senda þau ann- að en aftur heim til sín. Ekki um stefnu- breytingu að ræða Forstjóri Útlendingastofnunar segir að vænta megi úrskurðar í næstu viku í máli pars sem hingað kom frá Afganistan í leit að hæli. BANDARÍKIN Vísindamenn við Temple-háskólann í Fíladelfíu segjast hafa fundið rök fyrir því að of mikil vinna geti skaðað beinin í líkamanum. Þeir segjast hafa komist að þessari niðurstöðu eftir rann- sóknir á rottum og að niðurstöð- ur sýni að vissar síendurteknar hreyfingar geti skaðað sinar, lið- bönd og bein. Sérfræðingar eru þó ósam- mála um það hvort síendurtekn- ar minniháttar hreyfingar eins og við tölvulyklaborðið geti vald- ið skaða en eru sammála um að rannsóknir þeirra geti hjálpað til við að greina vandann fyrr og fyrirbyggja skaða. ■ TÖLVAN Vísindamenn eru ósammála um skaðsemi lyklaborðsins. Ný vísindi: Vinnan skaðar beinin JESSICA Í VIÐTALI Jessica Lynch segir að þeir sem björguðu henni séu hinar sönnu hetjur. Skipt um í brúnni: Jón Helgi tekur við VERSLUN Breytingar hafa orðið á stjórn Kaupáss sem rekur Nóatúns- búðirnar og fleiri verslanir, eftir að Jón Helgi Guðmundsson, eigandi Byko, keypti fyrirtækið. Á hluthafa- fundi var ákveðið að Ingimar Jóns- son, forstjóri félagsins, léti af störf- um og tekur Jón Helgi við sem starfandi stjórnarformaður. Orðrómur var um að Jón Helgi myndi kaupa Kaupás. Það kom því nokkuð á óvart þegar tilkynnt var að Ingimar og hópur fjárfesta og starfsmanna hefði keypt fyrirtæk- ið. Landsbankinn átti forkaupsrétt af bréfum í Kaupási sem hann nýtti og seldi síðan Jóni Helga. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.