Fréttablaðið - 13.11.2003, Síða 18

Fréttablaðið - 13.11.2003, Síða 18
Fyrir viku lýsti ég því á þessumstað, hversu Bretar hafa lagt sig fram um að taka sér tak í menntamálum undangengin ár. Strax eftir frækilegan kosninga- sigur yfir íhaldsmönnum árið 1997 ákvað Verkamannaflokkur- inn undir forustu Blairs forsætis- ráðherra að endurskipuleggja fjármögnun háskólanna um landið með því að innleiða hófleg skólagjöld að ástralskri og ný- sjálenzkri fyrir- mynd. Hverjir voru það, sem riðu á vað- ið þarna suður frá? Það voru jafnaðar- menn, flokksbræð- ur Blairs í neðra, eins og Ástralíu og Nýja-Sjálandi er stundum lýst á Bretlandi. Íhaldsmennirnir og frjálslyndir, sem höfðu áður stjórnað þessum löndum, höfðu hrært hvorki legg né lið í þessu skyni, ekki frekar en brezkir íhaldsmenn. Nixon í Kína Hvers vegna ekki? Skýringin kann að vera sú, að fylgi við markaðsbúskap meðal íhalds- manna er misjafnt, því að þeir eru margir ótæpilega hallir undir ýmsa sérhagsmuni. Önnur hugs- anleg skýring er sú, að fólkið í þessum þrem löndum treysti jafnaðarmönnum betur en öðrum til að gera svo gagngera og við- kvæma skipulagsbreytingu á menntamálunum af ótta við, að ella væru rótgróin jafnaðarsjón- armið látin sigla lönd og leið. Þessi hugsun er stundum kennd við Nixon í Kína; þá er átt við það, að Bandaríkjamenn hefðu varla treyst öðrum en eitilhörð- um andstæðingi kommúnista til að stofna til stjórnmálasambands við Kína 1972. Eftir þessari reglu ætti flokkunum tveim, sem hafa skipzt á um að stjórna Íslandi frá stofnun lýðveldisins, e.t.v. að vera betur treystandi en öðrum til að vinda ofan af vitleysunni í landbúnaðarmálum (hún birtist nú m.a. í offramleiðslu afurða, sem bændur sjálfir kalla banka- kjöt og ríkiskjöt, eftir því hvort búskapurinn er á bankaframfæri eða ríkisins). Það hafa ríkis- stjórnarflokkarnir þó ekki gert enn, heldur hafa þeir látið reka á reiðanum áratug eftir tug, svo að ekki er reglan um Nixon í Kína óbrigðul. Vandinn hér heima Hvað um það, vandi háskól- anna hér heima er mikill. Hann birtist m.a. í því, að útgjöld til háskóla eru miklu minni hér en í nálægum löndum. Skv. upplýs- ingum frá OECD verjum við Ís- lendingar helmingi minna fé til háskólamenntunar en gert er annars staðar um Norðurlönd, og hafa útgjöld til háskólamála þó aukizt verulega hér heima síðan 1995 með tilkomu nýrra háskóla. Við þyrftum m.ö.o. að tvöfalda fjárútlát til háskóla til að standa jafnfætis frændum okkar á Norðurlöndum. Það myndi þó ekki duga, því að við ættum að réttu lagi að verja meira fé en þeir til menntunar- mála, af því að aldurssamsetn- ing mannfjöldans er önnur hér en þar, svo að hér er tiltölulega fleira fólk á skólaaldri. Tvöföld- un útgjalda til háskólamála til þess eins að standa jafnfætis Dönum, Finnum, Norðmönnum og Svíum og þó varla það myndi kosta röska fimm milljarða króna á hverju ári. Hvaðan ætti það fé helzt að koma? Nú þykknar þráðurinn. Það virðist vera borin von, að ríkið reiði fram allt það fé, sem þarf. Núverandi ríkisstjórn hefur sýnt það í verki, að henni finnst fýsilegra að hlaða undir dvín- andi atvinnuvegi til sjós og lands og lækka skatta en auka fjár- framlög til háskóla. Og það virð- ist ekki mjög líklegt, að önnur ríkisstjórn myndi treysta sér til að reiða fram svo mikið fé á einu bretti eða í áföngum, enda þótt ríkisstjórnir annarra Norður- landa telji það ekki eftir sér. Það er ekki víst, að stóraukin fjár- veiting ríkisins til háskóla myndi leysa vanda þeirra til fulls og til frambúðar, því að vandinn er ekki fjárhagsvandi einvörðungu, heldur einnig skipulagsvandi en þess konar skipulagsvandi, sem fylgir æv- inlega miðstjórn og markaðs- firringu eins og þeirri, sem markar víðfeðman ríkisrekstur í heilbrigðis- og menntamálum. Þess vegna þurfum við Íslend- ingar að velta fyrir okkur for- dæmi Breta. Brezka leiðin kann að henta Íslandi vel og örva menn til að taka á báðum þáttum vandans í senn, fjárskortinum og skipulagsvandanum. Allra meina bót? Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að innheimta skóla- gjalda myndi leysa allan vanda þeirra háskóla, sem hefur ekki enn verið veittur kostur á að fara þá leið. En málið þarfnast athugunar, því að við óbreytt ástand verður ekki unað öllu lengur. Blandaður markaðsbú- skapur er styrkasta máttarstoð velferðarríkisins. Menntamál og heilbrigðismál eru mikilvægari en svo, að mönnum sé stætt á því til lengdar að stilla sig um að beizla markaðsöflin þar eins og annars staðar, enda þótt ríkið hafi eftir sem áður lykilhlut- verki að gegna í heilbrigðis- og menntamálum. ■ Gjaldþrot Útgáfufélags DV hefurdregið kjör og starfsöryggi blað- bera fram í dagsljósið. Blaðberar sem báru út blaðið í október hafa ekki fengið greidd laun. Samkvæmt regl- um útgáfufélagsins ættu þeir að fá laun sín greidd 15. þessa mánaðar eða eftir þrjá daga. Langflestir annarra starfsmanna Útgáfufélags DV hafa fengið greitt fyrir sína vinnu í októ- ber. Það bendir því margt til að blað- berararnir einir verði útundan. Það sem vekur athygli við þetta er að blað- berarnir unnu vinnu sína þegar Út- gáfufélag DV var í greiðslustöðvun. Fyrirtæki sem þannig er ástatt um er óheimilt að stofna til skuldbindinga sem það getur ekki staðið við. Því er heimilt að fresta greiðslum vegna eldri skulda en óheimilt að stofna til nýrra. Eins og staðan er í dag virðist sem blaðberarnir hafi einfaldlega gleymst, að forsvarsmenn útgáfufé- lagsins hafi ekki hugsað út í skuld- bindingar sínar gagnvart þeim. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa forsvarsmenn Útgáfufélags DV greitt upp þá vörsluskatta sem voru í vanskilum þegar félagið fór í gjald- þrot. Sem kunnugt er eru fram- kvæmdastjórar og stjórnarmenn ábyrgir fyrir skilum á þessum skött- um og eru þung viðurlög við því þegar þessir skattar eru ógreiddir við gjald- þrot. Til að komast hjá þessum viður- lögum þurfa forsvarsmenn fyrir- tækja að greiða upp skattana sjálfir eða fá á sig fangelsisdóm ella. Fyrir einu og hálfu ári fór þáver- andi útgáfufélag Fréttablaðsins í þrot. Útgáfuréttur blaðsins var þá seldur núverandi útgáfufélagi, Frétt ehf. Kaupverðið var greitt með því að greiða vangoldin laun til þeirra blað- bera sem höfðu borið út blaðið. Að- standendur gamla útgáfufélagsins fengu engar aðrar greiðslur en þær að verða ekki valdir að því að blaðberar sætu eftir launalausir fyrir vinnu sína. Þegar fyrrum aðstandendur Út- gáfufélags DV átta sig á stöðu mála er ekki ólíklegt að þeir bregðist við með svipuðum hætti. Það er ekki síður mikilvægt fyrir þá að gera upp við blaðberana en skattinn. Það liggja engin sérstök formleg viðurlög við því að greiða blaðberum ekki laun fyrir vinnu sína öfugt við það sem gildir um þá sem svíkja ríkið um sinn hlut af launagreiðslum og öðrum viðskiptum fyrirtækja. En það er þungt að bera þá sök að hafa svikið blaðbera, sem oft eru börn og unglingar, um laun fyrir sína fyrstu vinnu. Ef þeir fjármunir hafa fundist sem dugað hafa til að greiða upp vörsluskatta hljóta for- svarsmenn Útgáfufélags DV að finna fé til að greiða blaðberunum. Þessi staða fyrrum blaðbera DV hafa dregið kjör blaðbera almennt í kastljósið. Frétt, útgáfufélag Frétta- blaðsins og DV, er með um 1200 blað- bera í vinnu. Það eitt segir að kjör þeirra og aðbúnaður er viðunandi og sambærilegur við það sem gerist hjá öðrum blöðum. Nokkur fjöldi fyrri blaðbera DV hafa fengið vinnu hjá Frétt og þeim mun fjölga á næstu vik- um. Það breytir því ekki að fyrra út- gáfufélag blaðsins braut á þeim rétt. ■ Michael Howard, nýkjörinnleiðtogi breska Íhaldsflokks- ins, blés ótrauður til sóknar gegn Tony Blair forsætisráðherra í fyrstu ræðu sinni sem leiðtogi stjórnarandstöðu í breska þinginu í vikunni. Howard notaði tækifær- ið og rifjaði upp fortíð forsætis- ráðherrans en á árum áður þótti ráðherrann mun vinstrisinnaðri en nú. Howard minnti þingheim meðal annars á það, að á árum áður hefði Blair verið efasemdar- maður um náið samband við Evrópu og hefði jafnframt oft- sinnis ráðist í ummælum sínum gegn Bandaríkjastjórn sem hann hélt þá fram að kostuðu og stuðl- uðu beint að hryðjuverkum um víða veröld. Blair er sem kunnugt er einn helsti bandamaður Banda- ríkjastjórnar nú um stundir í bar- áttu hennar gegn hryðjuverkum. Sjálfsöruggur í ræðustól Mikil stemmning var í þingsal í aðdraganda ræðunnar, líkt og kappleikur væru í uppsiglingu. Mikil fagnaðarlæti urðu í röðum íhaldsmanna þegar Howard steig í ræðustól og stóð þar með í fyrs- ta skipti í tíu ár gegnt Tony Blair. Howard gagnrýndi m.a. ríkis- stjórnina fyrir hækkandi stjórn- sýslukostnað og vék að mikilli skattbyrði. Þótti framkoma og málflutningur Howards einkenn- ast af miklu sjálfstrausti og ör- yggi. Forveri hans, Ian Duncan Smith, þótti aftur á móti hikandi og tafsandi í málflutningi sínum. Skeytin flugu Skeytin flugu á milli Tony Bla- irs og Howards, í anda breskrar þinghefðar með tilheyrandi púum og fagnaðarlátum, og snerist deil- an einkum um fortíðina. Í einu skeytinu lýsti Blair því yfir að hann væri ánægður með tilkomu Michael Howards og sagðist telja „mikla ástæðu til að bjóða hann velkominn til nýrra starfa,“ og að það væri jafnframt „einkar ánægjulegt að maður sem hefði verið settur af í tíð síðustu Íhalds- stjórnar skyldi nú fá annað tæki- færi í tíð stjórnar Verkamanna- flokksins.“ Jafnframt lýsti Blair því yfir, ekki síst í ljósi umræð- unnar og aðdróttana Howards sem snerust aðallega um fortíð- ina, að Howard væri ekki einung- is „fulltrúi fortíðarinnar heldur myndi hann jafnframt draga land- ið til fortíðar“ ef hann fengi að ráða. „Sama gamla fólkið,“ sagði Blair, „sama gamla stefnan og sömu gömlu íhaldsmennirnir.“ ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um kjör og starfsöryggi blaðbera. Úti í heimi ■ Michael Howard er byrjaður að láta að sér kveða sem leiðtogi Íhaldsflokksins. 18 13. nóvember 2003 FIMMTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Svarað á búlgörsku Skoðun mín er sú að ríkisfyrirtæki ætti ekki að fjárfesta á þennan hátt í öðrum fyrirtækjum, hvað þá í öðrum löndum. Það samræmist ekki markmiðum opinberra aðila að stunda áhættufjárfestingar. Gott dæmi um slíkt eru kaup Raufarhafnarhrepps á bréfum í deCode. Þannig færi best á að Björgólfur Thor tæki við tólinu úr höndum ríkisins áður en beina línan til Búlgaríu verður opnuð. Maður yrði þá allavega ekki hræddur um að svarað yrði á búl- görsku í síma 800 7000. BRYNJÓLFUR ÆGIR SÆVARSSON AF VEFNUM WWW.DEIGLAN.COM Aðgerðir í stað hugtaka En svo spyr ég mig aftur á móti: Hvað um það þótt einhverjir segi að Samfylkingin sé að „færast til hægri“? Sjálfum stendur mér nefnilega al- veg nákvæmlega á sama um hvort ég er skilgreindur sem hægri-, miðju- eða vinstrimaður í pólitík. Ég tel það yfirhöfuð engu skipta hvaða hugtök fólk notar til að lýsa skoðunum sínum eða ann- arra. Það eina sem ég hef áhuga á er hvað menn myndu gera, réðu þeir för í þjóðfélaginu, og hvort það sem þeir myndu vilja gera sé raunhæft og framkvæmanlegt. SVERRIR TEITSSON AF VEFNUM POLITIK.IS Refsiákvæði og hjónabandið Mín tilfinning er sú að í okkar samfélagi almennt, sé hjónaband- ið og það samkomulag sem þú gerir við einstakling með því að giftast honum, ekki litið nógu al- varlegum augum. Það má svo vissulega deila um það hvort það sé af hinu slæma eða ekki og hversu hörð við eigum að vera varðandi þessi mál. Eins og stað- an er í dag er auðvelt að ganga í hjónaband og jafnvel auðveldara að fá skilnað. Samningurinn sem þú gerir við annan einstakling með því að giftast honum, hefur því sáralítið gildi, enda engin refsiákvæði við broti á honum og einnig hægt að rifta honum á ein- faldan hátt. STEINUNN VALA SIGFÚSDÓTTIR AF VEFNUM TIKIN.IS ■ Af Netinu Howard byrjaður að bauna á Blair Þeir skildir eftir sem síst skyldi ■ ...vandi háskól- anna hér heima er mikill. Hann birtist m.a. í því, að útgjöld til háskóla eru miklu minni hér en í nálægum löndum. Um daginnog veginn ÞORVALDUR GYLFASON ■ skrifar enn um ný viðhorf í mennta- málum Háskólagjöld: Flóttaleið eða lausn? MICHAEL HOWARD Gaf Tony Blair engin grið í þinginu þegar þeir mættust í fyrsta skipti sem leiðtogar tveggja stærstu flokkanna. Howard þótti öruggur í ræðustól og var ekki með neitt hik í málflutn- ingi sínum eins og forveri hans, Ian Duncan Smith, var gjarnan sakaður um.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.