Fréttablaðið - 13.11.2003, Page 35

Fréttablaðið - 13.11.2003, Page 35
FIMMTUDAGUR 13. nóvember 2003 31 Isuzu Trooper árg. 4/95 bensín, 6 cyl., sjálfskiptur, þjónustubók frá upphafi, ek- inn 190 þús. km, mikið endurnýjað og lít- ur vel út, sk. ‘04. 100% lán. Verð 870.000. Upplýsingar í síma 893 6292. Til sölu nýir og notaðir lyftarar á góðu verði, einnig varahlutir í flestar gerðir lyft- ara. Partur-Spyrnan-Lyftarar ehf, s. 585 2500. MAN 8153 árg. 4/ ‘95, ekinn 330 þús. km, uppt. vél (nótur), loftpúðar, sk. ‘04, 6 m langur kassi, 37 rúmmetrar, bíll í topplagi, nýleg dekk o.fl. 100% lán Verð 990.000. + vsk. Upplýsingar í síma 893 6292. Geymsluhúsnæði fyrir tjaldvagna og fellihýsi í Mosfellsbæ. Uppl. í s. 892 3023. Til sölu 6 tonna plastbátur í núllkerfi. Gott dekkpláss, öll helstu tæki í brú. Hentar vel fyrir fiskeldi, grásleppuveiðar eða hvað sem er. Verðhugm. 2,8 millj. S. 861 8050. Lítið notuð Michelin-dekk 175/65 R14. Verð 20 þúsund. Upplýsingar í síma 821 6760 eða 561 7811. 35” eða 36” óskast gefins eða fyrir lítið. Mega vera mikið slitin. S. 899 5437. 185/70/14 góð Michelin Alpine á Niss- an álfelgum 114 mm 4 gata boltabil 18.000. 195/70/14 negld Norðdekk á 5 gata Benz-álfelgum 12.000. 894 9595. 4 stykki 15” vetrardekk á felgum undan Subaru Legacy. Á góðu verði. Sími 557 7106, eftir kl. 17. Bílakjallarinn Stapahrauni 11, s. 565 5310. Sérhæ. okkur í VW, Toyota, MMC, Suzuki og fl. Partasalan Skemmuvegi 30 s. 557 7740. Volvo 440, 460, 850. Renault, mégane, ex- press. Astra, corsa, vectra. Almera, sunny, micra, legacy, impreza, primera, corolla, carina, touring, avensis, swift, daihatsu, gemini, lancer, galant, civic, L200, L300 space wagon, sidekick, feroza, peugeot 306. Á varahluti í Charade ‘88 ‘93, Civic ‘91, Lancer Colt ‘92, Corolla ‘92, Sunny ‘92, Micra ‘91, Swift ‘90, Subaru ‘90, Justy, L300 ‘90, Primera ‘91, Escort ‘88. S. 896 8568. Allar almennar bílaviðgerðir. Bremsu- viðgerðir, demparaskipti, kúplingaskipti, rafmagnsviðgerðir, startarar og alt- ernatorum. Áfram gengur. Bílaverkstæði, Kársnesbraut 100. S. 564 2625 & 864 8248. Franskir gluggar í innihurðir og spraut- ulökkun. Kíkið á www.imex.is S. 567 1300. Sky Digital gervihnattabúnaður á til- boði 49.900 kr. Til afgreiðslu strax. On Off, Smiðjuvegi 4, Kóp. Upplýsingar í síma 577 3377. Tilboð á sjónvarpstækjum. 14”, 20”, 21”, 28”, 32” og 44”. Einnig á myndbands- tækjum og dvd-spilurum. On Off, Smiðju- vegi 4. Græn gata. S. 577 3377. Slovak Kristall. Mikið úrval af kristals- ljósakrónum. Postulín matar-, kaffi-, te- og moccasettum. Kristalglösum og -vös- um. Handskornir trémunir. Kristal-skart- gripir. Mikið úrval af gjafavörum. Slovak Kristall (Kaldasel ehf.) Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4331. 4ra sæta sófi og 2 stólar, brúnleitt ullar- áklæði, 60 ‘s sett, verð 10.000. Uppl. í s. 587 7886. Til sölu ódýr, svört, ósamsett hillusam- stæða úr IKEA. Upplýsingar í síma 699 7055. Til sölu vegna flutninga Ömmu sófasett, Electolux ísskápur og IKEA sófi. S. 421 2983 & 895 6431. Mjög góð lítið notuð eldavél, vifta, eld- húsvaskur og baðvaskur. Uppl. í s. 893 7296. ● til sölu /Keypt & selt ● viðgerðir● varahlutir● hjólbarðar ● bátar ● tjaldvagnar ● vörubílar ● lyftarar Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst afgreiðsla bæjarráðs og bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi deiliskipulagstillögum: Hörðuvellir. Deiliskipulag. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarráð Kópavogs þann 24. júlí 2003 samþykkt tillögu að deiliskipulagi á Hörðuvöllum (Kórum). Tillagan nær til svæðis sem afmarkast af Rjúpnahæð í vestur, fyrirhuguðum Arnarnesvegi og Vatnsendahvarfi í norður, fyrirhugaðri íbúðarbyggð við Andarhvarf, Fagraþing (Norðursvæði) og af svo kölluðu Suður- svæði í austur og Heimsenda í suður. Á svæðinu er gert ráð fyrir blandaðri íbúðarbyggð sérbýlis og fjöl- býlis aukgrunnskóla, leiksskólum, um 8 ha íþrótta- svæði með íþróttahúsi og keppnisvöllum, svæði fyrir verslun og þjónustu og kirkjulóð. Í tillögunni kemur jafnframt fram fyrirhugað gatnakerfi, göngu- leiðir, reiðleiðir, opin svæði, trjáræktarsvæði og leik- svæði. Tillagan er sett fram á uppdráttum í mkv. 1:1000 og 1:2000 ásamt greinargerð, sneiðmyndum og skilmálum dags. 14. apríl 2003. Tillagan var auglýst frá 23. maí til 25. júní 2003. Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum rann út 9. júlí 2003. Athugasemdir og ábendingar bárust. Með tilvísan í framkomnar athugasemdir og ábendingar var á fundi skipulagsnefndar 15. júlí 2003 gerðar eftirfarandi breytingar á framlögðum gögnum: Mörk skipulagssvæðis breytt þannig að leigulandið Vatnsendablettur 163 verður utan deiliskipulags- svæðisins og deiliskipulagi frestað á umræddu svæði. Fjölbýlishúsalóð við Vörðukór er breytt til að liðka til fyrir gerð fyrirhugaðra undirganga og lagn- ingu reiðleiðar. Að ósk Skipulagsstofnunar voru eft- irfarandi lagfæringar gerðar á framlögðum gögnum: hugmyndir að deiliskipulagi teknar út af frestuðum deiliskipulagssvæðum á uppdrætti, ennfremur að- koma og bílastæði við Vindakór, Völukór og Hörðukór lagfærð, kirkjulóð og íþróttasvæði skil- greind nánar; Rjúpnavegur ekki skilgreindur sem þjóðvegur, ákvæði um hljóðvist og fyrirvari um lóð- arstærðir og hæðarlegu breytt í greinargerð, ákvæði um kostnað við gerð húsagatna tekin út úr greinar- gerð; kafla um mæli- og hæðarblöð og um húsfélög tekin út úr skipulagsskilmálum ennfremur fallið frá ákvæði um sama hönnuð fyrir byggð við Bauga- kór.Ofangreinar lagfæringar á framlögðum gögnum voru staðfestar í skipulagsnefnda 21. október 2003 og í bæjaráði 23. október 2003. Samhliða deiliskipulaginu var auglýst breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012 sbr. uppdrátt í mkv. 1:10.000 dags. í apríl 2003. Aðalskipulagsbreytingin hlaut staðfestingu umhverfisráðherra 3. september 2003. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd við að birt verði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins mun birt- ast í B-deild Stjórnartíðinda 12. nóvember 2003. Kríunes. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarstjórn Kópavogs þann 23. september 2003 samþykkt til- lögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kríunes í Vatns- endalandi. Í breytingunni felst að núverandi íbúð stækkar auk þess sem heimilt verður að gera 3 nýj- ar íbúðir í húsinu. Í tillögunni felst jafnframt að undir hluta hússins er gert ráð fyrir kjallara þar sem verða m.a. bílageymslur, þvottahús og geymslur. Grunn- flötur og hæð bygginga í Kríunesi verður óbreytt miðað við gildandi deiliskipulag svo og heimagist- ing sem rekin er í húsinu. Tillagan var auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 25. júlí til 18. ágúst 2003 með at- hugasemdafresti til 1. september 2003. Athuga- semdir og ábendingar bárust. Tillagan var lögð fram að nýju í skipulagsnefnd 16. september 2003 ásamt umsögn Bæjarskipulags um framkomnar at- hugasemdir og ábendingar. Tillagan var samþykkt óbreytt. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd við að birt verði auglýsing um sam- þykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýs- ing um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast í B-deild Stjórnartíð- inda 12. nóvember 2003. Smiðjuvegur 68-76. Deiliskipulag. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarstjórn Kópavogs þann 9. september 2003 samþykkt til- lögu að deiliskipulagi við Smiðjuveg 68-76. Skipu- lagssvæðið afmarkast af Reykjanesbraut til austurs, Smiðjuvegi 68, 70 og 72 til suðurs og Smiðjuvegi til vesturs og norðurs. Breytingin byggir á samkomu- lagi milli Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar um breytingu á mörkum sveitarfélaganna við Blesugróf. Í tillögunni felst að til verða tvær nýjar lóðir fyrir atvinnuhúsnæði norð- an Smiðjuvegar 68-72 þ.e. norðar Sólningar að hin- um nýju sveitarfélagamörkum og norðurmörk lóða við Smiðjuveg 68-72 breytast.. Tillagan var auglýst frá 27. júní til 28. júlí 2003 með athugasemdafresti til 11. ágúst 2003. Athugasemdir og ábendingar bárust. Tillagan var samþykkt með þeim breyting- um að botnkóti fyrirhugaðs húss að Smiðjuvegi 76 verði lækkaður um 2 metra; þök Smiðjuvegar 74 og 76 verði flöt; ásýnd húsa nr. 68-72 komi fram á sneiðmynd og undirgöng undir Smiðjuveg verði sýnd á uppdrætti á móts við aðalstíg. Samhliða deiliskipulaginu var auglýst breyting á Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012 sbr. uppdrátt í mkv. 1:10.000 dags. í apríl 2003. Aðalskipulagsbreytingin hlaut staðfestingu umhverf- isráðherra 7. október 2003. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd við að birt verði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 12. nóvember 2003. Hnoðraholt. Lóð undir tækjahús og fjarskiptastaur. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarráð Kópavogs þann 26. júní 2003 samþykkt tillögu að nýrri lóð fyrir tækjahús og fjarskiptastaur í Hnoðra- holti nánar tiltekið norðan við spennistöð Orkuveitu Reykjavíkur. Tillagan var auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 19. febrúar til 19. mars 2003 með athugasemdafresti til 2. apríl 2003. Engar athugasemdir og ábendingar bárust. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd við að birt verði auglýs- ing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 12. nóvember 2003. Vatnsendi. (F-2 reitur). Breytt deiliskipulag. Lóð undir tækja- hús og fjarskiptastaur. Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjarráð Kópavogs þann 3. apríl 2003 samþykkt tillögu að breyttu deiliskipulagi á sk. F 2 reit í Vatnsendalandi. Í tillögunni felst heimild til að reisa tækjahús og fjar- skiptastaur við Vatnsendaveg á mörkum F-reitar og fyrirhugaðrar grunnskólalóðar á Norðursvæði Vatnsenda. Tillagan var auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 12. febrúar til 12. mars 2003 með athugasemdafresti til 26. mars 2003. Engar athugasemdir eða ábending- ar bárust. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið máls- gögnin og gerir ekki athugasemd við að birt verði auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofan- greind lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulags- ins mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 12. nóvem- ber 2003. Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar deiliskipulagsáætlanir og afgreiðslu þeirra er hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs, Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:00 til 14:00. Skipulagsstjóri Kópavogs. Auglýsing um afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar Kópavogs á auglýstum tillögum að deiliskipulagi. Kópavogsbær.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.