Fréttablaðið - 13.11.2003, Side 39

Fréttablaðið - 13.11.2003, Side 39
35FIMMTUDAGUR 13. nóvember 2003 Þróttur: Átaki hrint af stað ÍÞRÓTTASTARFSEMI Íþróttafélagið Þróttur er að fara í gang átak þar sem starfsemi félagsins verður kynnt íbúum Þróttarahverfisins. Á næstu dögum verður sent fréttabréf til allra íbúa hverfisins þar sem meðal annars kemur fram að fjöldi iðkenda hafi tvöfaldast hjá félaginu á undanförnum árum og að rekstur félagsins sé þungur. Tölu- vert vanti upp á til að endar nái saman. Óskað er eftir því að fólk styrki starfsemina með 300, 500 eða 700 króna fjárframlagi á mánuði í eitt ár. Hringt verður í fólk, en áhugasamir geta einnig haft sjálfir samband í síma 590 8000. ■ RIO FERDINAND Sepp Blatter, forseti FIFA, er pirraður út í Enska knattspyrnusambandið vegna seina- gangs í máli Rio Ferdinand. Lyfjapróf Ferdinands: Blatter byrstir sig FÓTBOLTI „Ég er ekki ánægður með hraðann, eða öllu heldur hægagang- inn í þessu máli,“ sagði Sepp Blatter, forseti FIFA, um mál Rio Ferdin- ands, leikmanns Manchester United, sem skrópaði í lyfjaprófi í septem- ber. „Slík mál á að vinna strax svo hægt sé að leiða þau til lykta.“ „Það er á hreinu að það að neita að fara í lyfjapróf, eða skrópa í lyfjaprófi, er litið jafn alvarlegum augum og jákvæð niðurstaða í lyfja- prófi,“ sagði Blatter og bætti því við að svona mál eigi að nota til þess að senda öðrum viðvörun. ■ Ólympíunefndin: THG-sterar í frostinu? LYFJAMÁL Jacques Rogge, forseti Al- þjóða Ólympíunefndarinnar, IOC, tilkynnti í gær að öll lyfjapróf sem tekin voru á Vetrarólympíuleikun- um í Salt Lake City fyrir nærri tveimur árum verði rannsökuð á ný. Lyfjaprófin eru öll geymd í frosti og að þessu sinni verður leitað að THG-steranum sem skaut upp koll- inum fyrir skemmstu og í ljós hefur komið að fjölmargir íþróttamenn hafa notað. Þar sem THG kom ekki fram á lyfjaprófum er ekki vitað með vissu hversu lengi sterinn hef- ur hefur verið í umferð, né heldur hver útbreiðsla hans var. Rogge segist telja að steralyfið hafi ekki verið komið til skjalanna fyrir tæp- um tveimur árum og leitar nú eftir staðfestingu á þeim grun. ■ Lýsingarbikarinn: Njarðvík gegn KR KÖRFUBOLTI Íslands- og bikarmeist- arar Keflavíkur leika gegn Þrótti frá Vogum á Vatnsleysuströnd í 32 liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta. Keppnin í vetur ber nafn Lýsingar, sem er styrktaraðili keppninnar, og heitir Lýsingarbik- arinn. Í tveimur leikjum mætast félög úr INTERSPORT-deildinni. Njarð- vík leikur við KR og Grindavík gegn Breiðabliki. Haukar mæta 1. deildarfélagi ÍG, Snæfell keppir við Stjörnuna, Hamar við Skallagrím, Tindastóll við Þór frá Akureyri, Þór frá Þorlákshöfn við sameiginlegt lið Ármanns og Þróttar, KFÍ við Selfoss og ÍR við ÍS. Félögin úr úrvalsdeild- inni leika öll á útivelli í þessari um- ferð keppninnar. ■ Ólafur Ingi Skúlason: Er mjög stoltur og ánægður FÓTBOLTI „Ég var mjög stoltur og ánægður þegar ég heyrði að það væri möguleiki að ég yrði valinn,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, einn nýliðanna í landsliðshópnum sem mætir Mexíkó í næstu viku. „En ég átti ekki sérstaklega von á því að vera valinn vegna þess að Ás- geir Sigurvinsson sagði að hann ætlaði með sitt sterkasta lið. Þetta kom í raun skemmtilega og þægi- lega á óvart.“ „Þetta hefur alltaf verið mitt takmark í gegnum tíðina að spila landsleik. Þá yrði ég sáttur við ferilinn hvernig sem hann færi. Mig óraði ekki fyrir því þegar ég var yngri að ég myndi ná því tví- tugur, það er að segja ef ég fæ að vera með á móti Mexíkó.“ Ólafur hefur verið á mála hjá Arsenal síðan 2001 en hann lék með Fylki í sumar. „Samningurinn við Arsenal rennur út í júní og framtíð mín hjá félaginu verður að öllum líkindum rædd í janúar. Það verður bara að koma í ljós hvað kemur út úr því. Það er ekki jafn gott að vera í varaliði og í að- alliði svo ég á allt eins von á að leið mín muni liggja eitthvert ann- að, jafnvel í janúar eða næsta vor.“ Ólafur var í leikmannahópi Arsenal gegn Rotherham í lok október. „Það var alveg stórkost- leg upplifun að vera á Highbury og 27 þúsund manns að horfa á leikinn. Mér hefur gengið mjög vel að undanförnu. Þetta er búið að vera mjög gott eftir að ég kom til baka og ég hef náð að fylgja því eftir sem ég var að gera heima í sumar. Mér gekk mjög vel og hef náð að halda því uppi eftir að ég kom út.“ ■ ÓLAFUR INGI SKÚLASON Ólafur Ingi Skúlason (númer 22) gaf ekki sitt eftir baráttulaust í leik Fylkis gegn sæn- ska félaginu AIK í UEFA-bikarnum í haust.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.