Fréttablaðið - 13.11.2003, Síða 43

Fréttablaðið - 13.11.2003, Síða 43
Stefánssonar á rabbfundi Rannsókna- stofu í kvenna- og kynjafræðum í stofu 301 í Árnagarði. Gísli mun fjalla um menningarárekstra á norðurslóðum snemma á síðustu öld. Aðgangur er ókeypis og fyrirlesturinn er öllum opinn.  16.00 Dr. Ommo Wilts frá Kílarhá- skóla flytur fyrirlestur um þýsku mállýsk- una frísnesku og skáldið Jens Emil Mungard. Fyrirlesturinn verður fluttur á þýsku í stofu 301 í Árnagarði, byggingu Háskóla Íslands.  20.30 Fyrsti fyrirlestur Fuglavernd- arfélags Íslands á þessum vetri verður í Lögbergi og nefnist Þroskasaga fugla- merkingarmanns. Ólafur Torfason, sem fjallar um fuglamerkingarnar, hefur ásamt félögum sínum Hallgrími Gunn- arssyni og Jóni Gunnari Jóhannssyni, verið atkvæðamikill í fuglamerkingum á undanförnum árum. ■ ■ FUNDIR  11.00 Stofnun Vigdísar Finnboga- dóttur í erlendum tungumálum stendur fyrir málþingi um íslenskar lagaþýð- ingar í Norræna húsinu í dag. Frum- mælendur eru Gauti Kristmannsson, Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, Hildur Pétursdóttir og Sigurður Líndal. Aðgang- ur er ókeypis og öllum heimill.  20.00 Fundur verður haldinn hjá hópi foreldra og aðstandenda sam- kynhneigðra á Akureyri og Norðurlandi á Sigurhæðum á Akureyri. Meðal ann- ars verður horft á heimildarmyndina Hrein og bein og rætt um efni hennar. Nýir félagar sérstaklega velkomnir.  20.00 Lesið verður úr nýjum ævi- sögum á Súfistanum, bókakaffi í bóka- búð Máls og menningar, Laugavegi 18. Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir les úr bók sinni um Ruth Reginalds, Guðjón Friðriksson les úr seinni hluta ævisögu Jóns Sigurðssonar og Gísli Pálsson les úr bók sinni Frægð og firnindi - ævi Vil- hjálms Stefánssonar.  20.00 Félagsfundur Slysavarna- FIMMTUDAGUR 13. nóvember 2003 39 MATTHÍAS MATTHÍASSON Tónleikakvöld á Gauknum erþað besta í bænum,“ segir söngvarinn Matthías Matthías- son. „Hlölli klukkan fjögur á nótt- unni er líka bestur,“ segir Matti sem spilar ásamt félögum sínum í Dúndurfréttum á Gauknum í kvöld. Bestí bæmum Ætli það séu ekki ellefu eða tólfár síðan ég byrjaði með eig- inlegt uppistand,“ segir Steinn Ár- mann Magnússon sem tvímæla- laust er með allra reyndustu uppi- stöndurum landsins og var valinn Uppistandarinn 2003 fyrir skemmstu. „Við Davíð Þór vorum lengi vel þeir einu sem gáfu sig út fyrir að vera með standup. Við vorum þá með svona misjafnlega undirbúið prógram, því þetta felst ekki bara í því að segja brandara á færi- bandi eða syngja gamanvísur á skemmtun, heldur kom fólk til að sjá okkur skemmta.“ Síðan þá hefur vegur uppi- standsins vaxið jafnt og þétt og gríðarmikill uppgangur virðist vera í þessari listgrein á allra síð- ustu misserum. Keppnin Fyndnasti maður Ís- lands hefur verið haldin í nokkur ár og nú er einnig farið að keppa um titilinn Uppistandari ársins. Hver uppistandarinn á fætur öðr- um hefur litið dagsins ljós og í kvöld koma fram ásamt Steini Ár- manni þeir Gísli Pétur Hinriks- son, sem var valinn Fyndnasti maður Íslands 2003, og 19 ára verslunarskólanemi, Birgir Hrafn Búason, sem einnig keppti til úr- slita í þeirri keppni. Steinn Ármann vekur reyndar athygli á því að mjög fáir leikarar hafa lagt fyrir sig þessa listgrein. „Það er kannski vegna þess að þeir telji sig hafa nóg annað að gera eða hafi ekki áhuga eða séu hreinlega hræddir við þetta. Manni er kennt það fyrst og fremst í leiklistarskólanum að læra textann sinn og ganga ekki á leikmyndina.“ ■ ■ SKEMMTUN Þá verður allt fyndið //uppseltTodmobile Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN FÖSTUDAGINN 14. NÓVEMBER KL. 19:30 Popptónleikar í Laugardalshöll Sergej Rakhmanínov ::: Píanókonsert nr. 2 Tónlist eftir Todmobile Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson Einleikari ::: Lukás Vondrácek Todmobile DIDDÚ SYNGUR MEÐ RÚSSÍBÖNUM OG VOX ACADEMICA Mikið stuð verður í Seltjarnarneskirkju í kvöld þegar Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur ásamt dúndurhljómsveitinni Rússíbönum og eðalkórnum Vox Academica. Fyrir hlé verða flutt ýmis lög en eftir hlé dregur til tíðinda því þá verður endurflutt tónverkið Hjörturinn sem Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson samdi sérstaklega fyrir þennan hóp við ljóðabálk eftir Ísak Harðarson. Tónlistin er með töluverðu rokkívafi og á köflum í anda Spilverksins, enda stendur sú tónlist nærri bæði söngkonunni og tónskáldinu, sem sjást hér á myndinni. kvenna í Reykjavík verður haldinn í Höllubúð. Að loknum venjulegum fé- lagsstörfum mætir Ingibjörg Þengils- dóttir miðill og verður með skyggnilýs- ingarfund.  20.00 Fjórir höfundar lesa upp úr nýjum skáldverkum sínum í Bókasafni Hafnarfjarðar, Strandgötu 1. Linda Vil- hjálmsdóttir kynnir bókina Lygasögu, Guðmundur Andri Thorsson Náðar- kraft, Ævar Örn Jósepsson les upp úr Svörtum englum og Vigdís Grímsdóttir kynnir bók sína Þegar stjarna hrapar. Strengjakvartett Tónlistarskólans leikur nokkur lög og sköpuð verður kaffihúsa- og kertaljósastemning. ■ ■ SAMKOMUR  12.00 Hinn árlegi Alþjóðadagur Háskóla Íslands verður haldinn í Há- skólabíói klukkan 12-16. Kynnt verður nám erlendis. Erlendir háskólastúdentar verða við kynningarborð, fyrrverandi skiptistúdentar segja frá dvöl sinni við erlenda háskóla og flutt verða erindi um stúdentaskipti og nám erlendis. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð- ar en sólarhring fyrir birtingu. ÞAULREYNDUR UPPISTANDARI Steinn Ármann var valinn uppistandari ársins nú í vor og er greinilega í toppformi. Hann verður með alvöru uppistand á Kringlukránni í kvöld ásamt þeim Gísla Pétri Hinrikssyni og Birgi Hrafni Búasyni. „Bráðskemmtilegt og vel smíðað leikverk“ Tenórinn í Iðnó Sun. 16. nóv. kl. 20.00 uppsel t Lau. 22. nóv. kl. 20.00 uppsel t Lau. 29. nóv. kl. 20.00 örfá sæti Lau. 6. des. kl. 20.00 Mi›asala í síma 562 9700 www.idno.is „Það er skemmst frá því að segja að Tenórinn er ein sú besta skemmtun í leik og söng sem gagnrýnandi minnist að hafa séð. (Guðmundur) er óborganlega fyndinn og syngur hreint dásamlega.“ Bergflóra Jónsdóttir, Mbl. „Sigursveinn Magnússon er píanóleikarinn og skilaði hlutverki sínu af hófstilltu öryggi, og átti sinn ísmeygilega þátt í fyndninni. Samleikur þeirra var áreynslulaus....“ „Tenórinn er .... rós í hnappagat höfundar,leikstjóra og flytjenda.“ fiorgeir Tryggvason, Mbl „...reglulega ánægjulegt að fá að sjá þennan reynda og þrautþjálfaða leikara njóta sín svo vel sem raun ber vitni....“ „....flutningur Guðmundar skemmtilegur, margslung- inn og öruggur...“ Halla Sverrisdóttir, DV „Besta íslenska sýningin sem ég hef séð um árabil. Frábær texti!“ Stefán Sturla - Rás 2

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.