Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 8
8 18. desember 2003 FIMMTUDAGUR
Viðbót í þjóðargrafreitinn
„Nú mun ég leggja á það þunga
áherslu að íslensk stjórnvöld
liðsinni okkur í því að fá leifar
Keikós aftur til Ísland, enda er
eðlilegt að hann komi til baka.“
Ásbjörn Björgvinsson, forstöðumaður Hvalamið-
stöðvarinnar á Húsavík. DV 17. desember.
Misskildir hópar
„Stjórnvöld reyna að mála ákveð-
na hópa sem glæpamenn. Í dag
eru það mótorhjólamenn en á
morgun gætu það verið framsókn-
armenn, sjálfstæðismenn eða
dvergar.“
Brynjólfur Þór Jónsson, talsmaður mótorhjóla-
klúbbsins Fáfnis. DV 16. desember.
Steingrímur kom af fjöllum
„...þá reynir maðurinn að slá sig
til riddara með því að segjast
skilja reiði fólks og baráttu verka-
lýðshreyfingarinnar. Hann skilur
okkur en gerir ekkert í því.“
Mikael Torfason um Steingrím J. Sigfússon. DV
17. desember.
Orðrétt
Þungar sakir á Kaupþing í Svíþjóð:
Kauphöllin sér ekkert óeðlilegt
VIÐSKIPTI Kaupþing Búnaðarbanki
er borið þungum sökum í grein í
sænska viðskiptatímaritinu
Veckans Affärer. Þar er fullyrt að
félagið hafi keypt eigin bréf sjálft
eða í gegnum eigendur sína til að
halda upp verði bréfanna. Í grein-
inni er vitnað í Katrínu Friðriks-
dóttur, sérfræðing hjá greiningar-
deild Landsbankans, þar sem hún
segir að þingaðilinn Kaupþing hafi
verið áberandi á kauphlið eigin
bréfa þegar verð lækkaði. Katrín
segir rétt eftir sér haft í greininni,
en hún hafi ekki dregið neinar
ályktanir af þessum staðreyndum.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir ekkert í
þeirra athugun benda
til þess að Kaupþing
Búnaðarbanki hafi stað-
ið óeðlilega að viðskipt-
um með eigin bréf. „Við
erum með sams konar
eftirlitskerfi og aðrar
kauphallir á Norður-
löndunum.“ Hann segir
að þegar verð lækkaði
vegna deilna bankans
og forsætisráðherra
hafi margir séð
kauptækifæri vegna
tímabundinnar lækkun-
ar. Ekkert þurfi að vera
óeðlilegt við það að
Kaupþing sé á kauphlið
viðskipta við slíkar að-
stæður.
Sigurður Einarsson
segir greinina sprottna
af gróusögum um fyr-
irtækið. „Það er slæmt
ef hér heima er ýtt
undir slíkar sögur. Það
skaðar ekki bara okkur,
heldur viðskiptalífið í
heild.“ Hann segir
blaðamanninn fara
með staðlausa stafi í
greininni og Kaupþing
Búnaðarbanki hafi
aldrei reynt að hafa
áhrif á gengi eigin
bréfa. ■
WASHINGTON, AP Saddam Hussein
er í haldi bandaríska hersins í ná-
grenni Bagdad, að sögn eins úr
íraska framkvæmdaráðinu.
Mowaffaq al-Rubaie fullyrðir að
fregnir af því að Saddam hafi ver-
ið fluttur til arabaríkisins Katar
við Persaflóa séu ekki á rökum
reistar.
George W. Bush Bandaríkja-
forseti vill að Saddam verði
dæmdur til
dauða fyrir
glæpi sína þrátt
fyrir að Kofi
Annan, fram-
kvæmdastjóri
S a m e i n u ð u
þjóðanna, og fjöldi evrópskra
ráðamanna hafi lýst sig andvíga
dauðarefsingu.
Bush segir að Saddam eigi
skilið „hámarksrefsingu“ fyrir
misgjörðir sínar. „Hann er böðull
og morðingi“ sem á skilið að
verða dæmdur til dauða, sagði
Bush í viðtali við sjónvarpsstöð-
ina ABC. Áður en Bush gaf út
þessa yfirlýsingu hafði hann lát-
ið þau orð falla að hans eigin
skoðun á málinu skipti ekki máli.
Þó Bush hafi ítrekað að refs-
ing Saddams verði ekki ákveðin
af Bandaríkjastjórn heldur af
írösku þjóðinni er talið að hann
geti haft umtalsverð áhrif á það
hver örlög íraska leiðtogans
verði. Bush er harður stuðnings-
maður dauðarefsinga en í þau
sex ár sem hann gegndi embætti
ríkisstjóra í Texas voru 152
fangar teknir af lífi í ríkinu.
Margir óttast að deilur blossi
upp milli Bandaríkjanna og Evr-
ópu um réttmæta refsingu til
handa Saddam Hussein. Öll að-
ildarríki Evrópusambandsins
hafa afnumið dauðarefsingar og
hafa hvatt önnur lönd til að gera
slíkt hið sama. Diego Ojeda,
talsmaður ESB, segir að það sé
ekki réttlætanlegt að dæma fólk
til dauða, ekki undir neinum
kringumstæðum.
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, hef-
ur lýst sig andvígan dauðarefs-
ingu. Sir Jeremy Greenstock,
æðsti embættismaður Breta í
Írak, segir að þjóð hans ætli
ekki að styðja það að Saddam
verði dreginn fyrir dómstól sem
geti dæmt hann til dauða. Tals-
maður forsætisráðherrans
Tonys Blair hefur á hinn bóginn
lýst því yfir að Bretar muni
sætta sig við það ef Írakar
ákveði að taka Saddam af lífi.
Meðlimir framkvæmdaráðs-
ins í Írak hafa spáð því að
Saddam Hussein verði dæmdur
til dauða eftir stutt réttarhöld. ■
GEORGE BUSH
Fagnar handtöku Saddams Hussein.
Handtaka Saddams:
Stundin var
dásamleg
HOUSTON, AP George Bush, fyrrum
Bandaríkjaforseti og faðir núver-
andi forseta, segist himinlifandi
með að Saddam Hussein hafi ver-
ið handtekinn. Sjálfur var Bush
forseti þegar Írakar voru hraktir
frá Kúvæt 1991.
Bush sagði handtökuna bless-
un fyrir Bandaríkin. „Þetta var
dásamleg stund. Hún bætti fyrir
það að sonur minn bauð mér í
þakkargjörðarmáltíð og hafði
ekki fyrir því að mæta sjálfur,“
sagði forsetinn fyrrverandi og
vísaði til þess að George W.
Bush, sonur hans, heimsótti
bandaríska hermenn í Írak á
þakkargjörðarhátíðinni. ■
Meintur barnaníðingur:
Laus úr
varðhaldi
LÖGREGLUMÁL Hæstiréttur felldi í
gær úr gildi gæsluvarðhalds-
úrskurð héraðsdóms yfir þrítug-
um Patreksfirðingi sem grunað-
ur er um að hafa beitt unga
drengi kynferðisofbeldi.
Maðurinn var handtekinn
föstudaginn 5. desember og úr-
skurðaður í gæsluvarðhald dag-
inn eftir til 19. desember. Hæsti-
réttur stytti þann úrskurð um
fjóra daga og rann hann út á
mánudag. Ríkislögreglustjóri,
sem aðstoðar við rannsókn
málsins, óskaði þá eftir fjögurra
daga framlengingu gæsluvarð-
haldsins og féllst héraðsdómur á
kröfuna.
Hæstirétttur var á öndverð-
um meiði og felldi úrskurðinn
úr gildi. Maðurinn er því frjáls
ferða sinna.
Í dómi Hæstarétttar segir að
þær ástæður sem ríkislögreglu-
stjóri færði fyrir kröfu sinni
nægi ekki til þess að staðfesta
lengingu gæsluvarðhalds yfir
manninum. Gögn málsins gefi
heldur ekki nægilegt tilefni til
frekara gæsluvarðhalds. ■
FLUGSLYS Í FRAKKLANDI
Óttast er að sjö manns hafi
farist þegar frönsk herflutn-
ingaflugvél hrapaði í fjöllunum
Pic de Piolou í suðurhluta
Frakklands í gær.
Fleiri hefðu getað verið í
hópi hinna látnu en hópi fall-
hlífahermanna tókst að stökkva
út úr vélinni í tæka tíð áður en
hún hrapaði. Leit stóð yfir í
gær með aðstoð þyrlna.
Tilboð á nýjum íslenskum bókum
Fram til jóla bjóðum við nýjar íslenskar bækur
á sérstöku tilboðsverði. Líttu við og kynntu
þér hið margrómaða Bóksöluverð sem oftar
en ekki er hagstæðasta bókaverðið í boði.
Bóksala stúdenta, v/Hringbrautwww.boksala.is s: 5 700 777
Opið:Virka daga kl. 9-18laugard. 20. des. kl. 12-18sunnud. 21. des. kl. 12-16Þorláksmessu kl. 9-20Aðfangadag kl. 9-12
Glæsilegir ítalskir leðurhornsófar
Sprengitilboð 70.000,- kr. afsláttur
Model IS 26.
Hornsófi
2 sæti+horn+2 sæti
Verð áður 239.000,- stgr.
Sprengitilboð
aðeins 169.000,-
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-17 og sunnudaga 13-17
gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf.,
sími 565-1234
Deilt um örlög Saddams
Einn úr íraska framkvæmdaráðinu segir Saddam Hussein vera í haldi bandaríska hernámsliðs-
ins í nágrenni Bagdad. George W. Bush Bandaríkjaforseti er á þeirri skoðun að Saddam eigi skil-
ið að verða dæmdur til dauða fyrir glæpi sína. Evrópskir ráðamenn eru á öðru máli.
SADDAM Í HALDI BANDARÍSKRA HERMANNA
Bandarískt fyrirtæki, Hero Builders.com, hefur búið til dúkku sem er eftirmynd af Saddam
Hussein í haldi bandaríska hersins.
„Hann er
böðull og
morðingi
■ Evrópa
■ Suður-Ameríka
SIGURÐUR EINARSSON
Segir greinina hluta af
gróusögum um Kaupþing
Búnaðarbanka í Svíþjóð
og vísar öllum ásökunum
á bug.
LÚLA VINSÆLLI Tveir af hverjum
þremur Brasilíumönnum eru
ánægðir með framgöngu Luiz
Inacio Lula da Silva í embætti
forseta þegar næstum ár er liðið
frá því að hann tók við völdum.
Herferð fyrir lýðræði:
MTV styður
San Suu Kyi
SINGAPÚR, AP Tónlistarsjónvarps-
stöðin MTV hefur hrint af stað her-
ferð til stuðnings mjanmörsku bar-
áttukonunni Aung San Suu Kyi sem
verið hefur í stofufangelsi í heima-
landinu síðan í lok maí. MTV í Asíu
mun ekki taka þátt í herferðinni.
MTV vonast til þess að geta vak-
ið athygli heimsins á baráttu Suu
Kyi fyrir lýðræði með því að taka
til sýningar einnar mínútu langa
leikna auglýsingu. Herforingja-
stjórnin í Mjanmar komst til valda
árið 1988 eftir að hafa brotið á bak
aftur uppreisn lýðræðissinna.
Stjórnin hefur neitað að virða nið-
urstöður lýðræðislegra kosninga. ■