Fréttablaðið - 18.12.2003, Side 39
35
FIMMTUDAGUR 18. desember 2003
Jólaleikur á pabbar.is:
Jólasveinn-
inn heim
í stofu
Á pabbar.is, sem er nýr vefur ímótun, er í gangi skemmtilegur
jólaleikur. Þeir sem vilja fá jólasvein
í heimsókn beint inn í stofu næst-
komandi sunnudag geta sent upplýs-
ingar með nafni,
heimili, síma,
fjölda barna og
aldri þeirra á
póstfangið pabb-
a r @ p a b b a r. i s
fyrir föstu-
dag og tveir
heppnir fá
jólasvein í
heimsókn.
„Auðvitað
k o m a
jólasveinar til
allra, en þetta
verður „spes“,“
segir Sveinn
H j ö r t u r
G u ð f i n n s s o n ,
ritstjóri vefsins,
sem bendir
jafnframt á að þátttakendur þurfa að
vera á höfuðborgarsvæðinu. ■
GÖMUL GLERAUGU ÓSKAST
Lionsfólk um allan heim hefur verið ötult
við að aðstoða blinda og sjónskerta.
Jólasöfnun Lionsklúbbs
Kópavogs:
Áttu gömul
gleraugu?
Lionsklúbbur Kópavogs stendurfyrir söfnun á notuðum gleraug-
um fram til jóla. Söfnunin er í sam-
starfi við danska Lionsmenn, sem
ætla að taka við gleraugunum, laga
þau og slípa ef þau eru biluð eða
rispuð og senda þau áfram til Lit-
háens.
„Litháen er fátækt land, launin
lág og nauðþurftarvörur eins og
gleraugu eru mjög dýrar,“ segir Pét-
ur Sveinsson, blaðafulltrúi Lions-
klúbbs Kópavogs. „Það er því von
okkar félaganna í Lionsklúbbi Kópa-
vogs að sem flestir sjái sér fært að
leggja þessari söfnun lið og láta gott
af sér leiða með hlutum sem ekki
hafa lengur notagildi fyrir núver-
andi eigendur. Við þiggjum með
þökkum öll gleraugu, líka sólgler-
augu.“
Pétur segir Lionsfólk um allan
heim hefur verið ötult við að aðstoða
blinda og sjónskerta frá upphafi
hreyfingarinnar. „Árið 1925 útnefndi
Helen Keller Lionsmenn „Riddara
hinna blindu“ og við höfum reynt að
standa undir því nafni síðan.“
Söfnunarkassar fyrir notuð gler-
augu eru í Byko í Breidd, Nóatúni
Hamraborg, Nóatúni Furugrund og
þjónustuborði Smáralindar. Söfnun-
inni lýkur á Þorláksmessu. ■
Jólaþorpið opið frá laugardegi:
Góðgerðahús og margt sem gleður
Jólaþorpið á Thorsplani íHafnarfirði hefur vakið at-
hygli þetta haustið. Það saman-
stendur af 19 húsum auk veit-
ingahúss og er hið ævintýraleg-
asta. Þar er hægt að kaupa gjaf-
ir til jólanna, jólaskraut, sæl-
gæti og ýmislegt fleira sem
gleður. Meðal þess sem finna má
eru listmunir úr tré, málmi og
gleri, textíll, myndlist, jóla-
skraut, sápur, fatnaður og
hljómdiskar. Sérstök góðgerða-
hús eru í þorpinu sem selja vör-
ur frá Karmelsystrum, Thor-
valdsensfélaginu, Waldorfskól-
anum, Leikfangasmiðjunni Ás-
garði, Sólheimum í Grímsnesi
og Bergiðjunni. Bakarameistari
er í einu húsinu og annað er fullt
af sælgæti.
Þorpið verður opið laugardag
og sunnudag frá 12-22, mánudag
frá 16-22 og á Þorláksmessu frá
12-23. Þar verður fjölbreytt
skemmtidagskrá bæði laugar-
dag og sunnudag og Grýla verð-
ur á vappi um svæðið. ■
SVEINKAR ERU
VÍÐA Á KREIKI Í
DESEMBER
Tveir heppnir í jólaleik
pabba.is fá jólasvein-
inn í „spes“ heimsókn
heim í stofu.
THORSPLANIÐ
Jólaþorpið setur svip á Hafnarfjarðarbæ.
M
YN
D
IR
/L
ÁR
U
S
K
AR
L
IN
G
AS
O
N
MARGT AÐ SKOÐA
Verslanir og veitingar eru í þorpinu.