Fréttablaðið - 12.02.2004, Blaðsíða 14
14 12. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
EIGINKONA ARAFATS
Suha Arafat, eiginkona Yassers Arafat, er
búsett í París. Saksóknarar í Frakklandi eru
að rannsaka hvort hún sé viðriðin
peningaþvætti.
Ríkið beitti vopnum sem ekki höfðu verið samþykkt á
lista einvígisins:
Segir tortryggni
gæta í garð lækna
LÆKNADEILAN Óskar Einarsson, for-
maður Læknafélags Reykjavíkur og
formaður samninganefndar sér-
fræðilækna, segir að hallað hafi á
lækna í umfjöllun fjölmiðla í að-
draganda kjarasamninga sérfræði-
lækna og ríkisins.
„ Um langt skeið hefur gætt tor-
tryggni í garð lækna, einkum þegar
talið berst að kjaramálum og starfs-
umhverfi þeirra,“ segir Óskar í við-
tali við Læknablaðið. „Þessarar tor-
tryggni verður einnig vart hjá við-
semjendum okkar og þegar upp úr
viðræðum slitnaði litaði hún allan
málflutning þeirra. Þá fóru þeir að
túlka atburðina á annan hátt en við
og í fjölmiðlastríðinu sem þá tók við
beittu þeir vopnum sem að okkar
mati höfðu ekki verið samþykkt á
lista einvígisins.“
Óskar segir einnig að helsti veik-
leiki lækna í deilunni hafi verið sá
að þeir hafi ekki náð fram stefnu-
breytingu í samningsgerðinni
vegna tímaskorts.
„Við höfum haldið því fram að
þjónusta sérfræðinga sé ódýr og
skilvirk og þótt öðru sé oft haldið
fram held ég að það standist í öll-
um meginatriðum. Auðvitað má
finna dæmi um að svo sé ekki. En
þegar á hólminn var komið höfð-
um við engin gögn til að sýna
fram á að við hefðum rétt fyrir
okkur. Við höfðum ekkert í hönd-
unum nema opinberar hagtölur og
gátum því ekki borið okkur saman
við aðra, hvorki innanlands né í
öðrum löndum. Við hefðum þurft
að hefja slíka gagnasöfnun miklu
fyrr.“ ■
Óttast borgarastríð
Tíðar sprengjuárásir að undanförnu og vaxandi tortryggni og spenna milli ólíkra
þjóðfélagshópa hefur vakið ótta við að borgarastríð kunni að brjótast út í Írak á næstu
mánuðum. Á fimmta tug lést í árás í gær.
BAGDAD, AP Tvær mannskæðar
sprengjuárásir á einum sólar-
hring sem kostuðu um hundrað
manns lífið hafa aukið á ótta um
að borgarastríð sé við það að
brjótast út í Írak.
Sérfræðingar í málefnum Mið-
Austurlanda segja hrinu sprengju-
árása og aukin átök milli trúarhópa
og þjóðarbrota til marks um að
borgarastríð sé mjög raunveruleg-
ur möguleiki. Þá hefur bréf meints
al Kaída-liða um að kynda ætti
undir átökum
ólíkra fylkinga
til að grafa und-
an stjórnvöldum
verið tekið til
marks um þá
hættu sem sé
fyrir dyrum.
„Möguleikinn
á borgarastríði er þegar til stað-
ar,“ segir Gareth Stansfield, sér-
fræðingur í málefnum Mið-Aust-
urlanda við Háskólann í Exeter,
og kveður ekki þurfa al Kaída til
þess.
Andúð ólíkra þjóðarbrota og
trúarhópa hefur farið vaxandi frá
því að Saddam Hussein var steypt
af stóli fyrir tíu mánuðum síðan.
Spenna hefur aukist í aðdraganda
valdaafsals Bandaríkjamanna um
mitt ár meðan nefnd á vegum
Sameinuðu þjóðanna reynir að
finna lausn sem fellur í kramið
hjá öllum hópum Íraka.
Sjíamúslimar eru í meirihluta í
Írak en hafa löngum mátt þola að
völdin séu í höndum súnní-
múslima. Nú vilja þeir fá völd í
samræmi við fjölda sinn og það
fer fyrir brjóstið á súnnímúslim-
um. Kúrdar voru einnig undirok-
aðir fram á síðustu ár og berjast
fyrir sjálfræði. Innan raða allra
þessara þjóðfélagshópa er að
finna vopnaðar fylkingar.
Íslamski rithöfundurinn Fahmi
Howeidi óttast að valdaafsal
Bandaríkjamanna kunni að verða
kveikjan að borgarastríði. „Ekki
er hægt að útiloka borgarastríð ef
valdaafsalið á sér stað án þess að
nokkurt miðlægt stjórnvald sé til
staðar,“ hefur hann sagt.
Sprengjuárásin í gær kostaði á
fimmta tug manna lífið. Þá var
bíll sprengdur í loft upp innan um
hundruð Íraka sem biðu þess við
herstöð að skrá sig í herinn. „Ég
var nýbúinn að segja vini mínum
að það væri hættulegt að standa
þarna,“ sagði Ali Hussein þar sem
hann lá illa særður á sjúkrahúsi
eftir árásina.
Bandaríkjamenn hafa leitt get-
um að því að al Kaída eða Ansar al
Islam, hryðjuverkahreyfing rót-
tækra súnnímúslima, standi á bak
við árásirnar í gær og fyrradag. ■
„Möguleik-
inn á borg-
arastríði er
þegar til stað-
ar.
Faxafeni 14, 108 Reykjavík,
s: 568-0850.
Fjölbreytt
vöruúrval
ÚTSALA
Engjateigi 5, sími 581 2141
Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00.
Opnum í dag
fulla búð af nýjum glæsilegum
vorfatnaði
Khatami gagnrýnir klerkastjórnina:
Ógn við þjóðina
TEHERAN, AP „Kosningar eru til
marks um lýðræði ef rétt er að
þeim staðið. Ef þær eru háðar tak-
mörkunum er það ógn við þjóðina
og kerfið. Þessari ógn er erfitt að
snúa við,“ sagði Mohammad
Khatami, forseti Írans, þegar
hann gagnrýndi klerkaveldið í
ræðu á hátíðahöldum vegna 25 ára
byltingarafmælis Írans.
Umbótasinnar hafa gagnrýnt
klerkastjórnina fyrir að meina
þrjú þúsund umbótasinnum að
gefa kost á sér. Khatami forseti og
nokkrir ríkisstjórar íhuguðu að
halda engar kosningar í mótmæla-
skyni en gáfu eftir vegna þrýst-
ings frá klerkastjórninni.
Khatami segir þó að þær verði
hvorki frjálsar né réttlátar.
Fjöldi umbótasinna hyggst
sniðganga kosningarnar. Slíkt
myndi tryggja stuðningsmönnum
klerkastjórnarinnar meirihluta á
þingi en talið er að það gæti leitt
til aukinna mótmæla á götum úti
og kröfu um að klerkarnir láti eft-
ir eitthvað af völdum sínum. ■
Íraskur ráðamaður:
Gaf sig fram
við yfirvöld
ÍRAK Muhsin Khadr al-Khafaji, fyrr-
um leiðtogi Baath-flokksins í borg-
inni Qadisiya, hefur gefið sig fram
við yfirvöld í Írak og er nú í haldi
bandaríska hernámsliðsins.
Khadr al-Khafaji var númer 48 á
lista bandarískra stjórnvalda yfir
eftirlýsta bandamenn Saddams
Hussein. Í desember hét Banda-
ríkjastjórn einni milljón Banda-
ríkjadala í verðlaun fyrir upplýs-
ingar sem gætu leitt til handtöku
Khadr al-Khafaji. Ekki liggur fyrir
hvort verðlaunin verða greidd út.
Aðeins ellefu ganga enn lausir af
þeim 55 mönnum sem eru á ofan-
greindum lista Bandaríkjamanna. ■
Frumbyggjar:
Njóti sömu
réttinda
KÚALA LÚMPÚR, AP „Ótrúleg grimmd-
arverk eru unnin gegn frumbyggj-
um víða um heim,“ sagði Fred Cart-
er, einn þátttakenda á ráðstefnu um
málefni frumbyggja sem haldin er í
Malasíu með stuðningi Sameinuðu
þjóðanna. Á henni kom fram að
hundruð þúsunda frumbyggja
hefðu verið hraktir frá heimilum
sínum vegna uppbyggingar, oft án
þess að fá nokkrar bætur.
Frumbyggjar víða að úr heimin-
um kröfðust þess í gær að ríkis-
stjórnir heims virtu réttindi þeirra
til eignarhalds á landi og stöðvuðu
brottflutning frumbyggja og fram-
kvæmdir sem gætu reynst um-
hverfinu skaðlegar. ■
SAMNINGURINN UNDIRRITAÐUR
Garðar Garðarsson, formaður samninganefndar ríkisins, og Óskar Einarsson, formaður
samninganefndar sérfræðilækna, undirrituðu nýjan kjarasamning um miðjan janúar.
HÁTÍÐAHÖLD Í ÍRAN
Þess var minnst í gær að 25 ár eru liðin frá því að stjórn Íranskeisara var steypt af stóli
SORG Í BAGDAD
Íraskur maður grætur látinn ættingja fyrir framan sjúkrahús í miðborg Bagdad í gær. Á fimmta tug manna létu lífið í sprengjuárás við
skráningarstofu íraska hersins.