Fréttablaðið - 12.02.2004, Síða 22
22 12. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
■ Andlát
■ Fyrsta starfið mitt
Tveggja ára drengur, JamesBulger, varð viðskila við móð-
ur sína í verslunarmiðstöð í Liver-
pool á þessum degi árið 1993. Lík
hans fannst illa útleikið við járn-
brautarteina í borginni nokkrum
dögum síðar. Breska þjóðin var
harmi slegin vegna málsins sem
varð enn átakanlegra þegar í ljós
kom að tveir 10 ára piltar rændu
drengnum úr verslunarmiðstöð-
inni og urðu honum að bana. Mál-
ið vakti heimsathygli og reiðialda
gekk yfir breskt samfélag og fjöl-
di fólks krafðist þess að morðingj-
unum yrði refsað harkalega á
meðan aðrir efuðust um að hægt
væri að gera þá ábyrga gerða
sinna.
Grunur lögreglu beindist að
drengjunum eftir að það sást á
öryggismyndavélaupptökum
verslunarmiðstöðvarinnar að
barnið hafði verið leitt burt af
tveimur piltum. Við frekari eftir-
grennslan kom í ljós að töluvert
gekk á þegar drengirnir rændu
James litla og enn þann dag í dag
þykir það með mestu ólíkindum
að sjónarvottar hafi ekki gripið
inn í atburðarásina.
Hinir morðseku, Jon Venables
og Robert Thompson, voru dæmd-
ir til betrunarvistar en voru látnir
lausir árið 2001 þá 18 ára að aldri.
Þeir fengu ný nöfn og opinberan
styrk til að koma undir sig fótun-
um utan Bretlands en foreldrar
fórnarlambsins og fleiri börðust
harkalega gegn þessari ráðstöfun
og því að drápsdrengirnir yrðu
látnir lausir. ■
Gísli Ásmundsson, Álandi 13, Reykjavík,
lést mánudaginn 9. febrúar.
Eva Karlsdóttir, Syðri-Brekku, lést
sunnudaginn 8. febrúar.
Unnur P. Jónatansdóttir frá Skeggja-
stöðum, síðast til heimilis á Sólvallagötu
45, Reykjavík, lést í Bandaríkjunum 4.
desember. Útförin hefur farið fram í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Ráðhildur Ellertsdóttir, Kríuási 15, áður
Móabarði 30b, lést mánudaginn 9. febr-
úar.
Leifur Valdimarsson, Árskógum 6,
Reykjavík, lést þriðjudaginn 10. febrúar.
Sigurjón Guðjónsson, Thomsonsveg
18, Malmö, Svíþjóð, lést fimmtudaginn
5. febrúar.
Eiður Sigurðsson, Vogagerði 3, Vogum,
lést mánudaginn 9. febrúar.
Birna Eggertsdóttir Norðdahl frá
Hólmi, dvalarheimilinu Barmahlíð, Reyk-
hólum, lést sunnudaginn 8. febrúar.
13.30 Guðbjörn Friðriksson, Löngumýri
20, Garðabæ, verður jarðsunginn
frá Víðistaðakirkju.
13.30 Steingrímur Jón Elías Guð-
mundsson verður jarðsunginn frá
Áskirkju.
13.30 Viðar Óskarsson, Glæsibæ 14,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Háteigskirkju.
15.00 Sigurást Gísladóttir, Valhúsabraut
13, Seltjarnarnesi, verður jarð-
sungin frá Seltjarnarneskirkju.
Stopular samgöngur á milliReykjavíkur og Viðeyjar yfir
vetrarmánuðina koma í veg fyrir að
fólk geti notið stórbrotinnar náttúru
eyjarinnar sem er ekki síður til-
komumikil á veturna en sumrin.
Örlygur Hálfdanarson bókaútgef-
andi er borinn og barnfæddur Viðey-
ingur og er mjög áfram um að
aðgengi almennings að náttúru-
perlunni verði aukinn.
„Þegar frystir eftir langvarandi
bleytutíð myndast risavaxnir klaka-
strönglar í sjávarklettunum ofan
Hrafnasands, neðan Hvannabakka,
Skúlahóls og Kvennagönguhóla,“
segir Örlygur. „Sökum fjarlægðar-
innar úr landi eru þessi náttúrufyrir-
bæri ekki mikil að sjá, en annað
kemur í ljós þegar nær er komið.“
Grýlukertin eru margar mann-
hæðir, í hinum ýmsu myndum og
mörg hver minna þau helst á risa-
vaxnar pípur í orgeli. „Því miður
gefst almenningi ekki kostur á að
skoða og njóta þessara einstæðu fyr-
irbæra í borgarlandinu því að áætl-
unarferðir til eyjarinnar eru aðeins
yfir hásumarið, frá júní til septem-
ber. Þess utan er eyjan lokuð
almenningi því ferðir til eyjarinnar á
öðrum tímum ársins eru aðeins í
tengslum við veitingareksturinn í
Viðeyjarstofu.“ ■
Viðey
MIKILFENGLEG NÁTTÚRA
■ Viðeyjar er ekki síður falleg í vetrar-
kuldanum. Stopular ferðir út í eyjuna
gera það að verkum að borgarbúar fá
ekki að njóta þess að skoða sig um í
Viðey á veturna.
Fjarlægðin felur stórbrotin grýlukerti
Þegar ég var á Snæfellsnesiákvað ég að búa eitthvað til
úr umhverfinu,“ segir Árni
Johnsen, en sýning á tæplega 40
verkum hans verður opnuð í
Gryfjunni, Duushúsum í
Reykjanesbæ á laugardaginn.
Þá gefst fólki tækifæri til að
berja augum hin margumtöluðu
listaverk Árna sem gerð eru úr
grjóti frá Grundarfirði, stáli og
ýmsu öðru efni.
„Það kom fljótlega í ljós að
grjótið heillaði mig og það var
byrjunin. Ég fór að velja grjót
og spá í hvernig væri hægt að
vinna úr því þannig að ég réði
við. Hugmyndirnar komu svo
jafnt og þétt án þess að ég hefði
fyrir því fyrirmynd. Mér hefur
reyndar verið sagt að enginn
hafi farið jafn einfalda leið til að
vinna úr grjóti.“
Árni segist alltaf hafa haft
mikinn áhuga á grjóti og rýnir
hann grimmt í það hvar sem
hann fer. „Ég vil sýna fram á
hvað grjót er lifandi og hvað það
er sjálft mikill skúlptúr. Í
hverju grjóti má finna mismun-
andi andlit og eins og hjá fólki
hefur sumt ekki sterkan svip.“
Þrátt fyrir opnun á sýningu á
listaverkum Árna, bækur og tón-
list eftir hann, segist hann ekki
líta á sig sem sérstakan lista-
mann. „Ef mér dettur eitthvað í
hug, þá geri ég það. Ég hafði
lengi ætlað mér að vinna ákveðna
hluti í grjót til að hafa gaman af
og þetta er afraksturinn.“ Að-
dáendur tónlistarmannsins Árna
Johnsen þurfa þó ekki að
örvænta, hann hefur ekki lagt
gítarinn á hilluna. Hann er að
undirbúa hljómplötu þar sem
hann spilar og syngur. Þetta
verður fyrsta platan hans þar
sem hann semur ekkert efni
sjálfur en afraksturinn verður
væntanlega tilbúinn um næstu
áramót. ■
Fjöllistamaður
ÁRNI JOHNSEN
■ Sýning á grjótlistaverkum hans verður
opnuð í Reykjanesbæ um næstu helgi og
svo styttist í næstu hljómplötu.
CHARLES DARWIN
Náttúrufræðingurinn sem setti fram þróun-
arkenninguna fæddist á þessum degi árið
1809, fyrir 195 árum síðan. Þennan sama
dag kom Abraham Lincoln, 16. forseti
Bandaríkjanna, einnig í heiminn.
12. febrúar
■ Þetta gerðist
1870 Konur í Utah fá kosningarétt.
1892 Fæðingardagur Abrahams
Lincoln er gerður að almennum
frídegi.
1912 Alþýðulýðveldið Kína er stofnað.
1924 Rhapsody in Blue eftir George
Gershwin er frumflutt í New
York.
1929 Leikkonan Lilly Langtree deyr.
1940 Útvarpsleikrit um ævintýri Súper-
manns hefur göngu sína í
Bandaríkjunum.
1999 Flugmenn hjá American Airlines
neita að mæta til vinnu þrátt fyr-
ir hæstaréttarúrskurð þess efnis.
1999 Bandaríkjaþing sýknar Bill Clint-
on forseta af ákærum um mein-
særi og að reyna að hindra
framgang réttvísinnar.
2000 Charles Schulz, höfundur
myndasagnanna um Smáfólkið,
deyr af völdum krabbameins.
Hann var 77 ára að aldri.
JAMES BULGER
Morðið á tveggja ára drengnum vakti óhug
út um allan heim og reiðialda gekk yfir
Bretland þar sem almenningur krafðist
þess að hinum morðseku tveimur 10 ára
drengjum, yrði refsað harkalega.
Drengir myrða barn
JAMES BULGER
■ Tveir tíu ára drengir rændu tveggja ára
dreng, James Bulger, úr verslunarmiðstöð
í Liverpool og myrtu hann á
hrottalegan hátt.
12. febrúar
1993
GRÝLUKERTIN SEM FÁIR GETA NOTIÐ
„Það veldur mörgum furðu að ekki skuli vera búið að koma upp eðlilegri aðstöðu fyrir
göngufólk, jafnt sumar sem vetur,“ segir Örlygur Hálfdanarson sem tók myndina fyrir hálf-
um mánuði síðan. „Það vantar snyrtiaðstöðu á nokkrum stöðum og afdrep fyrir göngufólk
til að hvílast og borða nestið sitt í skjóli fyrir veðri og vindum.“
Gerir það sem
honum dettur í hug
■ Jarðarfarir
ÁRNI JOHNSEN
Hann segir grjót vera eins og fólk, sumt hafi ekki sterkan svip en í hverju grjóti megi finna mismunandi andlit.
Hræðileg
reynsla
Fyrsta starfið mitt var hjá Mið-felli. Ég var 15 ára gamall og
starfaði sem verkamaður. Ég hóf
störf um haustið
og vann einn vet-
ur við nagl-
hreinsun, járna-
bindingar og
fleira. Mér
fannst þessi
reynsla ömurleg,
ekki síst kuld-
inn,“ segir Jón
Gnarr.
Byggingavinnan gaf tóninn fyr-
ir það sem koma skyldi hjá Jóni.
„Ég hlustaði mikið á útvarp. Þar
fékk ég einmitt hina orðlögðu and-
styggð á Bylgjunni. Þessi gervi-
gleði sem loðir við auglýsinga-
útvörp var í gangi allan daginn. Ég
ákvað að ef ég færi einhvern tím-
ann í útvarp myndi ég aldrei drepa
fólk úr leiðindum. ■