Fréttablaðið - 12.02.2004, Page 30
30 12. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
KVIKMYNDIR Íslandsvinurinn og
leikstjórinn Eli Roth fór á kostum
á Empire-verðlaunaafhendingunni
í London í síðustu viku en þar var
hann tilnefndur sem besti nýliðinn
fyrir hryllingsmyndina Cabin
Fever.
Hann ætlar að halda áfram á
sömu braut og vinnur nú að hand-
riti hryllingsmyndarinnar The Box
ásamt Richard Kelly sem gerði
Donnie Darko. „Hann ætlar að
framleiða myndina en ég mun leik-
stýra henni.“ The Box er byggð á
sögunni Button Button eftir Ric-
hard Matheson og hefur áður verið
notuð í Twilight Zone þætti en hún
segir frá pari sem finnur dularfull-
an kassa við útidyrnar einn daginn
í ljós kemur að kassinn er þeirri
náttúru gæddur að sá sem ýtir á
takka á honum verður umsvifa-
laust ríkur en það kostar þó að ein-
hver ókunnugur deyr um leið.
Eli er áhugasamur um hrylling
en ætlar þó ekki að festast í þeim
geira og ætlar að gera unglinga-
grínmynd í anda Porky’s mynd-
anna þegar hann hefur lokið við
The Box. „Myndin á að heita
Scavenger Hunt og það verður
mikið af líkamsvökvum á ferðinni
þar líka, en samt ekkert blóð.“
Eli sagði það mikinn heiður að
fá tilnefningu til Empire-verð-
launa og var ekki síður upp með
sér yfir því að vera tilnefndur í
sama flokki og MacKenzie Crook
sem fer á kostum í hlutverki hins
furðulega Gareths í The Office.
„Hann er snillingur,“ sagði Eli fyr-
ir afhendinguna og bætti við „Ég
hef heyrt að það sé mikið drukkið
á Empire-verðlaununum og ég
stefni að því að enda nótt með kyn-
lífi með einhverjum hinna til-
nefndu. Samt ekki MacKenzie en
hann má horfa á.“ ■
Eli í stuði hjá Empire
KVIKMYNDIR Komandi helgi verður
henni Halle Berry ekkert sér-
staklega gæfuleg. Hún lendir
nefnilega í því í myndinni Got-
hika að vera lokuð inn á geð-
veikrahæli sökuð um morð. Það
er ekkert sérstaklega þægilegt
fyrir hana þar sem hún er sjálf
sálfræðingur og þjökuð af
minnisleysi. Hún þekkir það vel
að það eru fáir sem taka geðsjúk-
linga á geðsjúkrahúsi alvarlega.
Svo er það ekki til þess að bæta
skap hennar eða líðan að hefnd-
arfullur draugur er stöðugt að
ónáða hana.
Aðrir leikmenn í Gothika eru
Robert Downey jr og Penelope
Cruz. Myndinni er leikstýrt af
Mathieu Kassovitz.
Lífið verður nú eitthvað blóm-
legra fyrir Beyonce Knowles og
Cuba Gooding jr í myndinni The
Fighting Temptations. Kannski
ekki alveg í fyrstu fyrir Cuba
sem er rekinn úr vinnu sinni á
auglýsingaskrifstofunni. Hann
er stórskuldugur og ráðalaus
þegar hann fær óvænt skilaboð
um að hann hafi fengið stórfé í
arf frá fjarskyldri frænku sinni
sem býr í smábæ í Suðurríkjun-
um. Hann fer á staðinn til þess að
sækja peningana en kemst að því
að það er maðkur í mysunni.
Áður en hann fær peningana
þarf hann að setja saman
gospelkór og vinna kóramót.
Honum lýst ekkert á blikuna í
fyrstu en svo hittir hann
Beyonce og eins og flestir karl-
menn vita gæti hún fengið hvaða
mann til þess að stýra kór.
Myndinni er leikstýrt af Jon-
athan Lynn sem gerði m.a. Clue
og The Whole Nine Yards.
Óskarsverðlaunaleikkonan
Jennifer Connelly endar á göt-
unni í myndinni House of Sand
and Fog. Hún er nýbúin að reka
fíkniefnadjöfulinn á dyr þegar
yfirvöld vísa henni á dyr, úr sínu
eigin húsi, vegna mistaka í kerf-
inu. Hún er ekkert sérstaklega
sátt við það en áður en hún veit
af er búið að selja hús hennar
fjölskyldu sem flúði frá Íran
nokkrum árum áður. Jennifer
vill heimilið sitt aftur en Ben
Kingsley, fjölskyldufaðirinn,
heldur nú ekki. Þá er barist með
kjafti og klóm.
Þetta er fyrsta mynd leik-
stjórans Vadim Perelman. Mynd-
in er tilnefnd til þriggja Ósk-
arsverðlauna. Fyrir tónlist, besta
leikara í aðalhlutverki og bestu
leikkonu í aukahlutverki. ■
ELI ROTH
Var í banastuði á Íslandi í desember. Hér er hann ásamt Brynju Valdís Gísladóttir,
leikkonu í Grease.
Captain Oveur: You ever been in a
cockpit before?
Joey: No sir, I’ve never been up in a
plane before.
Captain Oveur: You ever seen a grown
man naked?
Flugstjórinn Oveur sýnir áhugasömum unglingi
stjórnklefa flugvélarinnar í gamanmyndinni Airplane
frá árinu 1980 með stóískri ró.
AIRPLANE AIRPLANE
Bíófrasinn
SMS um myndirnar í bíó
Lost In Translation
Virkilega hugljúf og manneskjuleg kvik-
mynd. Hún hefur dáleiðandi áhrif, þökk
sé að hluta til frábærri tónlist, og nær að
hrífa áhorfandann með sér í óvenjulegt
og mjög svo skemmtilegt ferðalag. Drífið
ykkur í bíó! KD
Monster
Hér er á ferðinni óslípaður demantur. Lítil
mynd með risastórt og miskunnarlaust
hjarta... Einföld og beinskeytt leikstjórn
Patti Jenkins skilar eftirminnilegri mynd
þar sem Charlize Theron fer með leiksig-
ur. Óskarinn er hennar. KD
Something’s Gotta Give
Það sem kom mér eiginlega mest á óvart
var hversu fyndin myndin var. Hafði séð
sýnishornið og óttaðist að búið væri að
spila út öllum bröndurunum þar, en svo
er ekki. Fínasta skemmtun.
Big Fish
Glæsilegt ævintýri. Hún fær þig til að
hlæja, gráta og hrífast með. Hreinn unað-
ur frá upphafi til enda. Fimm stjörnur!
BÖS
21 Grams
Þessi mynd er stórkostleg þó hún sé ljót
og hjálpar okkur að skilja mannlega
hegðun. Það er nefnilega auðvelt að
skilja allar ákvarðanir persónanna, þó
þær séu oftast sjúkar og rangar. BÖS
The Haunted Mansion
Sem fjölskyldumynd er þetta ágætis
skemmtun og mun betra en þetta
Disneydrasl sem þjóðinni er boðið upp á
á hverjum föstudegi. Það er bara sorglegt
að sjá hvað hefur orðið af Eddie Murphy
og hvernig hann hefur þróast sem grín-
leikari. SS
The Last Samurai
Frábær hrísgrjónavestri sem svíkur ekki
enda gerist myndin í Japan í gamla daga
þegar orð eins og heiður og hugrekki skip-
tu einhverju máli. ÞÞ
Kaldaljós
Hér leikur allt í höndunum á Hilmari, börn,
fullorðnir, tónlist og myndmál, sem skilar
sér í fallegri, fagmannlegri, látlausri, sorg-
legri en fantavel leikinni eðalmynd. ÞÞ
Return of the King
Frábær mynd. Hún gefur þeim fyrri ekkert
eftir og gengur þvert á móti lengra í mikil-
fengleikanum og gulltryggir um leið að
þessi þríleikur Peters Jackson er einstakt
verk í kvikmyndasögunni, algerlega án
hliðstæðu ÞÞ
Finding Nemo
Stærsti kosturinn við myndirnar frá Pixar
er vitaskuld að þær skemmta jafnt börn-
um og fullorðnum þannig að það ætti
enginn að vera svikinn af þessum sund-
spretti um heimshöfin. ÞÞ
MONSTER
Hin annars snoppufríða leikkona Charlize
Theron þykir fara á kostum í hlutverki
hinnar stórhættulegu vændiskonu Aileen
Wuornos sem kom nokkrum mönnum
fyrir kattarnef áður en hún var handtekin
og síðar tekin af lífi.
HEIMILDARMYND Hvað eiga Gunnar
Dal heimspekingur, Sigurður G.
Tómasson útvarpsmaður, Shanil,
leigubílstjóri á Indlandi, Kaka,
forsætisráðherra fátækrahverfis
í sama landi, Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, fyrrverandi prestsfrú,
Batrun skóviðgerðarmaður, Þrá-
inn Bertelsson rithöfundur, fiski-
menn í fámennu hverfi Kalkútta,
Böðvar Markan smábátaútgerðar-
maður, Magnús Sigurðsson neta-
gerðarmaður, börn í barnaþorpi
SOS, næturvakt Lögreglunnar í
Reykjavík, húsmóðirin Shankra
og betlarar sameiginlegt?
Ólafur Jóhannesson leitaði
svara við þessari stóru spurningu
í heimildarmynd sinni Proximidas
sem verður frumsýnd um helgina.
„Manneskjan er í forgrunni og
er skoðuð með hjálp drauma,
vona, minninga og hversdagsleik-
ans þar sem atburðir, staðir og
umhverfi leika aukahlutverk.“
Nafn myndarinnar er sótt í lat-
ínu og stendur fyrir nálægð, nána
tengingu eða það sem einhverjir
eiga sameiginlegt. „Nálægðin er
viðfangsefni myndarinnar og við
leitumst við að finna í fólki það
sem gerir okkur mannleg, það
sem tengir okkur saman, þá ná-
lægð sem finna má í fjarlægðinni
milli fólks.“
Kvikmyndafélagið Popoli
framleiðir myndina en vinnsla
hennar stóð yfir í 13 mánuði og
tökur fóru fram bæði á Íslandi og
Indlandi en viðfangsefnin voru
valin af handahófi, sett saman,
stundum tengd, stundum ekki.
„Hugmyndin að þessari mynd
hefur verið í þróun í nokkurn
tíma, og tekið á sig síbreytilegar
myndir. Það er mikið hægt að
ræða þessa hugmynd á heim-
spekilegum grunni, orð sem inni-
halda ekkert annað en spekúler-
ingar.“ ■
Ólíkir heimar - sama fólkið
ÓLAFUR JÓHANNESSON
Kemst að því í heimildarmyndinni Proximidas
að Indverjar og Íslendingar eiga meira
sameiginlegt en margan kynni að gruna.
Sjúkir söngelskir sálfræðingar?
HALLE BERRY
leikur sálfræðing sem
lendir skyndilega öfugu
megin við borððið þegar
hún er sett á hæli, minnis-
laus, grunuð um morð.
GOTHIKA
Báðar hafa þær litið betur út, en þær hafa þó hvor aðra. Penelope Cruz reynir að hugga
vinkonu sína Halle Berry.