Fréttablaðið - 12.02.2004, Blaðsíða 32
22.00 Bítlarnir verða á Hverfis-
barnum í kvöld.
■ ■ FUNDIR
20.00 Trúin í almannarýminu
nefnist umræðuefni Karls Sigurbjörns-
sonar biskups á fundi í kvöld hjá aðal-
deild KFUM á Holtavegi 28. Allir karl-
menn eru velkomnir.
22.00 Kosningavaka Röskvu verður
á Grand Rokk.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
12. febrúar 2004 FIMMTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
9 10 11 12 13 14 15
FEBRÚAR
Fimmtudagur
Málstaður Palestínumanna ásterk ítök í brjóstum margra
Íslendinga. Félagið Ísland-Palest-
ína hefur staðið fyrir margvísleg-
um aðgerðum til stuðnings Palest-
ínumönnum, og í kvöld ætla
nokkrar hljómsveitir að halda tón-
leika til styrktar þessum samtök-
um.
„Manni svíður einfaldlega allt
óréttlæti og vill hafa einhvern
mannlegan streng í brjósti sínu,“
segir Ólafur Guðsteinn Kristjáns-
son, sem skipulagði tónleikana
ásamt Benedikt Reynissyni.
„Auðvitað er fjarri því að mað-
ur taki undir allar þær aðferðir
sem Palestínumenn beita í baráttu
sinni. Það eru fyrst og fremst
mannúðarsjónarmið sem eru for-
sendan að þessu.“
Allur ágóði af þessum tónleik-
um rennur til neyðarsöfnunar Fé-
lagsins Ísland-Palestína. Neyðar-
söfnunin hófst í nóvember árið
2000, fáeinum vikum eftir að síð-
ari uppreisn Palestínumanna
gegn hernámi Ísraels hófst.
Þeir Ólafur og Benedikt fengu
fimm hljómsveitir í lið með sér til
þess að spila á þessum tónleikum.
Reyndar voru hæg heimatökin
varðandi tvær hljómsveitanna,
því Ólafur Guðsteinn er sjálfur í
hljómsveitinni Örkumlum, og
báðir hafa þeir spilað með hljóm-
sveitinni Skátum. Einnig koma
fram hljómsveitirnar Manhattan,
Sofandi og Jan Mayen.
Benedikt vonast til þess að
framhald verði á tónleikahaldi
sem þessu. Fleiri hljómsveitir
hafi sýnt áhuga á að spila, en ekki
getað af ýmsum ástæðum.
„Vonandi smitar þetta út frá
sér svo fleiri fari af stað með
eitthvað álíka,“ segir Ólafur.
Fyrst og fremst er þetta tilraun
til þess að láta einhverja rödd
heyrast. Eftir því sem raddirnar
verða fleiri og háværari verða
meiri líkur á að eitthvað gerist.
Það breytist að minnsta kosti ná-
kvæmlega ekki neitt ef maður
situr bara heima hjá sér og vitn-
ar í Passíusálmaskáldið og segir:
Heimur versnandi fer.“
Tónleikarnir hefjast upp úr
klukkan níu. Aðgangseyrir er 500
krónur. Á staðnum verða jafn-
framt til sölu bolir, merki og blöð
frá Félaginu Ísland-Palestína. ■
■ TÓNLEIKAR
FÓRNARLAMB ÁTAKANNA
Þessi sex ára piltur var í hópi Palestínumanna sem særðust í gær þegar Ísraelsmenn réð-
ust á Gazaborg. Í kvöld ætla nokkrar íslenskar hljómsveitir að halda tónleika á Jóni forseta
til styrktar Félaginu Ísland-Palestína.
Spilað fyrir
Palestínumenn
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Sinfóníusveit Íslands heldur
tónleika í Háskólabíó þar sem ungir
einleikarar úr Listaháskóla Íslands leika
með sveitinni. Einleikararnir eru Gyða
Valtýsdóttir sellóleikari, Helga Þóra
Björgvinsdóttir fiðluleikari, Ingrid
Karlsdóttir fiðluleikari og Melkorka
Ólafsdóttir flautuleikari.
20.00 Hljómsveitirnar Fíkn og
Noise spila á fimmtudagsforleik Hins
Hússins. Frítt inn og 16 ára aldurstak-
mark að venju.
21.00 Guðrún Gunnarsdóttir
syngur í Gyllta salnum á Hótel Borg
ásamt hljómsveit sinni, sem skipuð er
Eyþóri Gunnarssyni, Sigurði Flosasyni,
Birgi Bragasyni og Erik Qvick.
21.30 Tríó söngkonunnar Kristjönu
Stefánsdóttur kemur fram í jazztón-
leikaröðinni á Kaffi List. Með Kristjönu
leika þeir Agnar Már Magnússon á pí-
anó og Róbert Þórhallsson á bassa.
Tónleikar til styrktar samtökunum Ís-
land-Palestína verða haldnir á Jóni for-
seta. Fram koma Skátar, Jan Mayen og
Sofandi.
20.00 Karlakór Kjalnesinga heldur
söngskemmtun í Salnum í Kópavogi
ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur. Á efnis-
skrá eru lög úr ýmsum áttum en uppi-
staðan eru sígild íslensk dægurlög sem
Óskar Einarsson hefur útsett fyrir Guð-
rúnu og kórinn. Úr röðum kórfélaga
syngja einsöng tenórarnir Jóhannes
Freyr Baldursson og Ólafur M. Magn-
ússon. Um undirleik sjá Óskar Einars-
son á píanó, Jóhann Ásmundsson á
bassa og Gunnlaugur Briem á trommur.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Tenórinn eftir Guðmund
Ólafsson í Iðnó.
20.00 Borgarleikhúsið sýnir In
Transit eftir Thalamus í samvinnu við
leikhópinn Thalamus á Litla sviðinu.
20.00 Leikhópurinn Thalamus sýn-
ir In Transit í Borgarleikhúsinu.
20.00 Borgarleikhúsið sýnir Öfugu
megin uppí eftir Derek Benfield.
20.00 Öfugu megin uppí eftir Der-
ek Benfield á stóra sviði Borgarleik-
hússins.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Strákarnir í Dúndurfréttum
verða með best of Pink Floyd og Led
Zeppelin á Gauknum.
Miðasalan, sími 568 8000
STÓRA SVIÐ
CHICAGO
eftir J.Kander, F.Ebb og B.Fosse
Fö 13/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 14/2 kl 20 - UPPSELT
Su 15/2 kl 20 - UPPSELT
Fö 20/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 21/2 kl 20 - UPPSELT
Su 22/2 kl 20 - UPPSELT
Lau 28/2 kl 20 - UPPSELT
Su 29/2 kl 20 - UPPSELT
Mi 3/3 kl 20 - UPPSELT
Fö 5/3 kl 20 - UPPSELT
Lau 6/3 kl 20 - UPPSELT
Su 7/3 kl 20 - UPPSELT
Fö 19/3 kl 20 - UPPSELT
Lau 20/3 kl 20 - UPPSELT
Fi 25/3 kl 20 - UPPSELT
Fö 26/3 kl 20 - UPPSELT
Lau 27/3 kl 20 - UPPSELT
Fi 1/4 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 2/4 kl 20 - UPPSELT
Lau 3/4 kl 15 - AUKASÝNING
Lau 3/4 kl 20 - UPPSELT
Fö 16/4 kl 20
Lau 17/4 kl 20 - UPPSELT
Su 18/4 kl 20
Fi 22/4 kl 20
Fö 23/4 kl 20
Lau 24/4 kl 20
Ósóttar pantanir seldar daglega
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Lau 14/2 kl 14 - UPPSELT
Su 15/2 kl 14 - UPPSELT
Su 22/2 kl 14 - UPPSELT
Lau 28/2 kl 14 - UPPSELT
Su 7/3 kl 14
Lau 13/3 kl 14
Su 14/3 kl 14
Su 21/3 kl 14
Su 28/3 kl 14
ÖFUGU MEGIN UPPÍ
e. Derek Benfield
Í kvöld kl 20
Lau 13/3 kl 20
Síðustu sýningar
NÝJA SVIÐ OG LITLA SVIÐ
DRAUGALEST
e. Jón Atla Jónasson
FRUMSÝNING mi 18/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 19/2 kl 20
Fi 26/2 kl 20
Fö 27/2 kl 20
SPORVAGNINN GIRND
e. Tennessee Williams
Fö 13/2 kl 20
Lau 14/2 kl 20
Fö 20/2 kl 20
Su 22/2 kl 20
Lau 28/2 kl 20
Su 29/2 kl 20
Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst
ERLING
eftir Hellstenius/Ambjörnssen
Su 15/2 kl 20
Lau 21/2 kl 20
Aðeins þessar sýningar
IN TRANSIT
e. THALAMUS
í samvinnu við leikhópinn THALAMUS
Í kvöld kl 20
Fi 19/2 kl 20
Lau 21/2 kl 14:30 - Á Reykjavíkurflugvelli!
Su 22/2 kl 14
Fi 26/2 kl 20
Fö 27/2 kl 20
Sýningin er á ensku. Aðeins þessar sýngingar
GLEÐISTUND:
FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU.
VIÐ MINNUM KORTAGESTI Á VALSÝNINGAR
FIMMTUDAGINN 12. FEBRÚAR KL. 19:30
UNGIR EINLEIKARAR ÚR LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Jean Sibelius ::: Fiðlukonsert
Dímitríj Sjostakovitsj ::: Sellókonsert
Jacques Ibert ::: Flautukonsert
Johannes Brahms ::: Fiðlukonsert
Hljómsveitarstjóri ::: Niklas Willen
Einleikarar ::: Gyða Valtýsdóttir, selló
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Ingrid Karlsdóttir, fiðla
Melkorka Ólafsdóttir, flauta
LISTASAFN KÓPAVOGS
gerðarsafn, hamraborg 4
12. des - 22. feb
opnunartímar:
alla daga nema mánudaga
kl. 11 - 17
leiðsögn:
miðvikud. og fimmtud. kl. 12
laugard. og sunnud. kl. 15
www.carnegieartaward.com
Nina Roos
c a r n e g i e
a r t
awa r d
2 0 0 4
SI
ÐA
ST
A
SÝ
NI
NG
AR
VI
KA
!
Foreldrar -
Stöndum saman
Leyfum ekki eftirlitslaus
unglingapartý.