Fréttablaðið - 20.02.2004, Page 4
4 20. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
Á ríkið að styrkja starfsemi hvala-
skoðunarfyrirtækja?
Spurning dagsins í dag:
Nást kjarasamningar án verkfalla?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
77,5%
13,9%
Nei
8,7%Alveg sama
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Evrópa
Vísindamenn telja sig hafa sannanir fyrir afli svarthola:
Svarthol tætti
stjörnu í sundur
LOS ANGELES, AP Vísindamenn hafa í
fyrsta skipti náð myndum af því að
svarthol rífi stjörnu í sundur og
gleypi í sig hluta hennar. Frá þessu
var greint á dögunum en þrátt fyrir
að menn hafi lengi grunað að svart-
hol gætu gert þetta hafa ekki fund-
ist áþreifanlegar sannanir fyrir því
áður.
„Þetta er mjög merk uppgötvun.
Þetta er einn af helgu kaleikum
stjörnufræðinnar,“ sagði stjörnu-
fræðingurinn Alex Filippenko.
Sprenging í 700 milljón ljósára
fjarlægð frá jörðu vakti athygli
vísindamanna á atburðum sem
áttu sér stað í stjörnuþoku sem
hefur hingað til látið lítið yfir sér.
Alþjóðlegt lið vísindamanna telur
að sprengingin hafi átt sér stað
þegar svartholið dró stjörnuna til
sín þannig að hún brotnaði í sund-
ur. Hlutar hennar drógust inn í
svartholið en stærstur hluti þeytt-
ist út í geiminn.
Svartholið sem um ræðir er
talið að massa á við hundrað sólir
á borð við okkar en stjarnan sem
svartholið reif í sundur var á
stærð við sólina. ■
Innkaupastjóri dró sér
tjaldvagn og sex bíla
Starfsmaður Sölunefndar varnarliðseigna ákærður fyrir 10 brot. Fjárdráttur
nemur fjórum milljónum. Skráði bíl á sambýliskonu og tjaldvagn á frænku.
Stórfelld viðskipti um nokkurra mánaða skeið. Játar brot sín skýlaust.
SVIK Fyrrverandi innkaupastjóri
Sölunefndar varnarliðseigna hefur
verið ákærður fyrir fjárdrátt,
skjalafals, umboðssvik og rang-
færslu skjala. Ákæran er í 10 liðum
og snýr að brotum sem framin voru
frá seinnihluta ársins 2001 til
haustsins 2002 þegar upp komst um
athæfi hans.
Maðurinn starfaði á Keflavíkur-
flugvelli þar sem hann annaðist inn-
kaup fyrir Sölunefndina. Meðal þess
sem hann aðhafðist var að selja flat-
vagna til fyrirtækis í Keflavík í
nafni Sölunefndar en rangfæra
sölunótur. Þannig hagnaðist hann
um 600 þúsund krónur. Þá falsaði
hann sölunótur á þvottavélum og
tækjum sem seld voru þvottahúsi og
hagnaðist þar um
820 þúsund krón-
ur.
Þá keypti hann
Opel-bifreið á
Vellinum og
skráði á sambýl-
iskonu sína með
þeim hætti að svo
virtist sem við-
skiptin væru á
vegum Sölu-
nefndarinnar. Mestan hagnað hafði
innkaupastjórinn af kaupum á
Toyota-jeppa sem hann keypti af
varnarliðsmanni og seldi síðan þrið-
ja aðila undir því yfirskyni að um
væri að ræða viðskipti Sölunefndar-
innar. Hann hagnaðist um 1,8 millj-
ón króna, meðal annars með því að
losna við að greiða aðflutningsgjöld.
Þá dró innkaupastjórinn sér tjald-
vagn sem hann gaf frænku sinni.
Alls dró innkaupastjórinn sér
verðmæti af sex bifreiðum með
þessum hætti. Þá átti hann í svipuð-
um viðskiptum með hliðgrindur sem
hann seldi. Mál þetta hefur verið til
rannsóknar hjá Lögreglustjóranum
á Keflavíkurflugvelli sem er sækj-
andi í málinu.
Tengt þessu máli komu upp grun-
semdir um að ekki hefði verið allt
með felldu í bókhaldi Sölunefndar-
innar, seinna Umsýslustofnunar
varnarliðsins. Ríkisendurskoðun tók
bókhaldið til rannsóknar en komst
ekki til botns í málum og skilaði ekki
afgerandi niðurstöðu en gagnrýndur
var skortur á formlegum reglum
bæði um framkvæmd útboða og
þátttöku starfsmanna í tilboðum.
Slíkt var sagt vera í ósamræmi við
góða stjórnsýslu. Fram kom að alls
hefðu fjórir starfsmenn Sölunefnd-
ar keypt 19 bíla.
Ákærði hefur játað brot sín ský-
laust og bíður ný dóms.
rt@frettabladid.is
JOHN KERRY
Demókratar færu með sigur af hólmi ef
boðað yrði til forsetakosninga nú,
samkvæmt nýrri könnun.
Ný könnun:
Bush út úr
Hvíta húsinu
WASHINGTON George W. Bush
Bandaríkjaforseti ætti ekki aftur-
kvæmt í Hvíta húsið ef boðað yrði
til forsetakosninga nú, ef marka má
nýja Gallup-könnun. Demókratarn-
ir John Kerry og John Edwards
njóta báðir meiri stuðnings meðal
bandarískra kjósenda en Bush.
Kerry, sem leiðir prófkjör
Demókrataflokksins, fengi 55%
atkvæða en Bush aðeins 43%. Ef
Edwards væri í framboði fyrir
demókrata fengi hann 54% atkvæða
en Bush 44%. Kosningastjóri Bush
segir að þessar niðurstöður komi
ekki á óvart þar sem mikil fjöl-
miðlaumfjöllun hafi verið um próf-
kjör demókrata að undanförnu.
Könnunin var gerð fyrir CNN og
USA Today. ■
Kópavogur:
Fáir nota
endurskin
LÖGREGLAN Lögreglan í Kópavogi
gerði könnun á notkun endurskins-
merkja við tvo grunnskóla í bæn-
um. Við annan skólann reyndust um
90 prósent nemenda ekki vera með
endurskin og um 60–70 prósent við
hinn skólann. Myrkur var, mikil
rigning og rok þegar könnunin var
gerð. Lögreglan vill minna foreldra
á að passa upp á börnin þeirra sjáist
í slæmu skyggni. ■
www.landsbanki.is
sími 560 6000
Varðan - alhliða fjármálaþjónusta
Nokkrir punktar um
beinharða peninga!
Beinharðir peningar fyrir punkta
Fram til 29. febrúar geta Vörðufélagar innleyst Landsbanka -
punktana sína fyrir beinharða peninga og lækkað þannig
bankakostnað sinn milliliðalaust. Þannig gefa til dæmis 10
þúsund punktar 5 þúsund krónur.
Þú getur óskað eftir innlausn bankapunkta á www.landsbanki.is
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
23
55
9
02
/2
00
4
Umferðarslys í Húnavatnssýslu:
Alvarlega slasaðar
á gjörgæslu
BÍLSLYS Kona og stúlkubarn sem
lentu í alvarlegu umferðarslysi, í
Húnavatnssýslu í fyrrakvöld, eru
báðar alvarlega slasaðar á gjör-
gæsludeild Landspítalans. Konan
er í öndunarvél að sögn vakthaf-
andi læknis á gjörgæsludeild.
Ökumaður bílsins slasaðist
minna.
Slysið varð þegar jeppabifreið,
sem fólkið var í var ekið aftan á
grjótflutningabíl skammt frá
Blönduósi. Grjótflutningabíllinn,
sem var fulllestaður af grjóti,
hafði bilað og var kyrrstæður og
ljóslaus á veginum. Myrkur var
og mjög slæmt skyggni þegar
slysið varð. Að sögn lögreglu
gerðist þetta skömmu eftir að
grjótaflutningabíllinn bilaði og
var bílstjórinn að hringja til að fá
aðstoð. Lögregla segir honum
ekki hafa gefist ráðrúm til að gera
ráðstafanir vegna þeirrar hættu
sem skapaðist.
Viðmælandi Fréttablaðsins,
sem var farþegi í bíl, varð var við
grjótflutningabílinn skömmu fyr-
ir slysið. Bíllinn sem hann var í
var að koma úr gagnstæðri átt.
Ökumaður bílsins ætlaði að taka
fram úr öðrum bíl þegar bílstjóri
þess bíls gerði viðvart með því
rása á veginum og kom með því í
veg fyrir tilraun til framúrakst-
ursins og bjargaði þar með að bíll-
inn lenti framan á grjótflutninga-
bílnum á miklum hraða. ■
Stuðlar:
Kveiktu í dýnu
ELDUR Unglingar, sem eru vistmenn
á meðferðarheimilinu Stuðlum,
kveiktu í dýnu í einu herberginu
rétt eftir klukkan eitt í fyrrinótt.
Slökkvilið höfðuborgarsvæðisins
kom og slökkti eldinn sem var stað-
bundinn í dýnunni að mestu. Mikill
reykur var á í húsinu og tók
nokkurn tíma að reykræsta.
Skemmdir voru aðallega af völdum
sóts og reyks. ■
HERMENN KREFJAST BÓTA Rúm-
lega fjögur þúsund Ítalir hafa kraf-
ist bóta frá Þjóðverjum fyrir að
hafa verið hnepptir í nauðungar-
vinnu á tímum síðari heimsstyrj-
aldar. Réttarhöld hófust í Berlín í
gær í máli tveggja fyrrum her-
manna sem voru færðir í þræla-
búðir nasista eftir að Ítalía gafst
upp fyrir bandamönnum 1943.
SEX ÁKÆRÐIR FYRIR AÐ MYRÐA
BARN Saksóknarar í Saarbrücken í
Þýskalandi hafa ákært sex manns
fyrir að myrða fimm ára gamlan
dreng eftir að hafa misnotað hann
kynferðislega. Brotin voru framin
fyrir tveimur árum, í bakherbergi
á krá skammt frá heimili drengs-
ins. Lík barnsins hefur aldrei fund-
ist en ákærurnar er byggðar á vitn-
isburði sjö vitorðsmanna.
Loðnukvótinn:
240 þúsund
tonna viðbót
SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsráð-
herra ákvað í gær að auka loðnu-
kvóta á Íslandsmiðum úr 635 í
875 þúsund lestir. Aukningin
sem ákveðin var í gær kemur öll
í hlut íslenskra fiskiskipa.
Heildarkvóti Íslendinga er
því 737.345 lestir en Íslendingar
eiga en í fyrradag voru 270 þús-
und lestir eftir til veiða og sú
tala því enn hærri nú eftir aukn-
inguna í gær. ■
STJARNA RIFIN Í SUNDUR
Listamaður á vegum NASA hefur teiknað þessa mynd byggða á myndum og útreikningum
vísindamanna. Hún sýnir stjörnuna dragast að svartholinu og tætast í sundur.
Kjarnorkuúrgangur:
Hætta á að
geymsla leki
NEVADA, AP Geymsla fyrir kjarn-
orkuúrgang sem stendur til að
byggja í Nevada í Bandaríkjun-
um er illa hönnuð og hætta á að
geislavirkur úrgangur kunni að
leka út sagði vísindamaðurinn
Paul Craig sem sagði sig úr sér-
fræðingaráði sem unnið hefur
að undirbúningi málsins. Hann
segist hafa sagt sig úr ráðinu til
að geta betur tjáð sig um hætt-
urnar.
Stefnt er að því að kjarnorku-
úrgangsgeymslan í Yuccafjalli
hefji að taka við úrgangi árið
2010. Úrganginn á að geyma í
málmgeymslum en Craig segir
hættu á að þær muni leka. ■
VARNARLIÐIÐ
Innkaupastjórinn beitti ýmsum brögðum til þess að hagnast ólöglega á vörum
sem hann hafði umsýslu með.
„Mestan
hagnað hafði
innkaupa-
stjórinn af
kaupum á
Toyota-jeppa.