Fréttablaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 16
16 20. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR
FEITI FIMMTUDAGURINN
Leiðindaveður setti mark sitt á hátíðahöld
á Giovedi Grasso eða feita fimmtudegi á
Ítalíu í gær. Veðrið hafði þó verið með
besta móti framan af mánuðinum.
BRUSSEL, AP Forystumenn gyðinga
krefjast þess að Evrópusamband-
ið beiti sér gegn vaxandi gyðinga-
hatri á álfunni.
„Gyðingar í Evrópu búa við
ótta. Hvers vegna heyrum við
enduróm 20. aldarinnar á 21. öld-
inni? Höfum við ekkert lært?“
sagði friðarverðlaunahafinn Elie
Wiesel á málþingi ESB um for-
dóma í garð gyðinga. Á meðal
þátttakenda voru Romano Prodi,
forseti framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, Joschka
Fischer, utanríkisráðherra Þýska-
lands, og Nathan Sharanasky, ráð-
herra í ísraelsku ríkisstjórninni.
Ýmislegt bendir til þess að
andúð á gyðingum hafi vaxið sam-
fara aukinni hörku í deilu Ísraela
og Palestínumanna. Margar árás-
ir á bænahús, skóla og grafreiti
gyðinga hafa verið raktar til
ungra innflytjenda frá Arabalönd-
um.
Samtök gyðinga hafa gagnrýnt
stjórnvöld í Evrópu fyrir að taka
ekki nógu hart á málunum og jafn-
vel ýta undir gyðingahatur með
óréttmætri gagnrýni á stefnu
ísraelskra stjórnvalda. Á mál-
þinginu hét Prodi því að Evrópu-
sambandið myndi beita sér fyrir
þyngri refsingum fyrir árásir og
betri fræðslu um ofsóknir gegn
gyðingum í evrópskum skólum. ■
SJÁVARÚTVEGUR Flest bendir til þess
að brottkast á fiski hafi minnkað
verulega á Íslandsmiðum á síð-
ustu fjórum til fimm árum. Árni
M. Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra kynnti niðurstöður úr skoð-
anakönnun sem IMG Gallup hefur
framkvæmt meðal sjómanna á
blaðamannafundi í gær. Á fundin-
um voru einnig kynntar niður-
stöður mælinga Hafrannsókna-
stofnunar.
Báðar kannanirnar gefa sterk-
ar vísbendingar um að töluvert
hafi dregið úr brottkasti á síðustu
árum. Árni segir niðurstöðurnar
vera gleðilegar. „Þetta bendir til
þess að það sé hægt að gera hluti
sem hafa áhrif á þetta í jákvæða
átt,“ segir hann.
Niðurstaða skoðanakönnunar
meðal sjómanna bendir til þess að
brottkast á þorski hafi minnkað
mjög verulega frá því síðast var
gerð könnun árið 2000. Þá sögðu
71,1% þeirra sjómanna sem orðið
höfðu varir við brottkast að
þorski hafi verið hent, en nú er
hlutfallið 38,5%. Í könnuninni
voru 950 sjómenn í úrtaki og svar-
hlutfallið 66%. Sá munur er á úr-
takinu nú og árið 2000 að engir
smábátasjómenn eru í nýrra úr-
takinu. Þetta mun stafa af því að
skráning þeirra er ófullnægjandi.
Aðspurður um það hvort vera
mætti að gögnin væru ósambæri-
leg og hvort líklegt væri að smá-
bátasjómenn hentu meiri afla en
aðrir sjómenn svaraði Árni: „Ekki
myndi ég þora að segja það“.
Í könnun Gallups kemur fram
að 43% sjómanna telja að brott-
kast hafi minnkað á síðustu þrem-
ur árum, 17% að það hafi aukist.
Þegar sama spurning var lögð fyr-
ir sjómenn árið 2000 töldu 36% að
brottkast hefði aukist á árunum
þremur á undan en 25% að það
hefði minnkað.
Þegar sjómenn voru beðnir að
meta hversu háu hlutfalli af afla-
verðmæti kastað væri í hafið
töldu næstum fimm af hverjum
sex, 82,3%, að það væri minna en
1% af heildaraflaverðmæti en
aðeins 2,5% töldu að yfir 6% af
aflaverðmæti væri varpað aftur í
sjóinn.
Niðurstöður úr mælingum
Hafrannsóknastofnunar benda í
sömu átt. Samkvæmt þeim var
brottkast miklum mun minna á ár-
unum 2001 og 2002 heldur en á
tíunda áratuginum.
thkjart@frettabladid.is
Viðvörun frá SÍF:
Afkoman
lakari
VIÐSKIPTI Afkoma SÍF fyrir rekstr-
arárið 2003 er töluvert undir áætl-
un félagsins. Mestu frávik voru á
Íslandi, Frakklandi og Kanada auk
þess sem gjaldfærður var sérstak-
ur kostnaður vegna lokunar starfs-
stöðva félagsins í Japan og Brasil-
íu sem og vegna uppgjörs á ráðn-
ingarsamningi fyrrverandi for-
stjóra. Gunnar Örn Kristjánsson,
forstjóri félagsins, lét af störfum
um síðustu mánaðamót að eigin
ósk. Hagnaður félagsins verður
undir einni milljón evra. ■
NEYTENDAMÁL Meðalviðskiptavinur
banka á Ísland greiðir lægri þjón-
ustugjöld til banka heldur en við-
skiptavinir banka í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð. Þetta kemur
fram í skýrslu GJ-fjármálaráð-
gjafar sem unnin var fyrir Sam-
tök banka og sparisjóða.
Í könnuninni eru gjöld vegna
27 þjónustuþátta skoðuð og miðað
er við verð samkvæmt verðskrá.
Fengnar voru upplýsingar frá ís-
lenskum bankastofnunum um
meðalnotkun viðskiptavina á hin-
um ýmsu þjónustuþáttum. Út frá
þeim gögnum var reiknað út hver
kostnaður við þau viðskipti eru
samkvæmt verðskrá á Íslandi og í
samanburðarlöndunum.
Meðalgjöld miðað við íslenska
notkun eru 3.172 krónur á ári á Ís-
landi en að meðaltali 13.205 á hin-
um löndunum; þó sýnu lægst í
Danmörku eða 5.821 króna á ári.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, segir að
niðurstöður GJ-fjármálaráðgjafar
gangi þvert á það sem samtökin
hafa haldið fram. „Okkur sýnist
forsendur þessarar könnunar
vera frekar veikar en við erum að
skoða það,“ segir Jóhannes. ■
MÁLÞING UM GYÐINGAHATUR
Forystumenn gyðinga í Evrópu voru saman
komnir á málþingi Evrópusambandsins
um fordóma í garð gyðinga.
Evrópusambandið stendur fyrir málþingi um gyðingahatur:
Barist gegn vaxandi fordómum
Skilorðsbundið fangelsi:
Flýðu undan
lögreglu
DÓMUR Tveir rúmlega tvítugir menn
voru dæmdir í sex mánaða fangelsi,
skilorðsbundið til þriggja ára, í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær, fyrir
umferðarlagabrot og brot gegn lög-
um um ávana- og fíkniefni.
Mennirnir voru á flótta undan
lögreglu frá Garðabæ til Kópavogs.
Ökumaðurinn hirti ekki um umferð-
areglur á flóttanum. Þá henti far-
þeginn rúmum 90 grömmum af
hassi og eitt hundrað e-töflum út um
hliðarrúðu bílsins á flóttanum. Ann-
ar mannanna var í öðru tilfelli tek-
inn fyrir of hraðan akstur innan-
bæjar og hafði að auki ekki endur-
nýjað ökuleyfi sitt. ■
Skýrsla um þjónustugjöld banka á Norðurlöndum:
Segir gjöldin vera lægri hér
HEILDARGJÖLD Á ÁRI
Ísland Danmörk Svíþjóð Noregur
Tékkar 78 156 1.480 1.368
Reikningsyfirlit 139 19 107 453
Debetkort 2.108 420 2.209 5.478
Millifærslur og greiðsluseðlar 404 4.354 10.268 8.353
Netbanki 443 866 1.508 1.587
Símabanki 0 6 904 78
Samtals 3.172 5.821 16.476 17.317
Heimild: GJ-fjármálaráðgjöf
VERKFALLI LOKIÐ Flugumferð um
Orly-flugvöll suður af París komst
í samt horf eftir að flugumferðar-
stjórar náðu samkomulagi við
flugmálayfirvöld í Frakklandi.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA KYNNIR NIÐURSTÖÐUR
Sjávarútvegsráðherra ásamt Ármanni K. Ólafssyni, aðstoðarmanni sínum, Vilhjálmi Egils-
syni ráðuneytisstjóra og Ólafi Karvel Pálssyni hjá Hafrannsóknastofnun.
Brottkast virðist hafa
minnkað síðustu ár
Sjávarútvegsráðherra telur brottkast hafa minnkað á síðustu árum. Skoðanakönnun og gögn Hafró
benda til þess. Hann segir ánægjulegt að sjá að hægt sé að ná árangri í þessu með aðgerðum.
39%
staðið í stað
2000 2004
25%
minnkað
36%
aukist 40%
staðið í stað
17%
aukist
43%
minnkað
Afstaða sjómanna um hvort brottkast hafi aukist á síðustu þremur
árum. Svör árið 2000 og 2004.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■ EVRÓPA