Fréttablaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.02.2004, Blaðsíða 22
Ég hef tekið eftir að tiltölulegafáir þeirra sem tekið hafa þátt í allsérstæðri umræðu um fjölmiðla á undanförnum vikum eru sammála mér um að fjölmiðlar spegli samfé- lagið fremur en að móta þá. Hug- myndin um ægivald fjölmiðla yfir mannfólkinu er vinsælli – eða mild- ari útgáfa hennar um dagskrárvald fjölmiðla; að þeir stjórni umræð- unni í samfélaginu sem hliðverðir hennar og geti valið hvaða mál komast á dagskrá hverju sinni. Gallinn við þessa kenningu er sá að erfitt er að sjá hvernig fjölmiðlar geta staðið gegn umræðu um tiltek- in mál ef löngun til hennar er til staðar í samfélaginu, eða hvernig fjölmiðlar geta blásið upp umræðu um eitthvað sem fáir ef nokkrir hafa áhuga á. Vissulega er hægt að sjá slíkt fyrir sér – og verðum við vitni að því að yfir okkur hvolfist sviðsett umræða – en ég efast um að menn séu að tala um slíkt. Svið- sett umræða – hvort sem hún er bú- in til af fjölmiðlum eða hagsmuna- hópum – fellur fljótlega dauð niður og hefur því engin teljandi áhrif, nema menn vilji mæla áhrif í dálksentímetrum eða mínútum. En það má velta fyrir sér vald- inu úti í samfélaginu með öðrum hætti og spyrja hvort stjórnmála- flokkar móti samfélagið eða samfé- lagið flokkana. Hvort er algengara og hvort er sterkara? Ég held að stjórnmálaflokkar nái mestum áhrifum þegar þeir vinna í takt við samfélagið. Það sama má segja um stjórnmálamenn. Þeir eru áhrifa- mestir þegar þeir lenda í óskastöð- unni að vera réttir menn á réttum tíma. Stjórnmálamenn sem laga sig ekki að samfélagsstraumum hafa sjaldnast nokkur áhrif. Í mesta lagi geta þeir orðið athyglisverðir hugs- uðir til seinni tíma endurvinnslu. Sama á við um stjórnmálaflokka. Jafnvel fjölmennir flokkar með gott fylgi ná minni áhrifum þegar þeir vinna gegn meginstraumum í samfélaginu en þegar þeir nýta sér þá. Og þá má spyrja hvar valdið liggi í raun. Tilboð samfélagsins til stjórn- málaflokka og -manna er ef til vill ekki opnara en svo að ef flokkarn- ir og mennirnir framkvæma vilja samfélagsins þá magnast upp áhrif þeirra. Ef þeim tekst ekki að vinna stefnu sinni fylgi eða mark- miðum sínum stuðning hverfa jafnframt áhrifin. Menn geta neit- að að beygja sig undir þessi kjör og notað völd sín um tíma – en slíkt er á endanum aldrei annað en misnotkun. Vald stjórnmálamanna og -flokka er af þeim sökum um- boðsvald – ekki aðeins í þeim skilningi að þeir þurfa að sækja vald sitt til umboðsmanna sinna á fjögurra ára fresti heldur er vald þeirra í raun bundið við að vinna í góðri sátt við samfélagið. Gallinn við svona mynd af sam- félaginu er sá að valdsmennirnir verða ekki jafn stórir og afgerandi. Það er það gjald sem við greiðum við lýðræðislega samfélagshætti. ■ Ekkert af því sem fram kom ígær var þess eðlis að aðra en lögregluna varðaði um það,“ skrifar pistlahöfundur á and- riki.is í gær í tilefni af blaða- mannafundi lögreglunnar vegna líkfundarins á Neskaupstað. Lög- reglan hefur verið harðlega gagn- rýnd af fjölmiðlafólki fyrir að gefa ekki nægilegar upplýsingar um gang rannsóknarinnar. Pistla- höfundur andríkis, eða Vefþjóð- viljans eins og síðan heitir, gefur hins vegar lítið fyrir þá gagnrýni. „Fólki liggur ekkert á að vita hversu mörg grömm af fíkniefn- um fundust í manninum eða hvernig lík hans var farið. Hugs- anlega má segja að ef teikningu af honum hefði verið dreift fyrr þá hefði það getað skilað einhverjum vísbendingum en „almenningur“ á enga heimtingu á slíkum mynda- sýningum og vitanlega verður lögreglan að hafa töluvert frelsi til að ákveða, í ljósi rannsóknar- innar hverju sinni, hvað hún segir og hvað ekki. Æsingur frétta- manna í gær virðist ekki í nokkru samhengi við eðli málsins heldur fremur til marks um óþolinmæði þeirra sem vilja láta allt fyrir sig gera, vilja fá allt upp í hendurnar og telja sig yfir aðra setta,“ skrif- ar pistlahöfundur. Fjölmiðlar hafa ekki umboð Og pistlahöfundur heldur áfram: „Má ekki nota þetta tæki- færi til að minna á annað atriði og tengist hátíðleikasvipnum sem sumir fjölmiðlamenn setja gjarn- an upp þegar einhver lætur eins og þeir séu ekki það merkilegasta í veröldinni. Fjölmiðlar eru ekki fulltrúar „almennings“ og hafa ekkert umboð frá honum. Að minnsta kosti er fráleitt að einka- reknir fjölmiðlar hafi nokkurt slíkt umboð og varla aðrir heldur. Fjölmiðlar eru einfaldlega fyrir- tæki sem haldið er úti af einhverj- um hvötum, hvort sem þær eru að afla eigendunum fjár, áhrifa eða annars. Fjölmiðlafyrirtæki er ein- faldlega fyrirtæki eins og önnur og hafa ekkert opinbert umboð til nokkurs hlutar. Þó einhver fjöldi fólks fylgist með fjölmiðlinum þá veitir það honum ekkert umboð heldur. Og áhugi á einhverju máli veitir heldur engan rétt til upplýs- inga um það.“ Þörf á tengilið við fjölmiðla Friðrik Þór Guðmundsson blaðamaður skrifar á press.is, vef Blaðamannafélags Íslands, og er ekki á sama máli og pistlahöfund- ur andríkis: „Ég get skilið að í miklum erli í upphafi rannsóknar fari það fram hjá mönnum að eiga samskipti við fjölmiðla. En það er þá aðallega vegna þess að ekki er gert ráð fyrir slíkum samskiptum. Það virkar ekki á mig að segja að fréttatilkynning hafi verið send út og að síðan hafi verið ætlunin að hafa samband við fjölmiðla þegar „eitthvað“ væri að frétta. Með svona stórmál í höndunum þýðir lítið fyrir lögregluna að segja við fjölmiðlamenn: Bíðið bara, við skulum ritstýra þessu fyrir ykkur. Það er til marks um skilningsleysi á fjölmiðlunum að halda að svon- leiðis gangi málin fyrir sig. Við skulum ekki gleyma því að hér er (sem betur fer) um sjald- gæfan atburð að ræða og að það er ekki á hverjum degi sem reyn- ir á að samskipti lögreglunnar og fjölmiðlamanna séu snuðrulaus. Við höfum þó lent í svona kring- umstæðum áður og ættum að hafa lært af því (morðið í Stóra- gerði kemur upp í hugann). Lög- reglan á að vita mætavel um að undir slíkum kringumstæðum þarf ótvíræðan tengilið við fjöl- miðla. Og sá tengiliður á að geta haft meira fram að færa en: Það er ekkert að frétta – við höfum samband“. ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um stjórnmálaflokka sem spegil samfélagsins. 22 20. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Rafpóstur auglýsingadeildar: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Í þessum pistli verður ekki fjall-að um samskipti lögreglunnar á landsvísu og sjónarmið lögreglu- yfirvalda á Eskifirði varðandi samskipti við fjölmiðla í tengslum við rannsókn á líkfundinum í Nes- kaupstaðarhöfn. Þetta mál mun ekki rætt hér þrátt fyrir það sjón- armið sem m.a. kom fram á blaða- mannafundi í fyrradag hjá Arnari Jenssyni, aðstoðaryfirlögreglu- þjóni hjá Ríkislögreglustjóra, að það réttlætti dónaskap og hunsun lögreglu á fjölmiðlamönnum að lögreglan teldi að það þjónaði ekki rannsóknarhagsmunum að tala við fjölmiðlafólk. Í þessum pistli verður horft til Ameríku. Barbara Cochran, forseti Sam- taka fréttastjóra á ljósvakamiðl- um í Bandaríkjun- um, ritaði fyrir rétt rúmu ári áhuga- verða grein í Amer- ican Journalism Review og vakti undirritaður um svipað leyti athygli á þessari grein á vef Blaðamannafé- lagsins, press.is. Greinin heitir ‘’Að- gangur bannaður’’ og fjallar um þá uppstyttu sem orðið hefur í óformlegu upplýs- ingaflæði frá opinberum aðilum þar í landi til fréttamanna eftir hryðjuverkin 11. september 2001. Barbara Cochran telur að hér sé á ferðinni víðtæk tilhneiging, eins konar lokunarheilkenni, varðandi upplýsingaflæði, sem sé farin að hafa veruleg áhrif á almenn sam- skipti og sambandið milli stjórn- valda, fjölmiðla og almennings. Leyniskyttumálið Hún bendir á að þetta heilkenni – sem stundum lýsi sér í opnum árekstrum fjölmiðla og yfirvalda, hafi komið berlega fram í sam- skiptum fjölmiðla við lögreglu- yfirvöld þegar mál leyniskyttunn- ar illræmdu á Washington-svæð- inu stóð sem hæst árið 2002. Í leyniskyttumálinu skiptust reyndar á skin og skúrir í þessum samskiptum, en lögregluyfirvöld voru sérstaklega áhugasöm um að stjórna algerlega upplýsingaflæð- inu um málið og gagnrýndu harð- lega fjölmiðla, sem fóru í loftið með eða birtu fréttir sem þeir höfðu ekki fengið staðfestar eða heimild fyrir hjá yfirvöldum. Gagnrýnin beindist þá að því að slíkar fréttir spilltu fyrir rann- sókn málsins. Í slíkum tilfellum átti stjórnandi rannsóknarinnar, Charles Moose lögreglustjóri, til að veitast opinberlega að fjölmiðl- um og saka þá um ábyrgðarleysi. Þess á milli var samvinna við lög- regluyfirvöld góð og lögreglan notaði fjölmiðla til að koma mikil- vægum upplýsingum á framfæri, upplýsingum sem fjölmiðlamenn voru sammála lögreglu um að al- menningur ætti heimtingu á að fá að vita um. Það var svo, eins og Barbara Cochran bendir á í grein sinni, einmitt fyrir tilstuðlan óstaðfestra upplýsinga – sem fóru út í óþökk lögregluyfirvalda og fjölmiðlar greindu frá í fréttum – að leyniskyttan og vitorðsmaður hennar fundust á endanum. Upp- lýsingarnar um bílinn og númera- plöturnar, sem fjölmiðlar höfðu sagt frá, urðu til þess að vörubíl- stjóri heyrði um númerið í útvarpi og lét vita af bílnum og reyndust ódæðismennirnir þá vera þar sof- andi. Fréttalindir þorna Barbara Cochran fullyrðir að þessi „umhyggja“ fyrir öryggis- málum – sem settu með svo afger- andi hætti mark sitt á leyniskyttu- málið – hafi áhrif víðar í banda- rísku samfélagi, jafnvel á stöðum þar sem blaðamenn eru vanir að hafa aðgang að upplýsingum og hafa talið það sjálfsagðan hluta af hinu lýðræðislega kerfi. Þannig segir hún að margar fréttalindir, sem hafi verið drjúgar frétta- mönnum til skamms tíma, hafi nú þornað upp. Enn er andrúmsloftið þannig að almenningur lætur sig hafa þetta ástand, að sögn Cochran. Fólk er hins vegar farið að spyrja margra spurninga, ekki síst um eigið öryggi. Enda telur hún að bæði stjórnvöld og fjölmiðlar geti mikið lært af því hvernig leyniskyttumálið þróaðist. Báðir aðilar þurfi að taka tillit til hins – en fráleitt sé af stjórnvöldum að halda að fjölmiðlar muni eða eigi að láta sér nægja að taka ein- göngu við fréttatilkynningum og hlusta á hvað sagt er á blaða- mannafundum. Grundvallaratriði málsins sé að almenningur treysti því að fjölmiðlar afli raunveru- legra og mikilvægra upplýsinga – upplýsinga sem einungis nást fram með tengslum við heimildar- menn sem menn hafa ræktað upp í gegnum áralanga reynslu. Lærdómurinn Skilaboðin sem Barbara Cochran telur liggja í reynslunni af leyniskyttumálinu eru því þau að það sé misskilningur hjá yfir- völdum að bregðast við með því að loka á upplýsingastreymið. Það sé – þegar allt kemur til alls – heppilegra að leyfa fjölmiðlum að vinna sín verk. Með því að skapa traust milli aðila muni fjölmiðlar vitaskuld aðstoða yfirvöld líka ef svo ber undir. Hins vegar segir hún leyni- skyttumálið sýna hversu við- kvæm þessi staða er, og hve grunnt sé í raun á þeim við- brögðum að loka fyrir upplýs- ingaflæðið, hve grunnt sé á lok- unarheilkenninu. Hún endar grein sína á því að hvetja menn til að hugsa um leyniskyttumálið næst þegar svona krísa kemur upp, því það sé í raun ekki spurning hvort slík krísa kemur upp aftur heldur hvenær. ■ Um daginnog veginn Lokunarheilkennið ■ Af Netinu Fólkið stjórnar stjórnmálunum ■ Það sé - þegar allt kemur til alls - heppi- legra að leyfa fjölmiðlum að vinna sín verk. Með því að skapa traust milli aðila muni fjölmiðlar vita- skuld aðstoða yfirvöld líka ef svo ber undir. Undirfataverslun. Síðumúla 3 Sími: 553 7355 opið virka daga kl: 11-18 Laugard. kl: 11-15 ÚTSÖLULOK Laugardag 21. febrúar 30-60% afsláttur BIRGIR GUÐMUNDSSON ■ skrifar um leyniskyttu- mál í Bandaríkjunum, en ekki um samskipti fjöl- miðla og lögreglu vegna líkfundar í Neskaupstað. FRÁ BLAÐAMANNAFUNDI „Ekkert af því sem fram kom í gær var þess eðlis að aðra en lögregluna varðaði um það,“ skrifar pistlahöfundur á andriki.is um blaðamannfundinn sem haldinn var á fyrradag vegna líkfundarins á Neskaupstað. Hlerað á Netinu ■ Nokkur umræða hefur skapast á netmiðlum um leyndina sem hvílt hefur yfir rannsókn lögreglu á líkfundinum á Neskaupstað. Eru fjölmiðlar fulltrú- ar almennings? Þjóðin sem er „með“ og „á móti“ „...með eða á móti? Hannesi Hólm- steini, feministum, einkavæðingu, ESB-aðild, Baugi, Björgólfi, Eim- skip, Flugleiðum, að eignarhald sé að færast á sífellt færri hendur hér á landi? Ertu góður eða ertu vond- ur? Einhvern veginn á þessum nót- um hefur umræðan verið undan- farnar vikur og mánuði og svei mér ef ekki ár og áratugi ef út í það er farið hér á landi. Ég hef oft velt þessu atriði upp og eflaust oft líka tekið þátt í leiknum. Af hverju er umræðan svona? Viljum við hafa hana svona? Verður það þannig um ókomna tíð að við Íslendingar skiptum okkur í lið þar sem annað liðið „er með“ en hitt „á móti“? Að annað liðið fái á sig „góða“ stimpil- inn en hitt „vonda“? - SIGNÝ SIGURÐARDÓTTIR Á KREML.IS Fasistarök gegn kosningum „Ef svo fer að Ólafur Ragnar Gríms- son sækist eftir endurkjöri má ætla að í annað sinn í sögunni verði sitj- andi forseti í framboði í kosningum. Er það vel. Best væri raunar ef for- seti væri aldrei sjálfkjörinn, heldur þyrfti að kjósa þótt einungis einn væri í framboði – því það að skila auðu, sitja heima eða jafnvel gera ógilt getur allt verið pólitísk af- staða. Því fer fjarri að þessi afstaða til forsetakosninga sé almenn. Alltof margir fallast á fasistarökin gegn kosningum, að þær séu of kostnaðarsamar. Aðrir ganga helgi- slepjunni á vald og telja ótilhlýði- legt að fólk „bjóði sig fram gegn for- setanum“ eins og það er orðað.“ - STEFÁN PÁLSSON Á MURINN.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.