Fréttablaðið - 20.02.2004, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 20. febrúar 2004
debenhams
S M Á R A L I N D
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
D
EB
2
37
41
02
/2
00
4
n‡tt og fínt
Full búð af nýjum og spennandi vörum
- allt á einum stað
og á verði sem kemur þér í gott skap.
TEHERAN, AP Íranar ganga að kjör-
borðinu í dag og kjósa 290 einstak-
linga til setu á þinginu. Kosning-
arnar eru haldnar í skugga ásak-
ana umbótasinna um að klerka-
stjórnin hafi stolið kosningunum
með því að meina á þriðja þúsund
umbótasinnum að gefa kost á sér í
kosningunum. Að auki hefur út-
gáfa tveggja dagblaða sem styðja
umbótasinna verið stöðvuð.
Fastlega er búist við því að
íhaldsöflin beri sigur úr býtum í
kosningunum í dag. Spurningar
hafa hins vegar vaknað um
hversu mikil kjörsóknin verður
þar sem margir þeir sem krefjast
umbóta hyggjast sniðganga kosn-
ingarnar. ■
ALÞINGI Kristinn H. Gunnarsson,
Framsóknarflokki, hefur lagt
fram frumvarp þar sem lagðar
eru til breytingar á stjórnar-
skránni. Hann vill afnema heimild
til að setja bráðabirgðalög og skil-
ja á milli framkvæmdavalds og
löggjafarvalds með því að meina
ráðherrum að sitja á þingi.
„Þáttur alþingismanna innan
framkvæmdavaldsins hefur
minnkað mikið og hlutur ráðherra
vaxið að sama skapi. Þessi þróun
verður ekki stöðvuð á augabragði,
en það er eðlilegast að bregðast
við henni með því að skilja á milli
framkvæmdavaldsins og löggjaf-
arvaldsins. Þannig gæti þingið af-
greitt frumvörp algerlega án póli-
tískrar íhlutunar ráðherra, en
frumvörpin kæmu væntanlega
áfram mikið til frá ríkisstjórn og
einstökum ráðherrum,“ segir
Kristinn.
Frá árinu 1874 hefur heimild til
setningar bráðabirgðalaga verið
beitt 447 sinnum, en verulega dró
úr slíkri lagasetningu þegar
deildaskipting Alþingis var af-
numin árið 1991. Kristinn segir að
bráðabirgðalög sem sett voru í
fyrra um breytingu á lögum um
lax- og silungsveiði bendi til þess
að aftur sæki í sama farið.
„Mér sýnist að ríkisstjórnin
hafi verið að teygja sig langt út
fyrir það sem henni var heimilt,“
segir Kristinn.
–En ef ráðherrar sitja ekki á
þingi, þarf þá ekki að fá tólf aðra
þingmenn til þess að fylla þeirra
pláss?
„Ráðherrarnir þyrftu ekki
endilega að vera í framboði. Þing-
menn gætu valið það að vera ein-
göngu þingmenn, en ekki ráðherr-
ar. Stjórn yrði mynduð með sam-
komulagi tiltekinna flokka, sem
myndu síðan skipa ráðherra. Ég
hugsa að það myndi draga fljótt
úr því að einvörðungu þingmenn
sætu í ríkisstjórn. Þeim myndi
fækka og utanþingsmenn sætu í
ráðherrastólunum. Þetta hygg ég
að yrði þróunin,“ segir Kristinn
og bætir við:
„Þetta færir valdapendúlinn
til. Þingmenn sætu fastar í sínum
stólum og sæktust minna eftir því
að setjast í aðra stóla. Þetta myndi
líka styrkja þingið.“
bryndis@frettabladid.is
KOSNINGAAUGLÝSINGAR Í TEHERAN
Kosningabaráttan er í algleymingi í Teher-
an þrátt fyrir að 2.400 umbótasinnum hafi
verið meinað að gefa kost á sér.
Þingkosningar:
Íhaldsmenn sigurvissir
Ráðherrar sitji
ekki á þingi
Kristinn H. Gunnarsson vill afnema heimild til
að setja bráðabirgðalög og styrkja þingið með
því að meina ráðherrum að sitja á því.
KRISTINN H. GUNNARSSON
Þingmaður Framsóknarflokksins hefur lagt fram frumvarp til stjórnskipunarlaga, sem kveð-
ur á um breytingar á stjórnarskránni. Hann segir að með því sé verið að skilja betur á
milli framkvæmdavalds og löggjafarvalds.
Tákn Lundúna:
Rauðu vagnarnir hverfa
LUNDÚNIR, AP Rauði tveggja hæða
strætisvagninn, eitt af helstu
táknum Lundúna, mun brátt
hverfa af götum borgarinnar.
Á síðustu mánuðum hafa sam-
göngumálayfirvöld borgarinnar
tekið einn og einn gamlan
Routmaster-strætisvagn úr um-
ferð og er áætlað að þeir verði
nær allir farnir árið 2005. Nýir
stærri vagnar munu leysa þá
gömlu af hólmi.
Rauði strætisvagninn, sem sást
fyrst á götum Lundúna fyrir
fimmtíu árum, hefur prýtt ótelj-
andi póstkort og ferðamyndir. Að-
dáendur Routmaster-vagnsins
hafa mótmælt áformum borgar-
yfirvalda, meðal annars með
undirskriftasöfnun á Netinu. ■
TÁKN
LUNDÚNA
Rauðu
Routmast-
er-vagn-
arnir heyra
brátt sög-
unni til.