Fréttablaðið - 20.02.2004, Page 12

Fréttablaðið - 20.02.2004, Page 12
12 20. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR PÁFINN ÚTNEFNIR Jóhannes Páll páfi II kynnti í gær til sög- unnar sjö blessaða einstaklinga sem með tíð og tíma verða dýrlingar. Enginn páfi hefur útnefnt fleiri dýrlinga en hann. Rómversk-kaþólska kirkjan í Los Angeles: Gerir hreint fyrir dyrum sínum LOS ANGELES, AP Biskup rómversk- kaþólsku kirkjunnar í Los Angel- es hefur skilað af sér ítarlegri skýrslu um kynferðisbrot presta safnaðarins. Í skýrslunni kemur fram að 656 einstaklingar hafi sakað presta, djákna eða aðra starfsmenn safnaðarins um kyn- ferðislega misnotkun frá árinu 1930 til dagsins í dag. Sakborning- arnir, sem eru 244 talsins, eru nær allir nafngreindir. Yfir 5000 manns störfuðu hjá kaþólsku kirkjunni í Los Angeles á þessu tímabili. Allir biskupar rómversk- kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkj- unum hafa verið beðnir um að skila skýrslum um meint kyn- ferðisafbrot starfsmanna. Mark- miðið er að endurvekja traust al- mennings á kirkjunni eftir hol- skeflu hneykslismála. Biskupar og aðrir yfirmenn kirkjunnar hafa verið sakaðir um að hylma yfir brot prestanna með því að neita að láta af hendi gögn sem skipt gætu sköpum við rannsókn málanna. Í frétt sjónvarpsstöðvarinnar CNN er því haldið fram að síðan árið 1950 hafi 4.450 starfsmenn rómversk-kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkjunum verið sakaðir um kynferðislega misnotkun á börn- um. ■ ALÞINGI Ásta R. Jóhannesdóttir, Samfylkingunni, spurði mennta- málaráðherra út í verktöku starfsmanna hjá Ríkisútvarpinu í fyrirspurnartíma á Alþingi. Ásta sagði að stór hópur starfsmanna hefði nýlega fengið tilkynningu frá skattayfir- völdum um ranga skráningu sem verktaka og fengið um leið endurákvarðaða álagningu tekju- skatts. „Hluti þess- ara starfsmanna hefur ítrekað beðið um að launaleg staða þeirra verði leiðrétt, að þeir komist á launaskrá sem almennir launþegar, en ekki hefur verið orðið við því. Með endurákvörðun álagningar tekjuskatts er um að ræða verulegar fjárkröfur í mörgum tilfellum,“ sagði Ásta. Hún spurði menntamálaráðherra meðal annars um það hversu margir starfsmenn RÚV hefðu verið ranglega skráðir á þennan hátt og hvernig stofnunin ætlaði að bregðast við niðurstöðu skatta- yfirvalda. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra sagði að Ríkisútvarpinu hefði borist bréf frá Skattstjóranum í Reykjavík sem varðaði skattskil 55 einstaklinga þar sem endur- ákvörðun staðgreiðslu og trygg- ingargjalds var boðuð. „Skattayfirvöld taka ekki end- anlega ákvörðun fyrr en Ríkis- útvarpið og hlutaðeigandi hafa komið sjónarmiðum sínum á framfæri. Viðbrögð RÚV við nið- urstöðu skattayfirvalda hljóta að ráðast af því hver hún verður í einstökum málum,“ sagði Þor- gerður og bætti því við að staða verktaka innan RÚV væri mjög mismunandi. Menntamálaráðherra sagði að ástæða þess að viðkomandi starfsmenn voru ráðnir sem verktakar en ekki sem almennir launþegar væri sú að á árunum 1997 hefði yfirstjórn Ríkis- útvarpsins markað þá stefnu að dagskrárgerð í sjónvarpi skyldi í auknum mæli unnin af sjálfstæð- um verktökum. „Rökin fyrir þessu eru sveigj- anleiki sem nauðsynlegur er við framleiðslu á dagskrárefni. Þannig er unnt að ráða besta og hæfileikaríkasta fólkið í hvert og eitt verkefni sem hentar fram- leiðslunni,“ sagði Þorgerður. Ásta R. Jóhannesdóttir varð fyrir vonbrigðum með svör menntamálaráðherra og sagði að kanna yrði betur hvað hér væri á ferðinni, enda hefðu margir starfsmannanna, sem óskað hefðu eftir leiðréttingu, unnið hjá RÚV í mörg ár. Sumir verk- takar væru alls ekki með betri laun en launþegar. „Mér finnst það vera mikill áfellisdómur yfir yfirstjórn RÚV að hún skuli standa frammi fyrir þessu máli. Það vantar fag- mennsku í launamálin og þekk- ingu á kjaramálum er ábóta- vant,“ sagði Ásta. bryndis@frettabladid.is UPPREISNARMAÐUR Í GONAIVES Uppreisnarmenn ráða lögum og lofum í borginni Gonaives. Í Cap-Haitien hafa lög- reglumenn víggirt lögreglustöðina. Jean-Bertrand Aristide: Lætur ekki af völdum HAÍTÍ, AP Jean-Bertrand Aristide, forseti Haítí, segir það ekki koma til greina að hann láti af völdum til að binda endi á uppreisn gegn stjórn hans og óöld sem hefur fylgt í kjölfarið. Innan Banda- ríkjastjórnar vilja menn leysa deiluna með því að efna til kosn- inga fyrr en til stóð, kjörtímabil Aristide rennur ekki út fyrr en í febrúar 2006. Minni áhugi er fyrir því að senda herlið til landsins eins og Bill Clinton, þáverandi forseti, gerði fyrir áratug síðan. Talið er að um 60 manns hafi látist í átökum síðustu daga og hafa uppreisnarmenn náð völdum í mörgum borgum og þorpum. ■ FORÐAST AÐ GIFTAST 11. SEPTEM- BER Væntanleg brúðhjón í Banda- ríkjunum hafa komist að því að erfitt er að bóka kirkjur og sali alla laugardaga í september nema laugardaginn 11. september. Þá eru þrjú ár liðin frá hryðjuverka- árásunum í New York og Was- hington og fáir sem hafa hug á að ganga í hjónaband þann dag. NEITAÐ UM FLUGFAR Kanadískum Falun Gong liða hefur verið neit- að um flugfar til Hong Kong þangað sem hann ætlaði að fara til að kynna bók sína um Falun Gong. Maðurinn hefur einu sinni verið rekinn frá Kína eftir að hann og fleiri Falun Gong liðar breiddu úr fána á Torgi hins him- neska friðar. DÓP OG TÓBAK FYRIR KYNLÍF Tíu fangelsisverðir í Pittsburgh í Bandaríkjunum voru reknir úr starfi og ákærðir eftir að upp komst að þeir höfðu smyglað tó- baki, fíkniefnum og öðrum bönn- uðum varningi inn í fangelsi. Varninginn seldu þeir kvenkyns föngum gegn kynlífsgreiðum. ÆTTINGJAR FÓRNARLAMBA Ættingjar þeirra sem létust vildu að fundið yrði út úr því hver bæri ábyrgð á slysinu. Toglestarharmleikur: Sýknaðir af ábyrgð SALZBURG, AP Dómari sýknaði í gær alla sextán sakborningana sem voru dregnir fyrir rétt vegna eldsvoða í toglest sem kostaði 155 manns lífið. Stjórnendur lestarfyrirtækis- ins, tæknimenn og opinberir eftir- litsmenn voru ákærðir fyrir að hafa ekki hugað nógu vel að ör- yggismálum. Talið var að þeir kynnu að bera ábyrgð á því að það kviknaði í toglest í göngum í aust- urrísku Ölpunum í nóvember árið 2000. Aðeins tólf af 167 manns sem voru í vagninum sluppu lif- andi. ■                                !   "  #   !   BYRJENDANÁMSKEIÐ hefst 26. febrúar. 6 vikur, þrið. og fimmt. kl. 20.15 – 21.45 VERÐ 12.900 Jógabæklingur innifalinn BISKUPSVÍGSLA Í LOS ANGELES Mikill fjöldi hneykslismála hefur komið upp í rómversk-kaþólsku kirkjunni í Los Angeles á undanförnum árum. ÁSTA R. JÓHANNESDÓTTIR Þingmaður Samfylkingarinnar segir það áfellisdóm yfir yfirstjórn Ríkisútvarpsins að skatta- yfirvöld skuli nú hafa skattskil 55 verktaka hjá stofnuninni til skoðunar. „Það vantar fagmennsku í launamál stofnunarinnar,“ sagði Ásta. „Mér finnst það vera mikill áfellis- dómur yfir yfirstjórn RÚV að hún skuli standa frammi fyrir þessu máli. Skattskil 55 verktaka hjá RÚV til skoðunar Skattstjórinn hefur endurákvarðað álagningu tekjuskatts hjá stórum hópi verktaka hjá RÚV og eru fjárkröfur háar í sumum tilfellum. Áfellisdómur yfir yfirstjórn RÚV, segir Ásta R. Jóhannesdóttir. ■ Ameríka Þingsályktunartillaga: Lagaaðstoð fyrir efnalitla ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylkingunni, hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að dómsmálaráðherra verði falið að koma á opinberri lög- fræðiaðstoð til að tryggja að efna- lítið fólk geti leitað réttar síns. Í tillögunni felst að aðstoðin taki meðal annars til mála sem lögð eru fyrir dómstóla og falla ekki undir ákvæði um endurgjalds- lausa lögfræðiaðstoð vegna gjaf- sóknar. Á síðasta áratug hefur þrisvar sinnum verið lagt fram frumvarp um opinbera lögfræði- aðstoð sem greidd yrði úr ríkis- sjóði að hluta til eða að fullu. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.