Fréttablaðið - 20.02.2004, Page 24

Fréttablaðið - 20.02.2004, Page 24
JÓN ATLI JÓNASSON Leikritaskáld. Nýlega frumsýndi Borgarleik- húsið Draugalestina eftir Jón Atla og í kvöld verður annað verk hans, Brim, frum- sýnt af Vesturporti í Vestmannaeyjum. ??? Hver? Ég er góður strákur, jafnlyndur og rólegur. ??? Hvar? Í Þrengslunum á leið í Herjólf. ??? Hvaðan? Ég er fæddur og uppalinn í Vesturbæn- um í Reykjavík en ættaður af Eyrar- bakka. ??? Hvað? Ég gef fiskunum. Dóttir mín sem er sjö ára var að fá tvo voða flotta gullfiska. ??? Hvernig? Af því það er aðalsportið að gefa þeim, ekki er hægt að klappa fiskunum. Ég hélt að þetta væri einfaldasta gæludýrið. ??? Hvers vegna? Það eru ekki til nein námskeið um um- önnun gullfiska eins og er til dæmis með hunda. ??? Hvenær? Hvenær? Ég verð að passa að hún gefi þeim ekki of mikið, þannig að ekki of oft. ■ Andlát Herborg Jónasdóttir er látin. Garðar Bergmann Benediktsson, Stekkjaholti 22, Akranesi, lést þriðjudag- inn 17. febrúar. Margrét E. Guðmundsdóttir, Vestur- hópshólum, Álagranda 23, Reykjavík, lést þriðjudaginn 17. febrúar. 24 20. febrúar 2004 FÖSTUDAGUR Það er allt á fljúgandi sigl-ingu,“ segir Bjarni Jóhanns- son, en hann hefur komið á fót sælgætisverksmiðjunni Mola ehf. á Dalvík ásamt Rúnari Jó- hannessyni og konu hans Sif Sig- urðardóttur. Moli ætlar að endurvekja Akrakaramellurnar og reiknað er með að þeim verði tekið fagn- andi. „Við notum vörumerkið þar sem margir þekkja þessar karamellur. Við erum líka komn- ir með upprunalegu uppskrift- ina sem við ætlum að nota. Þetta verða því ekta Akrakaramellur. Síðar munum við að minnsta kosti gera lakkrískaramellur,“ segir Bjarni enda þeir bræður miklir lakkrískarlar. „Sælgætisgerð er okkur ekki óþekkt. Við áttum Parma í Hafn- arfirði þar sem við létum smíða stærsta lakkríspott á landinu. Við vorum líka í Völu og Ís- lensku sælgæti þar sem við fluttum lakkrís út í tonnatali.“ Það verður ekki bara karamellu- gerð á Dalvík, þar sem þegar er hafin framleiðsla á brjóstsykri í svipaðri línu og stærsti sælgæt- isframleiðandi landsins, Nói Sír- íus, framleiðir. Bjarni segist þó ekkert vera hræddur við sam- keppnina við risann. „Parma var selt Nóa Síríusi þannig að þeir eru búnir að gleypa okkur einu sinni.“ Matvælaiðnaðurinn hefur blómstrað í húsnæði sælgætis- gerðarinnar. Þar var áður rækjuvinnsla en nú er, auk Mola, Íslandsfugl í sama húsi og gengur sambúðin mjög vel. Ekki er þó að vænta nýrrar teg- undar kjúklingakaramellu á næstunni. ■ Brynja Benediktsdóttir, leikkona og leikstjóri, er 66 ára. Ólöf Kolbrún Harðardóttir söngkona er 55 ára. Geimfarinu Friendship 7 varskotið á loft frá Flórída að morgni 20. febrúar árið 1962. Geimfarinn John Glenn var innan- borðs en þetta var í fyrsta skipti sem Bandaríkjamenn freistuðu þess að koma mönnuðu geimfari á sporbaug um jörð. Tilraunin heppnaðist vel og þegar Glenn hrapaði til jarðar 4 klukkustund- um, 55 mínútum og 23 sekúndum eftir flugtak var hann orðinn þjóð- hetja, enda fyrsti Bandaríkjamað- urinn sem fór út fyrir gufuhvolfið. Geimferðin var mikilvægur áfangasigur fyrir Bandaríkja- menn en þeir stóðu nú jafnfætis Sovétmönnum, sem höfðu tekið forystuna í geimkapphlaupinu þegar kalda stríðið var í algleymi með því að koma Júrí Gagarín út í geim. Þá ávann NASA sér aukið traust hjá þinginu og fékk aukið fjármagn til geimrannsókna. Glenn hafði búið sig undir geimferðina með þriggja ára stífri þjálfun og fann ekki fyrir neinum líkamlegum óþægindum í þyngdarleysinu. Hann varð síðar öldungardeildarþingmaður fyrir Ohio en geimurinn kallaði á hann á ný. Þann 16. febrúar árið 1998 var honum aftur skotið út fyrir gufuhvolfið en Glenn hafði farið þess á leit við NASA að hann fengi að taka þátt í áhrifum þyngdar- leysis á gamalmenni. ■ Sælgæti MOLI Á DALVÍK ■ Endurvekur gömlu Akrakaramellurnar. ■ Persónan Það hefur verið ótrúlegur kuldihér síðustu daga og mér líður eins og ég sé stödd á Íslandi,“ seg- ir Bára Sigurjónsdóttir, fyrrum verslunarmaður, sem þessa dag- ana dvelur í Miami í Bandaríkjun- um hjá vinkonu sinni. Þrátt fyrir að Bára sé orðin 82 ára gömul læt- ur hún engan bilbug á sér finna. „Það er alltaf einhver hreyfing á mér þrátt fyrir að ég ferðist ekki eins mikið og áður, enda mátti milliveginn fara.“ Bára er fædd og uppalin í Hafnarfirði en bjó lengst af í Drápuhlíð í Reykjavík. Í dag er hún aftur komin á bernskuslóðir. „Húsið í Drápuhlíð var á tveimur hæðum og orðið gamalt. Þegar aldurinn færist yfir kemur meiri löngun til að taka hlutunum ró- lega. Ég fann þessa yndislegu íbúð í Hafnarfirði, sló til og sé ekki eftir því.“ Hún segist iðulega rekast á gamla leikfélaga og skólasystkin. „Svo eru engir stöðumælar,“ segir hún og hlær, enda minnug þess hversu erfitt reyndist að fá stæði við verslun- ina sem hún rak á Hverfisgöt- unni. Bára rak verslunina sína Hjá Báru í rúma hálfa öld. Glæsifatn- aður fyrir konur var aðalsmerki verslunarinnar og fór Bára marg- ar innkaupaferðir til New York. Á þessum ferðum sínum kynntist hún Iran Iztakhan, vinkonu sinni af persneskum ættum. „Ég er ein- mitt stödd hjá henni núna. Það kannast margir við hana heima á Íslandi. Hún vann í móttöku á hót- eli í New York sem Íslendingar heimsóttu mikið. Við urðum fljótt vinkonur og sá vinskapur hefur haldist í yfir fjörutíu ár.“ Bára hætti verslunarrekstri fyrir tæpum fjórum árum en seg- ist langt frá sest í helgan stein. „Ég hef aldrei haft meira að gera. Það var orðið tímabært að hætta enda vinnudagurinn langur. Í dag gefst mér tækifæri til að rækta fjölskyldu mína og vini. Þá nýt ég þeirra forréttinda að geta sofið út ef mér hentar, ferðast og notið mín við lestur góðra bóka.“ Þegar Bára er beðin að líta yfir farinn veg kemur upp í hugann hversu ört heimurinn hefur breyst og þá ekki til hins betra. „Lífið virtist einfaldara hér áður. Óheiðarleikinn er meira áberandi í dag og ég sé hann birtast í ýms- um myndum.“ ■ Afmæli BÁRA SIGURJÓNSDÓTTIR ■ fyrrum verslunarmaður er 82 ára í dag. Hún nýtur lífsins og segist aldrei hafa haft eins mikið að gera. KELSEY GRAMMER Þessi geðþekki leikari, sem öðlaðist heims- frægð fyrir túlkun sína á geðlækninum snobbaða Frasier Crane, er 49 ára í dag. 20. febrúar ■ Þetta gerðist 1792 Póstþjónusta er sett á laggirnar í Bandaríkjunum. 1809 Hæstiréttur Bandaríkjanna úr- skurðar að alríkislög séu æðri öllum lögum einstakra ríkja. 1872 Metropolitan-listasafnið opnar í New York. 1944 Bandarískar herflugvélar hefja sprengjuárásir á þýskar her- gagnaverksmiðjur í seinni heims- styrjöldinni. 1999 Listskautadans- arinn Tara Lip- inski verður yngsti gullverð- launahafi í sögu vetrar ólympíuleik- anna þegar hún vinnur í kvennaflokki í Nagano í Japan. RÚNAR JÓHANNESSON Sælgætisframleiðandi á Dalvík sem ætlar að gera ekta Akrakaramellur eftir upprunalegu uppskriftinni. Í samkeppni við risann JOHN GLENN ■ Fór fyrstur Bandaríkjamanna út í geiminn á þessum degi. Hann sneri aftur þjóðhetja og fór síðar á þing. 20. febrúar 1962 Á ferð og flugi á níræðisaldri 13.30 Margrét Ólafsdóttir, áður til heimilis í Nökkvavogi 12, Reykja- vík, verður jarðsungin frá Lang- holtskirkju. 13.30 Eva Karlsdóttir, Syðri-Brekku, Austur-Húnavatnssýslu, verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju. 14.00 Ólafur Pétur Sveinsson, Áshamri 63, Vestmannaeyjum, verður jarð- sunginn frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum. 15.00 Kristinn Guðmundsson, húsasmíða- meistari og byggingaeftirlitsmaður, Langagerði 74, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju. 15.00 Árni Guðjónsson, hæstaréttarlög- maður, Bergstaðastræti 3, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 16.00 Ragnheiður Þórisdóttir, Rangár- völlum 3, Keflavík, verður jarð- sungin frá Keflavíkurkirkju. ■ Jarðarfarir ■ Afmæli JOHN GLENN Varð fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að bregða sér út fyrir gufuhvolf jarðar þann 20. febrúar árið 1962. Hann endurtók svo leikinn, þá orðinn virðulegur öldungar- deildarþingmaður, í febrúar 1998. Hóf stjórnmálaferilinn úti í geimnum BÁRA SIGURJÓNSDÓTTIR Blaðamaður hafði ekki hugmynd um að Bára væri stödd erlendis þegar hann hringdi í GSM-símann hennar. Fimm tíma munur er á milli Ís- lands og Bandaríkjanna. Eftir dágott spjall spurði Bára hvað klukkan væri. Hér heima var hún korter í ellefu um morguninn. Bára hváði enda áttaði hún sig á því að klukkuna vantaði ekki nema stundarfjórðung í sex um morguninn. Hún hló dátt. Símhringingin hafði vakið hana af værum blundi. Kvöldið áður hafði hún verið í afmælisfagnaði. „Það hlaut eitthvað að vera, mér fannst eitthvað skrýtið við þetta.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.