Fréttablaðið - 20.02.2004, Qupperneq 28
segir Auður Björk Guðmundsdóttir, kynningarstjóri
ESSO um e-kortið
Hvers vegna ákvað ESSO að taka þátt í
e-kortinu?
Það var enginn vafi í okkar huga að vera með í samstarfinu um
e-kortið. Þetta er nýr valkostur á markaðinum þar sem
almenningur safnar endurgreiðslu fyrirhafnarlaust og fær ávísun í lok árs sem getur
verið upp á tugi þúsunda króna. Við leitum stöðugt að leiðum til að koma til móts við
viðskiptavini okkar og teljum okkur gera það með þátttöku í e-kortinu. Við leggjum
áherslu á að bjóða hagstætt verð og komum nú enn betur til móts við okkar viðskiptavini
hvað það varðar.
Þið eruð ansi víða með starfsemi, er það ekki?
Jú, ESSO stöðvar er að finna á um hundrað stöðum víðs vegar um land og
þægindavöruverslunin Nesti rekur sjö verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Þar er hægt að
nálgast helstu nauðsynjavörur til heimilisins auk úrvals af ferðavörum og gjafavörum.
Í Nesti er einnig úrval skyndibita auk bakarís þar sem bakkelsi eins og kleinuhringir,
vínarbrauð og rúnstykki er bakað á staðnum.
Og hvaða kjör ætlið þið svo að bjóða e-korthöfum?
Olíufélagið veitir e-korthöfum 1,5% afslátt í formi endurgreiðslu á eldsneyti hjá ESSO og
á öllum öðrum vörum á þjónustustöðvum félagsins og Nesti. Til viðbótar er veittur 0,5%
afsláttur af veltu kortsins þannig að hjá ESSO fá viðskiptavinir í raun 2% í afslátt.
Eldsneytiskostnaður skiptir verulegu máli í útgjöldum bílnotenda þannig að þetta er
kjarabót sem munar um.
Nú eruð þið fyrir með ykkar eigið afsláttarkort.
Hvernig munu þessi kort spila saman?
Safnkortið hefur verið helsta tryggðarkerfi ESSO í um tíu ár og meðal stærstu vildarkerfa
á markaðinum. Við munum að sjálfsögðu halda áfram með það og frekar efla það en
hitt. e-kortið er kreditkort með innbyggðu vildarkerfi sem við teljum að verði áhuga-
vert fyrir stóran hóp okkar kúnna. Eins og fyrr er hægt að tengja önnur debet- og
kreditkort við Safnkortið og verður sá hátturinn einnig hafður á með e-kortið.
e-kortshafar geta sem sagt orðið Safnkortshafar, tengt kortið sitt og þá fengið yfirlit
yfir eldsneytisnotkun sína sem getur komið sér vel í heimilisbókhaldinu og í utanum-
haldi á rekstri á bíl. Hvað afsláttinn varðar þá fá e-kortshafar ekki Safnkortspunkta
við kaup á vöru og þjónustu greiði þeir með e-kortinu, þeir fá alls 2% í endurgreiðslu í
lok árs.
Hvað með sértilboð?
Þau verða vegleg og af ýmsum vörum, enda eitt af lykilatriðunum með svona korti
að gera vel við trygga viðskiptavini. Hjá okkur fæst náttúrulega ýmislegt annað en
eldsneyti. Næstu vikurnar bjóðum við t.d. 35% afslátt af Fiesta gasgrilli í Nesti.
Í ESSO bjóðum við 30% afslátt af Vínbók Þorra Hringssonar, 25% afslátt af rúðuvökva
og 50% afslátt af tveggja lítra kippum af Coca Cola. Auk þess bjóðum við 25% afslátt
af bílþvotti á stöðvum félagsins. Í Nesti fá e-korthafar 25% afslátt af pylsu og Coke.
Það borgar sig því svo sannarlega að heimsækja okkur um leið og e-kortið er fengið!
Góður kostur fyrir neytendur
Ef greitt er með e-korti á þjónustustöðvum ESSO