Fréttablaðið - 20.02.2004, Qupperneq 41
FÖSTUDAGUR 20. febrúar 2004 33
20% afsláttur fyrir korthafa VISA
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
21.02.’04
LAUGARDAG
NÝDÖNSK
FRÍTT INN
MILLI KL. 11 OG 12
kö
h
ön
nu
n
21
02
22
04
HÁÞRÝSTI
ÞVOTTATÆKI
Verð frá kr.
8.900,-
20.00 Eldað með Elvis í Loft-
kastalanum.
20.00 Chicago eftir J. Kander, F.
Ebb og B. Fosse á stóra sviði Borgar-
leikhússins.
20.00 100% „hitt” með Helgu
Brögu í Ými við Skógarhlíð.
20.00 Vegurinn brennur eftir
Bjarna Jónsson á smíðaverkstæði Þjóð-
leikhússins.
21.00 5stelpur.com í Austurbæ.
■ ■ LISTOPNANIR
18.00 Barcelónsk menningarhelgi
verður opnuð á Kjarvalsstöðum.
20.00 Sýning á nýjum verkum eftir
Hrafnkel Sigurðsson verður opnuð í
Safni, Laugavegi 37. Auk verka úr safn-
eigninni eru þar einnig yfirstandandi
sýningar Jóns Sæmundar Auðarsonar,
Særúnar Stefánsdóttur, Lawrence
Weiners og Adam Barker-Mills. Þeim
lýkur öllum 1. mars.
■ ■ FUNDIR
08.00-10 Mannauður innflytj-
enda er yfirskrift morgunverðarmálþings
í Iðnó. Fyrirlesarar verða Unnur Dís
Skaptadóttir mannfræðingur, Sigurður
Guðmundsson skipulagsfræðingur, Tos-
hiki Toma innflytjendaprestur, Gústaf
Adolf Skúlason frá Samtökum atvinnu-
lífsins og Halldór Grönvold frá ASÍ.
Aðgangseyrir 1.200 kr.
■ ■ SAMKOMUR
11.00 Börn úr leikskólum Reykja-
víkur mætast á opnum svæðum víðs
vegar um borgina og fylla hana af þjóð-
fánum heimsins.
16.00 Upplýsingamiðstöð Hins
hússins verður með Útþrá, kynningu á
spennandi möguleikum fyrir ungt fólk
hérlendis og erlendis.
20.30 Salsanámskeið í Caffé Kúlt-
ure í Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18.
■ ■ DANSLIST
11.00 Íslenski dansflokkurinn
verður með opna æfingu á stóra sviði
Borgarleikhússins.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Bræðir menningar-
múra með söng sínum
TÓNLEIKAR Söngkonan Timna
Brauer kemur hingað á Vetrar-
hátíð Reykjavíkur og syngur
ásamt hljómsveit sinni Voices for
Peace á tvennum tónleikum í
Hafnarhúsinu, það er í kvöld og
annað kvöld. Einnig kemur hún
fram á sérstakri dagskrá fyrir
börn í Hafnarhúsinu á laugardag-
inn, þar sem hún kynnir börnun-
um tónlist frá ýmsum menningar-
heimum.
Hljómsveitin Voices for
Peace varð til í kringum tón-
leikaferð með ísraelskum og
arabískum kór árið 1999, þar
sem gyðingar, múslimar og
kristnir menn sungu saman eins
og ekkert væri.
Timna Brauer hefur haldið
áfram að ferðast um heiminn með
hljómsveit sína, og hún syngur
með henni lög sem ættuð eru
bæði frá gyðingum og múslimum.
Tónleikar hennar falla vel inn í
hinn fjölmenningarlega blæ sem
er á Vetrarhátíðinni í ár. Í dag er
til dæmis haldið í Iðnó málþing
um mannauð innflytjenda, og á
morgun verður sannkölluð Þjóða-
hátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem
hefst með fána- og ljósagöngu frá
Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu til
Ráðhússins. ■
BJÖRN THORODDSEN
Aðalhljóðfærið mitt er seagull-gítar. Það tókust strax með
okkur ástir,“ segir Björn
Thoroddsen djassgítarleikari,
„Þetta er akústískur gítar frá
Kanada sem Tónastöðin flytur
inn. Þótt hann sé verksmiðju-
framleiddur og ekkert mjög dýr,
þá er hann einhvern veginn eins
og smíðaður utan um mig. Ég hef
prófað marga gítara en þessir
henta mér rosalega vel. Ég hef
verið með svona gítara síðastliðin
tíu, fimmtán ár.“
Hljóðfæriðmitt
TIMNA BRAUER FRÆÐIR BÖRN UM
HEIMSTÓNLIST
Timna kemur fram ásamt hljómsveit sinni
Voices for Peace í Hafnarhúsinu.