Fréttablaðið - 28.03.2004, Side 17

Fréttablaðið - 28.03.2004, Side 17
17SUNNUDAGUR 28. mars 2004 Hamingjusamur á stríðstímum Um það leyti sem innrásin íÍrak var að hefjast síðastliðið vor hófst bandaríska tónskáldið Gerald M. Shapiro handa við að semja nýtt tónverk fyrir Tríó Reykjavíkur. Þetta verk, sem nefnist Píanótríó nr. 2, verður frumflutt á tónleikum tríósins í Hafnarborg í kvöld. „Þegar ég byrjaði að skrifa þetta verk var ástandið í heimin- um alveg hreint skelfilegt, en aft- ur á móti stóð þannig á hjá sjálf- um mér að allt var í lukkunnar velstandi. Ég var mér mjög með- vitaður um þessa mótsögn og mér fannst ég verða að koma henni til skila í verkinu. Þess vegna er mikið af andstæðum í þessu verki.“ Shapiro er prófessor í tónlist við Brown University á Rhode Island. Hann hefur samið fjölda tónverka, bæði sinfónísk og fyrir kammerhópa. Verk hans hafa verið flutt víða um heim og gefin út á hljómdiskum, meðal annars hjá Naxos og Neauma. „Þetta er í fjórða eða fimmta skiptið sem ég kem til Íslands,“ segir Shapiro. „Fyrst kom ég hingað fyrir átta eða tíu árum og skrifaði þá tvö verk fyrir Guð- mund Emilsson, sem hann stjórnaði.“ Tríó Reykjavíkur er skipað þeim Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara, Gunnari Kvaran sellóleikara og Peter Maté píanó- leikara. Það var Atli Heimir Sveinsson sem stakk upp á því við Shapiro að hann semdi verk fyrir Tríó Reykjavíkur. Á tónleikunum í kvöld spila einnig með tríóinu hjónin Almita Vamos fiðluleikari og Roland Vamos víóluleikari. Auk Píanó- tríósins flytja þau einnig tríó fyr- ir tvær fiðlur og eina víólu eftir Zoltan Kodaly, og loks píanó- kvintett eftir Dvorak. ■ Hver? Ég er rólyndismaður, hugljúfur og mikill tölvumaður. Hvar? Ég er staddur í faðmi sambýliskonu minnar og fjölskyldu. Hvaðan? Laugarnesbúi, fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hvað? Áhugamál mín eru frímerkja- og mynt- söfnun og skrautskrift. Ég hef gaman af gönguferðum og er mikill andstæðingur reykinga. Ég barðist sem harðast gegn reykingum í MH. Þá bauð ég mig fram sem ritara í nemendafélagið en tapaði kosningunum því mig vantaði 300 at- kvæði af 900. Þá reyktu einmitt 300 stúdentar og ég fékk ekkert atkvæði frá þeim. Hvernig? Ég skipti stöðugt á frímerkjum við aðra og fer reglulega til Magna og í Frí- merkjahúsið. Ég hef ekki verið að safna í langan tíma en ég safna bara íslensk- um frímerkjum og þá sérstaklega frí- merkjum fyrir 1944. Hvers vegna? Af því þetta er svo gott hjónahobbý. Það var annað hvort þetta eða golf sem ég stundaði í tvö sumur. Við slökkvum á sjónvarpinu og dúllum okkur saman við þetta á kvöldin. Hvenær? Nú er ég að reyna að finna mér ein- hverja vinnu, sem gengur ekki vel. Bæði er það að ég hef ekki góða ímynd í fjöl- miðlum og svo gæti farið þannig dóms- mál næsta vetur að ég þurfi að hverfa frá vinnu. JÓNAS INGI RAGNARSSON Segist saklaus af öllu varðandi líkfundar- málið. Hann vill eyða kvöldum í rólegheit- um í faðmi fjölskyldunnar og huga að frímerkjunum sínum. GERALD M. SHAPIRO ÁSAMT TRÍÓI REYKJAVIKUR Tríóið frumflytur verk eftir Shapiro á tónleikum í Hafnarborg í kvöld. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I Tónleikar GERALD M. SHAPIRO ■ Tónskáldið byrjaði að semja nýtt tón- verk fyrir Tríó Reykjavíkur um það leyti sem Íraksstríðið hófst. Verkið verður frumflutt í kvöld. ■ Persónan

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.