Fréttablaðið - 28.03.2004, Síða 23

Fréttablaðið - 28.03.2004, Síða 23
23SUNNUDAGUR 28. mars 2004 Alþjóðleg skuldabréf Landsbankans: 35 milljarða lán til fimm ára VIÐSKIPTI Landsbankinn hefur gengið frá fimm ára láni að upp- hæð fjögur hundruð milljónir evra, sem jafngildir um 35 millj- örðum íslenskra króna. Í fréttatil- kynningu frá félaginu segir að lánið sé til lengri tíma en íslensk- ir bankar hafi áður fengið í skráð- um skuldabréfum erlendis. Í tilkynningunni frá bankanum segir að heildareftirspurn hafi verið mikil í útboði á skuldabréf- um bankans á alþjóðlegum mark- aði og hafi það orðið til þess að ákveðið var að stækka útboðið úr þrjú hundruð í fjögur hundruð milljónir evra. Alls tóku þrjátíu og sjö aðilar þátt í láninu, einkum bankar og sjóðir eignastýringarfyrirtækja. Í tilkynningu frá félaginu segir að fjárfestarnir hafi komið frá Þýska- landi, Bretlandi, Norðurlöndunum, Benelúx-löndunum og einnig Spáni, Sviss, Frakklandi og Asíu. Seðlabankinn hefur nýlega varað við lántökum banka erlend- is og sérstaklega hefur verið gagnrýnt að stór hluti lántöku bankanna sé til skamms tíma. ■ TEKUR SEKT MEÐ RÓ Bill Gates ávarpar tækniráðstefnu í síðustu viku. Evrópusambandið hefur ákveðið að sekta Microsoft-fyrirtækið um sex hundruð milljónir Bandaríkjadala fyrir misnotkun á einokunarstöðu. Í úrskurðinum felst meðal annars að aðskilja þurfi Media Player- hugbúnaðinn frá Windows-stýrikerfinu. LANDSBANKI ÍSLANDS Fer að tilmælum Seðlabanka og lengir í erlendum lánum sínum. stjórnarmenn segjast verja tutt- ugu og fimm vinnustundum mánaðarlega til þeirra starfa sinna. Hér á Íslandi hefur gætt til- hneigingar til þess að stjórnir fyrirtækja taki að sér mun meira stefnumarkandi hlutverk en áður. Stjórnarfundir eru ekki lengur hugguleg kaffisamsæti fyrir virðulega menn heldur raunverulegur vettvangur stefnumótunar, aðhalds og breytinga. Fyrir vikið hafa laun stjórnarmanna verið að þokast upp á við og víða hefur verið fækkað í stjórnum og samsetn- ing þeirra miðast í auknum mæli að því að ná ákveðnum rekstrarmarkmiðum. Þróunin er því eindregið í þá átt að stjórnarmenn þurfi að leggja á sig meiri vinnu og taka meiri ábrygð á störfum sínum en áður var; þetta er krafa hlut- hafa víða um heim sem kenna stjórnarmönnum um eftirlits- leysi í garð stjórnenda - og ekki síður viðskiptalífsins sjálfs sem hefur ríka hagsmuni af því að traust almennings og fjárfesta sé á öruggum stoðum reist. thkjart@frettabladid.is ÁHRIFAMIKLIR STJÓRNARFORMENN Þeir Hannes Smárason í Flugleiðum, Sig- urður Einarsson í KB banka, Björgólfur Thor Björgólfsson í Burðarási og Einar Sveinsson í Íslandsbanka eru allt stjórnar- formenn sem hafa verulega mikilli stefnu- mótunarskyldu að gegna hjá fyrirtækjum sínum. Þeir hafa síst minni áhrif á gang mála í fyrirtækjum sínum en forstjórar og framkvæmda- stjórar fyrirtækj- anna. Hvenær er maður háður - og hvenær óháður? Samkvæmt reglum Verslunar- ráðs, Samtaka atvinnulífsins og Kauphallar Íslands telst maður vera háður fyrirtæki – og því ekki geta verið óháður stjórn- armaður – ef hann uppfyllir einhver þessara skilyrða: • Hann er eða hefur verið starfsmaður fyrirtækisins eða fyrirtækjasamsteyp- unnar undanfarin þrjú ár. • Hann þiggur greiðslur frá fyrirtækinu, eða æðstu stjórnendum þess, fyrir utan þau laun sem hann fær sem stjórnarmaður. • Hann er tengdur nánum fjölskylduböndum einhverj- um af ráðgjöfum, stjórnar- mönnum eða æðstu stjórn- endum fyrirtækisins. • Hann er einn af æðstu stjórnendum í öðru fyrir- tæki sem er í umtalsverðum viðskiptum við fyrirtækið. • Hann er í miklum viðskipt- um við fyrirtækið eða hefur mikilla viðskiptahagsmuna að gæta í félaginu. • Hann er aðili að árang- urstengdu umbunarkerfi hjá félaginu. • Hann hefur önnur tengsl þar sem hagsmunir hans og fé lagsins geta skarast veru- lega. • Stjórn fyrirtækis úrskurðar sjálf um hvort stjórnarmenn séu óháðir og gefur það út opinberlega.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.