Fréttablaðið - 04.04.2004, Page 23

Fréttablaðið - 04.04.2004, Page 23
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 4 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 87 stk. Keypt & selt 24 stk. Þjónusta 31 stk. Heilsa 7 stk. Skólar & námskeið 5 stk. Heimilið 17 stk. Tómstundir & ferðir 12 stk. Húsnæði 27 stk. Atvinna 17 stk. Tilkynningar 2 stk. til London og Kaupmannahafnar Tvisvar á dag Umönnun og fiskvinnsla óvinsæl störf BLS. 3 Góðan daginn! Í dag er sunnudagur 4. apríl, 95. dagur ársins 2004. Reykjavík 6.34 13.31 20.29 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Þú færð líka allt sem þig vantar á Unnur Stefánsdóttir er leikskólastjóri á Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópa- vogi. Þar eru 150 börn í dagvist í þrem- ur húsum og fjöldi starfsfólks að sinna þeim. Unnur er mjög ánægð með starfið sitt. „Það er alltaf mikið að gera og mað- ur klárar aldrei en þetta er skemmti- legt,“ segir hún. Unnur kveðst þurfa að hugsa talsvert fram í tímann, skipuleggja fundi, ferðir og annir og svo að passa upp á að skól- inn vinni eftir þeim markmiðum sem hann hafi sett sér. Þau eru að efla gleði og vilja barnanna með áherslu á nær- ingu, hreyfingu, listir og leik. „Þetta er það sem verið er að vinna eftir alla daga,“ segir hún og heldur áfram. „Hvert barn fær heilsubók og kennar- arnir skrá í þær upplýsingar um svefn- venjur þeirra, mataræði og hreyfingu. Einnig hvernig þau haga sér í félags- skap við önnur börn og fleira þvíum- líkt.“ Nú er svokallaður skipulagsdagur framundan og Unnur er að skipuleggja hann. Þá eru börnin heima en kennar- arnir ræða starfið og fá stundum ein- hvern gest með fræðslu. Börnin í Urðar- hóli eru á aldrinum 2-6 ára og sum yfir- gefa hann í haust til að feta mennta- brautina áfram. Því er Unnur að ráð- stafa plássum. „Nokkrir foreldrar voru að fá bréf frá okkur um að barnið þeirra væri að komast inn og ég er að undirbúa fund með þeim,“ segir Unnur. Fleira er framundan. Unnur lýsir því: „Þann11. maí, á afmæli Kópavogs verður opið hús og þá fáum við gesti og sýnum þeim hvað við erum að gera. Svo er það vorferðin. Þá förum við eitthvað út fyrir borgina og fylgjumst með lífinu í sveit- inni, sauðburðinum og öðru sem þar er að gerast spennandi.“ ■ Mikil ábyrgð en skemmtilegt Verslunarfólk vinnur of mikið segir Verslunarmannafélag Reykjavíkur sem mótmælir lengri opnunar- tíma versl- ana. VR harmar þá fyrirætlan forsvars- manna stóru verslunarmiðstöðv- anna, Kringlunnar og Smáralindar, að hafa opið á almennum frídögum. „Fátt virðist vinnuveitendum heilagt á þessum árstíma nema föstudagur- inn langi, páskadagur og annar í páskum. Síðastnefndi dagurinn virð- ist þó á undanhaldi sem frídagur, margar matvöruverslanir hafa verið opnar þann dag undanfarin ár,“ seg- ir félagið. Flestar verslanir hafa nú opið skírdag og sumardaginn fyrsta sem lengi hafa verið frídagar vinn- andi fólks og á 1. maí, á alþjóðleg- um baráttudegi verkafólks, verður stór hluti launamanna hér á landi líklega við vinnu sína segir VR og mótmælir harðlega þróuninni. Næturvinna styttir lífið er niðurstaða sænskrar rannsóknar sem greint er frá vef ASÍ, www.asi.is. Rannsóknin var gerð hjá Karolinska Institut. 22 þúsund einstaklingum var fylgt eftir á vinnumarkaðnum í tíu ár. Niður- stöðurnar benda til þess að konur sem stunda næturvinnu séu í helmingi meiri hættu á að deyja, áður en þær ná meðalaldri, en aðrar konur. Ástæða þess er með- al annars að fæstar þeirra fá einn- ar lotu langan svefn í einu eins og líkaminn þarfnast. Þetta getur leitt til hækkaðs blóðþrýstings og auk- innar hættu á blóðtappa í hjarta og heilablæðingu. Útlendingar á Íslandi geta nú leitað upplýsinga um íslenskan vinnumarkað í nýútkominni bók Al- þýðusambandsins. Með bókinni greiðir ASÍ aðgang launafólks af er- lendum uppruna að upplýsingum um réttindi og skyldur þeirra sam- kvæmd lögum og kjarasamningum. Í ritinu sem ber heitið: „Icelandic Labour Law. A summary of basic rights and obligations on the private labour market“ er meðal annars fjallað um hlutverk stéttarfélaga, stöðu kjarasamninga, laun og orlofs- réttindi, veikinda- og slysarétt starfs- manna, fæðingar- og foreldraorlof, rétt starfsmanna til upplýsinga og samráðs, uppsögn ráðningarsamn- inga og önnur þau atriði sem gilda um réttarsamband starfsmanna og atvinnurekanda. Unnur Stefánsdóttir leikskólastjóri Umkringd börnum í Urðarhóli. Smáauglýsingar á 750 kr. visir.is SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Liggur í loftinu Í ATVINNUMÁLUM FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA OFL. Cherokee Grand Limited ‘99. Ek. 95 þ. Áhv. 2 millj. Tilboð 2.6 millj. S. 845 3705. Schaferhvolpar (2 hundar, 2 tíkur) með ættbók frá HRFÍ til sölu. Uppl. í s. 869 6888. heimili@frettabladid.is Yfirheyrslan gengur vonum framar! Hann er búinn að leggja spilin á borðið!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.