Fréttablaðið - 04.04.2004, Qupperneq 56
4. apríl 2004 SUNNUDAGUR
Formúlan í Barein:
Ferrari
á ráspól
FÓTBOLTI Michael Schumacher og
Rubens Barrichello, ökumenn
Ferrari, verða á ráspól í Barein í
dag. Schumacher fékk besta tím-
ann í tímatökunni í gær og var
0,391 sekúndu á undan samherja
sínum.
Juan Pablo Montoya og Ralf
Schumacher, hjá Williams, voru í
næstu sætum á eftir Ferrari-öku-
þórunum en Takuma Sato og Jen-
son Button, hjá BAR-Honda urðu í
fimmta og sjötta sæti.
Bíll Kimis Raikkönen, hjá Mc-
Laren, bilaði áður en hann komst í
tímatökuna og verður því síðastur
í rásröðinni í dag. ■
Búndeslígan:
Bayern vann
FÓTBOLTI Bayern München minnk-
aði forskot Werder Bremen á
toppi þýsku Búndeslígunnar í sex
stig með sannfærandi útisigri á
Kaiserslautern. Bayern vann 2–0
og skoruðu
Roy Makaay
og Roque
Santa Cruz
mörkin í
seinni hálf-
leik. Werder
getur aukið
forskotið í
níu stig í dag
en Brima-
b o r g a r a r
leika við
Freiburg á
heimavelli.
Stuttgart burstaði Wolfsburg
5–1 á útivelli og treysti stöðu sína
í þriðja sætinu því Leverkusen
náði aðeins jafntefli í
Mönchengladbach.
Köln vann Eintrach Frankfurt
2–0 í gær en félagið hefur ekki
unnið leik síðan í janúar. Köln er í
neðsta sæti, fimm stigum á eftir
Herthu frá Berlín og átta stigum á
eftir Kaiserslautern, sem er í
næsta sæti fyrir ofan fallsætin
þrjú. ■
ÚRSLIT Í GÆR
Hertha Berlin - Hansa Rostock 1-1
Roberto Pinto - Thomas Rasmussen
Mönchengladbach - Leverkusen 0-0
Kaiserslautern - Bayern München 0-2
Roy Makaay, Roque Santa Cruz
1860 München - Hannover 0-2
Dariusz Zuraw, Thomas Brdaric
Köln - Eintracht Frankfurt 2-0
Ingo Hertzsch (sjm.), Lukas Podolski
Wolfsburg - VfB Stuttgart 1-5
Martin Petrov - Heiko Gerber, Marco
Streller, Philipp Lahm, Kevin Kuranyi,
Imre Szabics
Schalke 04 - Hamburger 4-1
Tomasz Waldoch, Ebbe Sand, Fabian La-
motte, Michael Delura - Mehdi Mahdavik-
ia (vsp.)
LEIKIR Í DAG
Werder Bremen – Freiburg
Borussia Dortmund – Bochum
ROY MAKAAY
Skoraði sitt 20. deildar-
mark.