Fréttablaðið - 04.04.2004, Síða 57

Fréttablaðið - 04.04.2004, Síða 57
SUNNUDAGUR 4. apríl 2004 FÓTBOLTI Chelsea minnkaði forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeild- arinnar í fjögur stig þegar félagið vann Tottenham 1–0 á White Hart Lane. Jimmy Floyd Hasselbaink skoraði eina mark leiksins með skoti af markteig eftir sendingu Damiens Duff af hægri kanti. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea en var skipt út fyrir Danann Jesper Grönkjær á 78. mínútu. Newcastle komst upp í fjórða sætið að nýju með sigri á Everton. Alan Shearer setti tvö mörk og er þar með búinn að skora 25 mörk á leiktíðinni en Kieron Dyer skoraði sitt fyrsta mark í 48 úrvalsdeild- arleikjum. Langri bið Norðmannsins Claus Lundekvam eftir deildarmarki lauk í gær. Hann skoraði loksins í sínum 285. leik þegar Southampton burstaði Úlfana 4–1 á útivelli. Jonathan Greening skoraði sitt fyrsta mark á leiktíðinni þegar Middlesbrough vann Bolton 2–0. Fyrra mark Middlesbrough var sjálfsmark Kevins Nolan sem setti boltann í eigið mark eftir hornspyrnu Gaizka Mendieta. ■ EKKI MÖGULEIKI Nigel Martyn kom engum vörnum við þegar Kieron Dyer skoraði annað mark Newcastle í gær. Enska úrvalsdeildin: Chelsea dregur á Arsenal ÚRSLIT LEIKJA Í GÆR Middlesbrough - Bolton 2-0 1-0 Kevin Nolan, sjm (8.), 2-0 Jonathan Greening (51.) Newcastle - Everton 4-2 1-0 Craig Bellamy (5.), 1-1 Thomas Gravesen (12.), 2-1 Kieron Dyer (21.), 3- 1 Alan Shearer (52.), 3-2 Joseph Yobo (81.), 4-2 Alan Shearer (90.) Tottenham - Chelsea 0-1 0-1 Jimmy Floyd Hasselbaink (38.) Wolves - Southampton 1-4 0-1 James Beattie (25.), 0-2 Claus Lundekvam (58.), 1-2 Henri Camara (72.), 1-3 Kevin Phillips (89.), 1-4 Kevin Phillips (90.) Fulham - Birmingham 0-0 LEIKIR Í DAG Aston Villa - Man. City Liverpool - Blackburn LEIKUR Á MORGUN Leeds - Leicester HANDBOLTI Víkingur tryggði sér oddaleik við Val um sæti í undan- úrslitum RE/MAX-deildar kvenna í gær. Víkingar sigruðu 23-22 eftir framlengdan leik en staðan var 20-20 að loknum venjulegum leik- tíma. Natasa Damiljanovic skor- aði sigurmark Víkinga úr víta- kasti. Stjarnan vann Gróttu/KR 22-21 á Seltjarnarnesi í seinni leik lið- anna og fylgdi eftir 23-18 sigri í fyrri leiknum á fimmtudag. Stjarn- an er því komin í undanúrslit. ÍBV vann KA/Þór 32-23 í átta liða úrslitum RE/MAX-deildar kvenna í gær. Sigur Eyjastúlkna var allan tímann mjög öruggur en staðan í leikhléi var 16-10. Félögin leika að nýju í hádeginu í dag og virðist ólíklegt að þörf verði fyrir þriðja leik félaganna um sæti í undanúrslitum keppninnar. Guðbjörg Guðmannsdóttir var markahæst Eyjastúlkna með átta mörk, Birgit Engl skoraði sex mörk og Anja Nielsen fimm. Cornelia Georgetta skoraði ellefu mörk fyrir KA/Þór og Guðrún Helga Tryggvadóttir sex. ■ RE/MAX-deild kvenna: Víkingur náði oddaleik STJARNAN Í UNDANÚRSLIT Stjarnan varð fyrst til að vinna sér sæti í undanúrslitum RE/MAX-deildarinnar í handbolta. KÖRFUBOLTI Keflavík vann Snæfell 104–98 í Keflavík í gær og jafnaði metin í rimmu félaganna um Ís- landsmeistaratitilinn í körfubolta. Snæfell sigraði 80–76 í fyrsta leiknum í Stykkishólmi á fimmtu- dag en félögin mætast að nýju í Hólminum annað kvöld. Keflavíkingar náðu strax frumkvæðinu í leiknum og leiddu 23–18 eftir fyrsta leikhluta. Í öðr- um leikhluta náðu Keflvíkingar ellefu stiga forystu en það stingur enginn Snæfellinga af. Þeir unnu muninn upp og þegar þrjár mínút- ur voru til leikhlés náðu gestirnir forystu, 41–38. Keflvíkingar jöfnuðu fyrir hlé, 47–47, og náðu aftur frumkvæð- inu í þriðja leikhluta. Staðan var 70–64 fyrir Keflavík þegar fjórði leikhluti hófst. Sverrir Sverrisson skoraði fyrsta stig fjórða leik- hluta en Dondrell Whitmore svar- aði með því að skora úr þremur vítaskotum. Þá skoruðu Keflvík- ingar tólf stig í röð og breyttu stöðunni í 83–67. Mestur var mun- urinn sextán stig, 90–74, eftir að Magnús Gunnarsson hafði skoraði úr þremur vítaskotum. Snæfell- ingar tóku þá við sér og skoruðu átta stig í röð. Staðan var orðin 90–84 og rúmar fjórar mínútur eftir. Derrick Allen skoraði fyrir Keflavíkinga í næstu sókn, Magn- ús Gunnarsson setti niður þrist og Allen bætti við tveimur stigum. Staðan var nú orðin 97–84 og um þrjár mínútur eftir. Corey Dickerson skoraði fyrir Snæfell og Hlynur Bæringsson setti niður tvo þrista og bætti einu stigi við úr vítaskoti. Munurinn var allt í einu orðinn fjögur stig, 97–93. Magnús Gunnarsson svaraði því með þriggja stiga körfu og Fannar Ólafsson bætti tveimur stigum við. Snæfellingar náðu að klóra í bakkann undir lokin en þeir náðu aldrei að ógna sigri Keflvíkinga sem sigruðu með sex stiga mun, 104–98. Derrick Allen og Nick Brad- ford skoruðu 26 stig hvor fyrir Keflavík en Dondrell Whitmore og Hlynur Bæringinsson skoruðu 24 stig hvor fyrir Snæfell. Skömmu fyrir leikslok sauð upp úr milli leikmanna. Keflvík- ingurinn Arnar Freyr Jónsson kastaði boltanum í Snæfellinginn Hlyn Bæringsson. Snæfellingur- inn Corey Dickerson brást illa við og hrinti Arnari í burtu. Dickerson var rekinn út úr húsi en Arnar slapp og verður Snæfell- ingurinn í leikbanni þegar félögin mætast í Stykkishólmi annað kvöld. ■ Keflavík jafnaði Keflavík vann Snæfell 104–98 í öðrum leik félaganna í úrslitum Inter- sport-deildarinnar í körfubolta. NICK BRADFORD Skoraði 26 stig þegar Keflvíkingar unnu Snæfell 104–98 í gær.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.