Fréttablaðið - 07.04.2004, Síða 2
VEGABRÉF „Við höfum verið að búa
okkur undir að krafa um ný vega-
bréf til Bandaríkjanna verði
komin í fullt gildi 26. október á
þessu ári. Hvort því verði frestað
um tvö ár kemur ekki í ljós fyrr
en eftir 1. maí,“ segir Georg Lár-
usson, forstjóri Útlendingastofn-
unar, um ný
vegabréf sem
ferðamenn til
Bandaríkjanna
koma til með að
þurfa að fram-
vísa við komu
til landsins.
Sérfræðing-
ar geta sér til um að eftir fimm
til tíu ár verði farið að gera kröf-
ur um svipaða tækni í vegabréf-
um, alls staðar í heiminum, eins
og gert verður í Bandaríkjunum.
Frá og með 30. september verða
teknar myndir og fingraför af
öllum þeim sem koma til Banda-
ríkjanna og innan tveggja ára
verður farið fram á vegabréf
sem hafa að geyma sérstaka ör-
flögu sem geymir lífeinkenni.
Ekki hefur enn verið ákveðið ná-
kvæmlega hvaða upplýsingar
örflagan á að geyma. Allt bendir
þó til að í henni verði tölvulesan-
leg mynd sem greinir andlit nið-
ur í hluta og jafnframt fingraför.
Örflöguframleiðendur víða um
heim keppast við að gera örflög-
urnar en ekkert fyrirtækjanna
hefur getur lofað nema fimm ára
líftíma enn sem komið er. Öll
vegabréf eru hins vegar með tíu
ára gildistíma. Tölvulesanleg
vegabréf sem gefin voru út eftir
1. júní 1999 og verða gefin út til
26. október 2004 munu duga til
ferðalaga til Bandaríkjanna á
meðan þau eru í gildi.
Georg segir vegabréfin vera
fyrst og fremst notuð við
landamæravörslu
svo hægt sé að
sannreyna að sá
sem afhendir
vegabréf sé eig-
andi þess. Flestir
sem fara ólöglega
á milli landa gera
það með því að
framvísa vega-
bréfum annarra.
„Við Íslending-
ar eigum ekkert
val ef þessar tillögur Evrópusam-
bandsins verða samþykktar eins
og allt bendir til. Bandaríkjamenn
hafa ákveðið að fara þessa leið og
það þýðir ekkert fyrir okkur að
vera með belging hér á Íslandi.
Annaðhvort erum við með eða
verðum hérna heima. Því finnst
mér öll umræða á Alþingi um við
eigum að gera slíkt hið sama hljó-
ma ákaflega undarlega,“ segir Ge-
org Lárusson.
hrs@frettabladid.is
ÞURFA VEGABRÉFIN TIL AÐ KOM-
AST MILLI LANDA Yfirskrifstofa
Evrópusambandsins ráðleggur
þegnum þeirra tíu landa sem
ganga í sambandið 1. maí næst-
komandi að taka vegabréfin sín
með þegar þau ferðast á milli
landa, þrátt fyrir að gert sé ráð
fyrir að ríkisborgarar í sam-
bandsríkjunum þurfi aðeins að
framvísa nafnskírteinum. Skrif-
stofan býst við einhverjum rugl-
ingi þar sem tíma mun taka fyrir
landamæraverði að læra að bera
kennsl á nafnskírteini.
HREINSAÐUR AF ÁSÖKUNUM UM
MÚTUR Pólski forsætisráðherr-
ann, Leszek Miller, fagnar nýrri
skýrslu sem ber af honum allar
sakir í máli síðan 2002. Málið
snýst um meinta mútuþægni við
framleiðanda myndanna
„Shindler’s List“ og „The Pian-
ist,“ sem báðar voru teknar upp í
Póllandi. Gegn greiðslum átti
Miller að auðvelda framleiðand-
anum að ná einkarétti á útgáfu
myndanna með nýjum fjölmiðla-
lögum.
FRÖNSK ORKA EKKI EINKAVÆDD
Samkvæmt yfirlýsingu frá fjár-
málaráðherra Frakklands stend-
ur ekki til að einkavæða ríkis-
orkufyrirtækin þar í landi. Hann
sagði þó að búast mætti við að
rekstarformi fyrirtækjanna verði
breytt að einhverju leyti. Þetta er
gert til að fara að samkeppnislög-
um Evrópusambandsins en
franska ríkið hefur verið harð-
lega gagnrýnt fyrir að fara ekki
að lögunum.
2 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
„Jú jú, nema þegar þetta er allt
á sömu þúfunni, eins og
Seltjarnarnes og Reykjavík.“
Í úrslitakeppni Gettu betur var spurt hvar Sing-
sing-fangelsið er og gefið rétt fyrir svarið New
York. Verslingar fengu stigið og unnu keppnina en
eftir á hafa margir bent á að það sé í New York
ríki. Stefán Pálsson var spurningahöfundur og
dómari keppninnar.
Spurningdagsins
Stefán, þekkir þú ekki muninn
á ríki og borg?
Kærunefnd jafnréttismála:
Dómsmálaráðherra braut lög
DÓMSMÁL Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra braut jafnréttislög
þegar hann skipaði Ólaf Börk Þor-
valdsson í stöðu hæstaréttardóm-
ara við Hæstarétt Íslands á síð-
asta ári. Þetta er niðurstaða kæru-
nefndar jafnréttismála sem
kemst að þeirri niðurstöðu að
Björn hafi brotið lög um jafna
stöðu og rétt karla og kvenna en
einn upphaflegra umsækjenda,
Hjördís Björk Hákonardóttir,
kærði ráðherrann fyrir nefndinni.
Segir í úrskurðinum að Birni
hafi ekki tekist á málefnalegan
hátt að sýna fram á aðrar ástæður
en kynferði hafi legið að baki
ráðningu Ólafs enda er það mat
nefndarinnar að Hjördís Björk sé
hæfari kostur en sá sem embættið
hlaut. Bent er á að aðeins tveir
dómarar af níu alls við Hæstarétt
séu konur. Bar Birni þess vegna
að gæta þess að velja konu þegar
ráðið var í embættið enda sé hún
jafngóður eða betri kostur en
Ólafur Börkur Þorvaldsson.
Kærunefnd beinir þeim til-
mælum til dómsmálaráðherra að
fundin verði viðunandi lausn á
málinu. ■
Skólastjóri grunnskóla
Seltjarnarness:
Sigfús ráðinn
SELTJARNARNES Bæjarstjórn Sel-
tjarnarness samþykkti í gær
með fjórum atkvæðum meiri-
hluta að ráða Sigfús Grétarsson
í starf skólastjóra við grunn-
skóla bæjarins. Skólanefnd
mælti með ráðningu Sigfúsar
með fjórum atkvæðum af fimm
en minnihlutinn klofnaði í af-
stöðu sinni til ráðningarinnar.
Sigfús tekur við starfinu 1.
ágúst en mun hefja störf tengd
undirbúningi á næstunni. Sigfús
er núverandi skólastjóri Val-
húsaskóla og hefur gegnt því
starfi frá árinu 1998. Sigfús
Grétarsson var valinn úr hópi
sjö umsækjenda um stöðuna. ■
BÍLL LEIÐTOGA INGUSHETIAN-HÉRAÐS
Er illa farinn þótt leiðtoginn hafi sloppið
tiltölulega ómeiddur.
Bílasprengja sprakk í
Rússlandi:
Téténar
ógna friði
VLADIKAVKAZ, AP Stór bílasprengja
sprakk í Rússlandi en talið er að
um sjálfsmorðssprengju hafi ver-
ið að ræða. Bílalest hátt setts
manns í Rússlandi varð fyrir
sprengingunni sem talið er að
hópar herskárra Téténa beri
ábyrgð á. Maðurinn heitir Murat
Zyazikov og er leiðtogi Ingusheti-
an-héraðs í Kákasus. Tveir ein-
staklingar eru taldir hafa verið í
sprengjubílnum og létust þeir
báðir. Enginn annar slasaðist al-
varlega í sprengingunni sem
Zyazikov segir vera tilraun til að
stofna friði á svæðinu í hættu. ■
Tveir sautján ára piltar :
Fengu tvegg-
ja ára dóm
DÓMSMÁL Tveir sautján ára piltar
fengu tveggja ára skilorðsbundinn
dóm í Héraðsdómi Reykjaness í
gær fyrir innbrot, fíkniefnabrot og
umferðarlagabrot.
Piltarnir brutust inn í íbúð og
stálu þaðan raftækjum að verðmæti
rúmlega 50 þúsund króna. Þá fund-
ust við líkamsleit á öðrum piltanna
rúmlega tvö grömm af hassi og
tæpt gramm af tóbaksblönduðu
kannabisefni. Sá hinn sami ók
einnig bíl undir áhrifum áfengis
áður en hann fékk ökuréttindi.
Hann þarf að borga eitt hundrað
þúsund krónur í sekt og var sviptur
ökuréttindum í tíu mánuði. ■
ALNÆMISLYF
Héðan í frá geta þriðjaheimslönd keypt
lyfin á lægra verði, þökk sé
stofnun Bills Clinton.
Clinton hjálpar barátt-
unni við alnæmi:
Lyf á lágu
verði
BANDARÍKIN, AP Stofnun sem kennd
er við Bill Clinton, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta, hefur samið
um að öll lönd í þriðja heiminum
fái alnæmislyf á góðu verði. Þetta
tilboð nær þó eingöngu til þeirra
landa sem njóta stuðnings Sam-
einuðu þjóðanna, en talað er um
að stofnunin geti veitt þessa heil-
brigðisþjónustu á allt að áttatíu
prósent lægra verði.
Clinton leggur áherslu á að
mjög vel verði fylgst með því að
þau fyrirtæki sem nýta sér þessi
tilboð komi lyfjunum í umferð í
þriðjaheimslöndunum, en fari
ekki bakdyramegin inn á markað
á Vesturlöndum. ■
BJÖRN ÞUNGT HUGSI
Kærunefnd jafnréttismála komst að því að
hann hefði brotið jafnréttislög með
ráðningu Ólafs Barkar Þorvaldssonar
í embætti hæstaréttardómara.
„ Annað-
hvort erum
við með eða
verðum hérna
heima.
■ Evrópa
■ Írak
MÓTMÆLI Í BEIRÚT Mörg hund-
ruð írakskra sjíta-múslima fylktu
liði í mótmælagöngu í Líbanon
gegn Bandaríkjamönnum í Írak.
Göngumenn báru myndir af
sjítaklerknum Muqtada al-Sadr
og slagorð gegn Bandaríkjunum.
Þetta gerðu þeir til að sýna
stuðning sinn í verki við sjíta-
klerkinn sem hefur verið ötull
baráttumaður gegn bandaríska
hernum í Írak.
GEORG
LÁRUSSON
forstjóri Útlend-
ingastofnunar.
AFGANISTAN
Jarðskjálftinn mun án efa hafa einhver
áhrif á uppbygginguna í landinu.
Hamfarir í Afganistan:
Mannskæð-
ur jarðskjálfti
KABÚL, AP Mikil hræðsla greip um
sig í Afganistan þegar jarðskjálfti
reið þar yfir. Margir þutu út á göt-
ur borgarinnar, minnugir jarð-
skjálftans frá 1998 þar sem fimm
þúsund manns létu lífið. Upptök
skjálftans voru við landamæri
Pakistans en hans var einnig vart
í Úsbekistan meðal annars.
Einhverjir létu lífið í jarð-
skjálftanum en fulltrúi Rauða
hálfmánans vildi ekkert gefa út
um fjölda þeirra að svo stöddu.
Heimildum ber ekki saman um
styrk jarðskjálftans, en talið er
að hann hafi verið 6,6–6,8 á Richt-
er. ■
Við eigum ekkert val
Forstjóri Útlendingastofnunar segir Íslendinga ekki hafa val ef Evrópu-
sambandið ákveði að framvísa verði vegabréfum með persónuauðkenn-
um við komu til landa innan þess líkt og Bandaríkjamenn ætla að gera.
VEGABRÉFAEFTIRLIT Í LEIFSSTÖÐ
Forstjóri Útlendingastofnunar segir þýðingarlaust fyrir Íslendinga að vera með belging
þegar tillögur ESB um vegabréfaeftirlit eru annars vegar. Íslendingar eigi ekkert val.