Fréttablaðið - 07.04.2004, Síða 10
10 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
MILLJARÐAMÆRINGURINN
BERLUSCONI
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu,
var gestur í spjallþætti í ítalska ríkissjón-
varpinu í gær. Berlusconi, sem er ríkasti
maður Ítalíu, var með sem svarar yfir 1,1
milljarði íslenskra króna í tekjur árið 2002,
samkvæmt nýútgefinni skýrslu.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannóknastofnunar:
Þorskkvótinn mun alltént ekki minnka
TOGARARALL „Varðandi þorskinn þá
er þetta í samræmi við okkar vænt-
ingar. Við höfum verið að vonast til
þess að stofninn styrktist og ef vís-
bendingarnar reynast marktækar
þá eru okkar spár að ganga eftir,“
sagði Jóhann Sigurjónsson, for-
stjóri Hafrannsóknastofnunar.
Bráðabirgðaniðurstöður togara-
ralls stofnunarinnar hafa nú verið
kynntar en þær eru mikilvægur
þáttur árlegrar úttektar Hafrann-
sóknastofnunar á ástandi nytja-
stofna við landið. Stofnmælingin í
ár gefur svipaða mynd og stofn-
mælingin í fyrra hvað varðar hátt
hitastig sjávar og verulegar breyt-
ingar á útbreiðslu fjölmargra teg-
unda. Sumar tegundir sem voru
áður mest fyrir sunnan land eru nú
allt í kringum land. Loðna, sem hef-
ur verið mikilvægasta fæða botn-
fiska á þessum árstíma fannst hins
vegar í mjög litlum mæli fyrir
sunnan land.
„Það er greinilega aukning í vísi-
tölu þorsksins en hvað það hefur að
segja varðandi okkar ráðgjöf og
nýtingu á næstu misserum og árum
er annað mál. Ég held þó að það sé
engin ástæða til að ætla að þorsk-
kvótinn minnki,“ sagði Jóhann.
Hann segir merkilegt að sjá
hvað ýsa sé í miklum mæli við land-
ið. Verulegrar aukningar hafi orðið
vart í fyrra og sú þróun virðist
halda áfram. Því til viðbótar aukist
útbreiðsla ýsunnar.
„Ýsan er greinilega út um allt og
í töluvert miklu magni. Þetta tengj-
um við náttúrlega hlýnandi skilyrð-
um. Sama er að segja um lýsuna,“
segir Jóhann.
En á móti kemur að göngur kald-
sjávartegunda, líkt og loðnu og síld-
ar virðast truflast í takt við hlýn-
andi sjó. Loðnan gengur til dæmis í
litlum mæli vestur fyrir landið.
Sjá nánar síðu 18
Átök milli hermanna og uppreisnarmanna í Írak:
Hart barist í
nokkrum borgum
BAGDAD, AP Mikil átök hafa verið
milli bandarískra hermanna og
stuðningsmanna sjíta-klerksins,
Muqtada al-Sadr, við borgina Fallu-
jah í Írak. Þessir bardagar eru liður
í áætlun Bandaríkjamanna að friða
borgina en uppreisnarmenn hafa
lengi barist þar við hermennina.
Átökin hafa einnig breiðst út til
fjögurra annarra borga, meðal ann-
ars til Bagdad en þetta eru mestu
átök sem hafa orðið í Bagdad síðan
borgin var hertekin. Að sögn banda-
rískra stjórnvalda hafa tugir Íraka
fallið í þessum átökum og að
minnsta kosti einn hermaður frá
Úkraínu.
Al-Sadr, sem er mikill andófs-
maður bandaríska hersetuliðsins,
gaf út yfirlýsingu þar sem hann
hvatti fólk til að hræða
óvininn þar sem frið-
samleg mótmæli dugi
ekki til að hann hverfi
á brott. Hann hefur
flutt sig um set frá
moskunni í Bagdad þar
sem hann hefur dvalist
undanfarið af ótta við
að heilagleiki mosk-
unnar yrði rofinn af
óþverrum og illu fólki.
■
ÞJÁTÍU LÁTNIR, TYLFT ENN SAKN-
AÐ Í MEXÍKÓ Hjálparsveitir leita
enn tylft manna sem saknað er
eftir mannskæð flóð í Mexíkó.
Búið er að staðfesta að 31 hafi
látið lífið í þessum flóðum sem
eyðilögðu einnig hundrað heimili
í bæ við landamæri Bandaríkj-
anna. Enn eru nokkur önnur
hverfi rafmagns- og vatnslaus en
lögreglan í Mexíkó vinnur hörð-
um höndum að því að laga allar
skemmdir flóðsins.
HRYÐJUVERKAMENN MEGA EKKI
SIGRA FRELSISSTYTTUNA Síðan
11. september 2001 hefur frelsis-
styttan verið lokuð almenningi af
ótta við að þetta geysistóra tákn
Bandaríkjanna verði skotmark
fyrir hryðjuverkamenn. Nú er
borgarstjóra New York borgar
nóg boðið og sakar yfirvöld um
að láta hryðjuvekamenn stjórna
gjörðum sínum. Hann krefst þess
að frelsisstyttan verði opnuð
tafarlaust.
FYRRUM INNANRÍKISRÁÐHERRA
HAÍTÍ HANDTEKINN Innanríkis-
ráðherra í stjórn Aristide, land-
flótta forseta Haítí, var handtek-
inn vegna gruns um að hafa látið
drepa nokkra pólitíska andstæð-
inga Aristides. Stuðningsmenn
hans segja þó að ásakanir á hend-
ur honum séu uppspuni og ein-
ungis lognar til að koma yfir
hann höndum. Grunsamlegt þykir
að yfirvöld geta ekki nafngreint
neinn af þeim mönnum sem fyrr-
um innanríkisráðherrann á að
hafa drepið, né tilgreint fjölda
þeirra.
SENDIRÁÐIÐ VARIÐ
Skriðdreki jórdönsku lögreglunnar gætir
bandaríska sendiráðsins í höfuðborginni
Amman.
Átta dæmdir til dauða:
Komið í veg
fyrir
hryðjuverk
JÓRDANÍA, AP Dómstólar í Jórdaníu
hafa dæmt átta vígamenn til dauða
fyrir morðið á bandarískum hjálp-
arstarfsmanni árið 2002. Mennirn-
ir eru taldir tengjast hryðjuverka-
samtökunum al-Kaída en sex
þeirra ganga enn lausir.
Laurence Foley, sem starfaði
hjá bandarísku þróunarhjálpinni,
var skotinn til bana fyrir utan
heimili sitt í höfuðborginni Amm-
an í október 2002. Rannsókn máls-
ins leiddi lögreglu á spor manna
sem voru að skipuleggja fjölda
hryðjuverkaárása í landinu, meðal
annars á bandaríska sendiráðið. ■
JÓHANN SIGURJÓNSSON
Forstjóri HAFRÓ segir niðurstöður togararalls í
samræmi við væntingar vísindamanna, að
minnsta kosti hvað þorskinn varðar.
FRIÐSAMLEG MÓTMÆLI
Í FALLUJAH
Írakar mótmæla bandaríska
setuliðinu og halda uppi
mynd af klerknum
Mohammed al-Sadr,
föður Muqtada al-Sadr.
■ Ameríka
■ Asía
KRAFIST NÝRRA KOSNINGA
Stjórnarandstæðingar í Taívan
hafa krafist þess að hæstiréttur
landsins ógildi úrslit forsetakosn-
inganna sem fram fóru 20. mars og
boðað verði til nýrra kosninga.
Chen Shui-bian, forseti Taívan,
vann nauman sigur á keppinaut
sínum Lien Chan en Lien heldur
því fram að brögð hafi verið í tafli.
BLÓÐUG ÁRÁS Á LÖGREGLUSTÖÐ
Hundruð uppreisnarmanna úr
röðum maóista gerðu árás á lög-
reglustöð í suðurhluta Nepal í
skjóli myrkurs aðfaranótt mánu-
dags. Að minnsta kosti níu lög-
reglumenn biðu bana og sex
særðust í skotbardaga við upp-
reisnarmennina. Tuttugu lög-
reglumanna var saknað í gær og
er talið að þeir hafi verið teknir í
gíslingu.