Fréttablaðið - 07.04.2004, Side 16
16 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
KOSNINGABARÁTTA Í ALSÍR
Alsírskur drengur hleypur fram hjá kosn-
ingaveggspjaldi með mynd af Abdelaziz
Bouteflika, forseta Alsír, í Algeirsborg. Sex
manns eru í framboði til forseta í kosning-
unum sem fram fara 22. apríl. Bouteflika
hefur þegar setið eitt fimm ára kjörtímabil,
en óvíst er hvort hann verður endurkjörinn.
Frumvarp um verndun Þingvallavatns:
Stærsta grunnvatnsauðlindin
ALÞINGI Nýtt frumvarp um vernd-
un Þingvallavatns og vatnasviðs
þess verður lagt fram á Alþingi á
næstu dögum. Frumvarpið tekur
á öðrum þáttum en frumvarp sem
Davíð Oddsson forsætisráðherra
lagði fram í síðustu viku og snert-
ir stækkun þjóðgarðsins.
„Þetta er geysilega mikilvægt
mál því Þingvallavatn og vatna-
svið þess er stærsta grunnvatns-
auðlind á Íslandi,“ segir Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráðherra.
Hún segir að samkvæmt frum-
varpinu fái umhverfisráðherra
heimild, að höfðu samráði við
sveitarstjórnir og iðnaðarráðu-
neyti, til að setja nánari reglur um
framkvæmd vatnsverndarinnar.
Samkvæmt frumvarpinu mun
vatnsverndarsvæðið stækka
verulega. Ráðherra verður heim-
ilt að ákveða takmarkanir á beit
og öðrum nytjarétti innan vernd-
arsvæðisins telji hann að sú notk-
un leiði til þess að vatn á svæðinu
spillist. Fjármálaráðuneytið telur
að lögfesting frumvarpsins muni
ekki leiða til aukins kostnaðar fyr-
ir ríkissjóð. ■
Stjórnum lífeyrissjóða
settar nýjar skorður
Umfang og völd lífeyrissjóða í viðskiptalífinu er vaxandi. Frumvarp um auknar kröfur til stjórn-
enda þeirra liggur fyrir Alþingi. Jóhanna Sigurðardóttir segir horft til aukins umfangs sjóðanna
og þess að eigendur þeirra kjósi ekki fulltrúa í stjórn.
LÍFEYRISSJÓÐIR Auknar kröfur til
stjórnarmanna lífeyrissjóða eru
megininntak frumvarps til laga
sem fjórir þingmenn Samfylking-
arinnar hafa lagt fram á Alþingi. Í
frumvarpinu er gert ráð fyrir að
stjórnarmenn lífeyrissjóða sitji
ekki sjálfir í stjórnum hluta-
félaga, heldur fái óháða aðila til að
setjast í stjórn fyrir sína hönd. Jó-
hanna Sigurðardóttir, fyrsti flutn-
ingsmaður frumvarpsins, segir að
þetta sé til samræmis við nýjar
leiðbeinandi reglur Kauphallar Ís-
lands og til þess fallið að draga úr
hættu á hagsmunaárekstrum.
„Við horfum einnig til þess að
stjórnir lífeyrissjóðanna eru ekki
kosnar af þeim sem eiga lífeyris-
sjóðina sjálfa heldur tilnefna
hagsmunasamtök launþega og
atvinnurekenda fulltrúa í stjórn-
inrnar,“ segir Jóhanna.
Í svari viðskiptaráðherra við
fyrirspurn hennar fyrr á þessu
þingi kom fram að Fjármálaeftir-
litið hefði í nokkuð mörgum tilvik-
um gert athugasemdir við lánveit-
ingar tengdum stjórnarmönnum
lífeyrissjóða. Í sama svari kom
fram að um 70% stjórnarmanna
lífeyrissjóða sitji í stjórnum hluta-
félaga eða einkahlutafélaga. „Við
leggjum til að Fjármálaeftirlitið fái
heimildir til að sekta lífeyrissjóði
eins og um fjármálafyrirtæki sé að
ræða, brjóti þeir reglur.“
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að sambærilegar kröfur verði
gerðar til stjórnarmanna lífeyris-
sjóða um menntun, reynslu og
starfsferil sem tryggi að þeir geti
gegnt stöðu sinni á forsvaranlegan
hátt. Jóhanna segir lífeyrissjóðirn-
ir hafa vaxið að umfangi ár frá ári
og því mikilvægt að ekki séu gerð-
ar minni kröfur til stjórnenda og
stjórnamanna lífeyrissjóða en
gerðar eru hjá fjármálastofnunum.
Í frumvarpinu eru ákvæði um
að stjórn lífeyrissjóðs taki ekki
þátt í ákvörðunum um einstök við-
skipti nema að umfang þeirra sé
verulegt miðað við almenn við-
skipti sjóðsins. Einstakir stjórnar-
menn skuli ekki hafa afskipti af
ákvörðunum um einstök viðskipti
eða lánafyrirgreiðslur. Í frum-
varpinu er gert ráð fyrir að
stjórnarmenn lífeyrissjóða sitji
að öllu jöfnu ekki lengur en sex ár
í stjórn sjóðanna.
haflidi@frettabladid.is
Nefnd um eignarhald
fjölmiðla:
Skýrslan birt
eftir helgi
FJÖLMIÐLAR Nefnd sú er
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra skipaði til
að yfirfara eignarhald á fjöl-
miðlum hér á landi hefur lokið
störfum og skilað skýrslu sinni.
Hún verður þó ekki gerð opin-
ber að svo stöddu þar sem
menntamálaráðherra hefur enn
ekki kynnt hana fyrir öðrum
ráðherrum innan ríkisstjórn-
arinnar. Verður það gert á næsta
ríkisstjórnarfundi sem haldinn
verður strax að loknu páskafríi
ráðherranna. ■
EFTIR ELDSVOÐANN
Miklar skemmdir urðu á bókum og öðrum
innanstokksmunum þegar eldsprengja
sprakk í United Talmud Torah grunnskól-
anum í Montreal.
Árás á gyðinga:
Eldsprengja
í grunnskóla
KANADA, AP Hundruð bóka brunnu
og tölvur eyðilögðust þegar eld-
sprengja sprakk í gyðingaskóla í
Montreal. Þeir sem komu sprengj-
unni fyrir skrifuðu andgyðingleg-
an áróðurstexta á veggi skólans.
Engin slys urðu á fólki þar sem
United Talmud Torah grunnskól-
inn var lokaður vegna páskahátíð-
ar gyðinga. Að sögn talsmanns
lögreglu var greinilega um
hatursglæp að ræða.
Borgarstjóri Montrael hefur
heitið því að efla öryggisgæslu
við stofnanir gyðinga á meðan á
páskahátíðinni stendur. ■
ÁFENGI Að gefnu tilefni skal árétt-
að að í frumvarpi því sem nokkrir
alþingismenn hafa lagt fram til
breytinga ýmissa lagaákvæða er
varða sölu áfengis og tóbaks er
áfram ráðgert að ÁTVR selji við-
komandi vörur. Hins vegar er lagt
til að einkasala þess sé afnumin
og fleiri aðilum gert kleift að selja
léttvín og bjór í verslunum sínum.
Sterk vín verði áfram eingöngu til
sölu í verslunum ÁTVR. ■
■ Árétting
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Samkvæmt nýju frumvarpi fær um-
hverfisráðherra heimild til að setja
nánari reglur um framkvæmd vatns-
verndar Þingvallavatns.
Formaður Landssamtaka
lífeyrissjóða:
Andvígur þaki
á stjórnarsetu
Ég held að sá lagarammi sem er ut-an um starfsemi lífeyrissjóðanna
þjóni ágætlega
markmiðum sjóð-
anna,“ segir Frið-
bert Traustason,
formaður Lands-
samtaka lífeyris-
sjóða. Hann segist
mótfallinn þaki á
setu stjórnar-
manna. „Það er
valið í stjórnirnar á
tveggja ára fresti
og ef menn standa
sig illa eða þjóna
annarlegum hags-
munum, þá eru
þeir ekki valdir aft-
ur.“ Slík regla geti
því einungis orðið
til þess að stjórn-
irnar missi góða menn.
Friðbert segir að vel megi skoða að
auka kröfur um þekkingu og reynslu
stjórnarmanna. „Ég tel mjög nauðsyn-
legt að í sjóðunum sé mikil þekking á
efnahagsmálum.“ Hann segir sjóðina
tilneydda til að fara í auknum mæli til
útlanda með fjárfestingar sínar. Það
krefjist mikillar kunnáttu.
Friðbert segir það sína persónulegu
skoðun að ekki sé æskilegt að stjórn-
armenn lífeyrissjóða sitji í stjórnum fyr-
irtækja. „Ég er þeirrar skoðunar að ef
sjóðirnir telja ekki nægjanlega vel farið
með hlutafé sitt í fyrirtækjum, þá eigi
þeir að selja hlutabréf sín.“
Framkvæmdastjóri ASÍ:
Þrengir að full-
trúum launþega
Ég verð að segja að ég er lítið hrifinnaf þessu,“ segir Gylfi Arnabjörnsson,
framkvæmdastjóri
ASÍ. Hann segir að
lögin um lífeyris-
sjóði byggi á víð-
tæku samstarfi
stjórnvalda og aðila
vinnumarkaðarins.
„Þetta er einfaldleag
partur af okkar
kjarasamningi og á
ábyrgð aðila á
vinnumarkaði. Ég
held að nýgerðir
kjarasamningar
sanni mikilvægi
þess að þetta sé í
höndum þessara
aðila.“
Hann segir
óásættanlegt ef
Alþingi setji lög
sem þrengi að
starfsemi sjóðanna, án þess að það sé
gert í nánu samstarfi við aðila vinnu-
markaðarins.
Gylfi segir ASÍ hafna því að gerð sé
sama krafa um hæfi, menntun og
starfsreynslu og til stjórnenda fjármála-
fyrirtækja yfirleitt. „Þetta er ekki hægt
að skilja með neinum öðrum hætti en
að það standi til að þrengja verulega
að því að launafólk geti tilnefnt fólk úr
sínum röðum til setu í stjórnunum.“
Hann segir starfsemi sjóðanna ekki ein-
ungis snúast um fjárfestingar, heldur
einnig réttindi í lífeyrissjóðum.Gylfi seg-
ir að núverandi skipan tryggi gagn-
kvæmt aðhald atvinnurekenda og laun-
þega í stjórnum sjóðanna. Menn ræði
sig fram til niðurstöðu í málum. Hann
segir að vinnureglur í stjórn sjóðanna
séu stöðugt til umræðu, en ASÍ hafni
því að henni verði stýrt með frumvarpi
frá Alþingi.
Ég spyr mig fyrst með sólarlags-ákvæði; eiga þingmennirnir ekki
að byrja á sjálfum sér?“ segir
Víglundur Þorsteinsson, formaður
stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunar-
manna, um þá reglu í frumvarpi
þingmanna Samfylkingarinnar um
að stjórnarmenn í lífeyrissjóðum sitji
ekki lengur en sex ár.
Víglundur segir að lífeyrissjóð-
irnir séu grundvallaðir á kjara-
samningum og löggjöfin um þá sé
rammalöggjöf til að treysta um-
gjörð kjarasamnings. „Þannig að
íhlutun löggjafarvaldsins í málefni
lífeyrissjóða er íhlutun í kjara-
samning.“
Lífeyrissjóðirnir eru í örum vexti
og hlutur þeirra í viðskiptalífinu fer
vaxtandi. Víglundur telur vaxandi
völd sem því fylgja ekki höfuð-
vandamálið. „Helsta vandamál líf-
eyriskerfisins í dag er að koma pening-
um í vinnu.“ Hann segir offramboð vera
á peningum og alltaf meira og meira
verk að finna góðar fjárfestingar. „Það
kallar á mikla þekkingu og mikla reynslu
hjá stjórnarmönnum lífeyris-
sjóða.“ Í frumvarpinu er að
finna auknar kröfur um bak-
grunn stjórnarmanna. „Þetta
er skrum,“ segir Víglundur, og
bætir við að ekki hafi verið
upp á val í stjórnir lífeyrissjóð-
anna að klaga. „Þetta er aug-
lýsingafrumvarp þingmanna
sem er byggt á vanþekkingu.
Þessir þingmenn virðast ekki
vera komnir í 21. öldina og
nýjan veruleika á peninga-
markaði.“
Hann segir að ef stjórn-
málamenn vilji taka á alvöru
vandamálum í lífeyriskerfinu,
þá sé nærtækara að horfa til
hagræðingar í kerfinu með
fækkun sjóða og að taka á B-
deild lífeyrissjóðs starfsmanna
ríkisins þar sem loforð til sjóð-
þega kalli á yfir 300 milljarða útgjöld rík-
isins. „Lokaþátturinn í vanda lífeyriskerfis-
ins er dugleysi stjórnmálamanna að
stemma stigu við vitleysunni í B-deild Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins.“
FRIÐBERT
TRAUSTASON
Segir valið í
stjórnir lífeyris-
sjóða á tveggja
ára fresti. Þeir
sem standi sig
ekki séu ekki
endurkjörnir.
GYLFI ARN-
BJÖRNSSON
Lífeyrissjóðirnir
eru á ábyrgð aðila
vinnumarkaðarins
og breytingar á
starfsumhverfi
þeirra verði ekki
gerðar án víðtæks
samráðs aðila
vinnumarkaðar-
ins.
VÍGLUNDUR
ÞORSTEINSSON
Segir frumvarpið
dæmigert auglýs-
ingafumvarp
þingmanna sem
sé byggt á van-
þekkingu. Nær
væri að taka á
vandamálum í líf-
eyriskerfi ríkis-
starfsmanna.
Formaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna:
Frumvarp byggt á vanþekkingu
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Hún telur mikilvægt að stjórnarmenn lífeyrissjóða sitji ekki jafnframt í stjórnum fyrirtækja.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA