Fréttablaðið - 07.04.2004, Qupperneq 26
Jerry Lohr hóf vínrækt í kringum 1970 og er enn við
stjórnvölinn í þessu litla fjölskyldufyrirtæki sem etur
kappi við stóru risana og stendur sig bara vel í sam-
keppninni. Hilltop frá Jerry Lohr er tilvalið vín með
páskamatnum fyrir þá sem vilja gera vel við sig án
þess að fara fram úr fjárlögum. Vínið er úr línu sem
er flaggskip framleiðandans og nefnist Vineyard
Series. Hefur hlotið fjölmörg verðlaun, m.a. á vínsýn-
ingum í San Francisco og í Flórída í fyrra. Það sem
einkennir vínið er mikil fylling.
Eik og sýra í góðu jafnvægi sem gerir vínið mjúkt og
viðráðanlegt. Góður ávöxtur af dökkum berjum.
Hentar afar vel með villibráð og hverskyns rauðu
kjöti og mundi sóma sér vel með páskalambinu.
Fæst í Heiðrúnu og Kringlunni og kostar 3.390 kr.
J. Lohr Hilltop Cabernet
Öflugt með
páskalambinu
Nýtt í víbúðum
Kóríander er fyrst og fremst ræktað vegna fræjanna
sem notuð eru þurrkuð, ýmist heil eða möluð, til að
krydda mat. Fersk lauf plöntunnar njóta þó vaxandi
vinsælda, ekki síst í asíska og arabíska rétti
Hátíðarfugl er kjúklingur sem er séralinn upp í 3,5-4 kg að þyngd. Hátíðarfugl
fæst bæði reyktur og óreyktur. Eldunartími á hátíðarfugli er um 40 mínútur á
hvert kg. Nákvæmari eldunarleiðbeiningar eru á umbúðunum.
Hátíðarfugl
Hollur og góður hátíðarmatur
Reykjagarður hf
Hátíðarfuglinn fæst í öllum helstu verslunum.Verðlaunavörur frá Reykjagarði
Nýtt á markaði:
Fást frosnar
í flestum
verslunum
Beyglur eru brauðvara
sem á vaxandi vinsæld-
um að fagna hér á landi.
Nú hefur Dreifing ehf.
hafið innflutning og
dreifingu á Lender’s
beyglum frá Bandaríkj-
unum. Þær eru seldar
frosnar í flestum versl-
unum landsins þannig
að hver og einn getur
útbúið sína eftilætis-
beyglu heimavið. Fyrst
um sinn er boðið upp á
þrjár mismunandi
bragðtegundir: hunang
og heilhveiti, hvítlauks-
beyglur og venjulegar.
Lender’s hóf fram-
leiðslu og sölu á beygl-
um fyrir 70 árum og nú
er það eitt þekktasta
vörumerkið á þeim
markaði vestra.
Þessa dagana er fólk að
spá í páskaeggin. Á að
kaupa Nóa/ Siríus númer
5, Mónu númer 6 eða eitt-
hvað allt annað? Góð
spurning. Þeir eru þó til
sem velta þessu ekkert
fyrir sér heldur kaupa
bara súkkulaði og steypa
eggin sjálfir. Form fást til
dæmis í Pipar og salt og
kosta þar 895. Eggin úr
þeim eru um 20 cm á hæð
fyrir utan fótinn sem ein-
nig er til form af og kost-
ar 495. Hversu mikið
súkkulaði er notað í
slík egg fer eftir
þykkt þeirra og
henni ræður hver og
einn en mæla má
með 300 grömmum.
Gott er að blanda
saman tegundum og
sé hjúpsúkkulaði með í
blöndunni verður hún
meðfærilegri.
Litrík pappaegg
Pappapáskaegg eru
þekkt frá hinum Norður-
löndunum.
Þau eru
hingað
komin
og fást í
Europris.
Litrík og lífleg. Þau eru
svo fyllt af því sem hug-
urinn girnist og hentugast
þykir.
Viðhafnaregg
Í Café Konditori
Copenhagen fást sérút-
búin páskaegg úr súkku-
laði. Handgerð frá A til Ö
og góðgætið inni í þeim
er líka að miklu leyti gert
á staðnum. Tívolíbrjóst-
sykur og sykrað
franskt sælgæti
fær þar að fljóta
með. Þá er ein-
nig boðið upp á
að stinga gjöf-
um inn í að ósk
hvers og eins.
Þeir sem eru í
trúlofunarhugleiðingum
um páska ættu að athuga
þetta.
Fáar náttúruperlur hafa
jafn afdráttarlaust aðdrátt-
arafl á Íslendinga og hel-
gasti staður þjóðarinnar;
Þingvellir. Það er eins og
grípi um sig hátíðlegur
þjóðernisfögnuður þegar
þrammað er niður Al-
mannagjá, upp að Öxarár-
fossi og litið yfir þetta eitt
merkasta jarðfræðifyrir-
bæri heims á landinu okk-
ar, því Þingvallasveit er svo
sannarlega skrautfjöður í
barm stoltra barna Íslands.
Í túnfætinum við hið 114
metra djúpa Þingvallavatn,
sem er stærsta stöðuvatn
landsins, milli peningagjáa,
lyngmosa, svanakvaks og
hárra fjalla er eitt best
geymda leyndarmál Íslands
farsældar frónar; jú, nefni-
lega kaffihúsið Café Þing.
Hið nýja kaffihús er til
húsa í Hótel Valhöll, en
verður þó aðskilið hótelinu
sjálfu. Búið er að gera
sveitarómantíkinni hátt
undir höfði í salarkynnum
kaffihússins og setja upp
ramp fyrir fatlaða, en hing-
að til hefur ekki verið auð-
velt fyrir fatlaða að sækja í
andrúm Valhallar.
Boðið verður upp á kaffi
af öllum gerðum, ramm-
íslenskan molasopa sem og
ítalskar útgáfur kaffibaun-
arinnar, léttvín, bjór og
líkjöra, ásamt freistandi
baguette-samlokum, ís-
lensku smurbrauði, dýrind-
is hnallþórum og ýmsu
spennandi fyrir æsku
landsins. Ísvél sér um að
gestir nái að kæla sig niður
með ljúffengum rjómaís,
og á góðviðrisdögum verð-
ur hægt að sitja með kræs-
ingarnar úti undir berum
himni í garði Valhallar.
Café Þing opnar á skír-
dag og opið verður alla
páskadagana.
Páskaegg:
Persónuleg og einstök
Skundum á Þingvöll og treystum vor heit á nýju kaffihúsi:
Hamingja og heitt
kókó á Café Þingi
ÍSLAND ÖGRUM SKORIÐ
Heitt súkkulaði í faðmi Þingvalla er
ómótstæðileg blanda.
Lender’s beyglur
Þrjár mismunandi teg-
undir eru til hérlendis.