Fréttablaðið - 07.04.2004, Síða 46

Fréttablaðið - 07.04.2004, Síða 46
Tónlistarhátíðin Aldrei fór égsuður – rokkhátíð alþýðunnar hefst á Ísafirði á föstudag. Fjöld- inn allur af tónlistarmönnum mun koma þar fram en stærstu númer hátíðarinnar eru heimamenn sem verða vel studdir af frægum hljómsveitum sem jafnvel hafa verið að gera það gott í útlöndum. Hugmyndina að hátíðinni eiga feðgarnir Muggi og Mugison. „Það verður svo margt til þegar ég fæ mér í glas með pabba. Þá kvikna alveg ótrúlegustu hug- myndir,“ segir tónlistarmaðurinn Mugison, sem réttu nafni heitir Örn Elías Guðmundsson. Mugi- son-nafnið tók hann upp eftir að faðir hans, sem gjarnan er kallað- ur Muggi, var klappaður upp á karókípöbb í Malasíu. Þegar faðir hans var kominn með nóg af söngnum kallaði hann í son sinn og kynnti hann sem Mugison. „Þannig kom nafnið til en hug- myndin að tónleikahátíðinni kviknaði þegar við fengum okkur í glas saman í London. Þá vorum við að djóka með það að halda svona festival á Ísafirði nema snúa öllu við – að láta venjulegt fólk fyrir vestan vera aðalinn en stóru hljómsveitarnöfnin styðja við það. Okkur fannst þetta góður brandari í byrjun en samt svo fallegt. Fólkið fyrir vestan á þetta skilið enda hefur það haldið uppi heilu og hálfu samkomunum í gegnum tíðina. Þetta eru stjörn- urnar fyrir vestan og okkur lang- aði að halda hátíð þeim til heiðurs. Þetta fólk fór aldrei suður heldur fannst bara svo gaman að vera heima,“ segir Örn Elías. Frábærar grúbbur Þegar Örn Elías átti leið í bæinn nokkru eftir Lundúnaferðina hitti hann Ragnar Kjartansson úr hljómsveitinni Trabant og viðraði 34 7. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR ALDREI FÓR ÉG SUÐUR Örn Elías og Ragnar hafa safnað saman tónlistarmönnum til að spila á tónlistarhátíð alþýðunnar – Aldrei fór ég suður. Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin á Ísafirði um helgina. Fjöldinn allur af hljómsveitum hefur boðað komu sína en í aðalhlutverki verða heimamenn sem hafa haldið uppi fjörinu á Ísafirði um áratugaskeið. Fermingarveisla á hláturgasi MUGISON OG RASSI PRUMP Mugison, sem heitir réttu nafni Örn Elías Guðmundsson, og Rassi prump, sem heitir réttu nafni Ragnar Kjartansson, munu spila á tónlistarhátíðinni á Ísafirði um helgina. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.