Fréttablaðið - 07.04.2004, Side 55
Dagar þáttarins Landsinssnjallasti eru senn
taldir þar sem hann
hverfur af dagskrá föstu-
daginn 16. apríl. Það fylg-
ir ekki sögunni hvort
þættinum hafi verið
slátrað vegna lítils áhuga
áhorfenda eða hvort hlut-
verki hans sé einfaldlega
lokið og Hálfdán hafi einfaldlega
fundið alla landsins snjöllustu.
Þau Elva Björk Barkardóttir og
Hálfdán geta þó huggað sig við
að það eru ekki ómerkari
töffarar en löggurnar í
Law&Order, með Lennie
Briscoe í broddi fylkingar
sem taka við. Þá hlýtur það
einnig að vera huggun
harmi gegn að þurfa ekki
lengur að hræra royal-búð-
ing ofan í þátttakendur.
43MIÐVIKUDAGUR 7. apríl 2004
www.kbbanki.is
Árlega veitir KB banki 15 styrki til
námsmanna í Námsmannalínunni.
Hver styrkur nemur 200.000 krónum.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
Y
D
D
A
•
N
M
1
1
4
9
8
/
S
IA
.I
S
ÞÚ ERT FRÁBÆR!
NÁMSMANNALÍNA KB BANKA
Nánari upplýsingar og umsóknarform má finna á www.namsmannalinan.is.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2004.
Þetta er ein leiðKB banka til aðstyrkja námsmenn Styrkir eru veittir til:
Útskriftarnema á háskólastigi innanlands.
Námsmanna á háskólastigi erlendis.
Þetta er
önnur le
ið
Fréttiraf fólki
Frá því að Kalli Bjarni vannIdol-keppnina hefur hann
varla haft tíma til þess að hugsa.
Veröld hans snýst í dag um að róa
á allt önnur mið en hann var orð-
inn vanur. „Ég hef ekkert komist
í það að vinna neitt annað en bara
í kringum þetta,“ segir Kalli
Bjarni. „Síðasta helgi var sú
fyrsta sem ég átti frí á. Hana
þurfti ég samt að nota undir
æfingu og auðvitað var ég með
fjölskyldunni.“
Kalli hefur þó fundið tíma til
þess að hlaða utan um sig hljóm-
sveit sem ætlar að spila á sínu
fyrsta balli í Grindavík á föstu-
daginn langa. Hingað til hefur
hann ýmist komið fram með und-
irleik á bandi eða verið gestur
þekktra og óþekktra hljómsveita.
Ein af óþekktari sveitunum
myndi vera Von frá Sauðárkróki,
en í kvöld leikur hann með þeirri
sveit í Miðgarði.
Annað kvöld kemur Kalli fram
með Vinum Dóra á Blúshátíð á
Hótel Borg. „Við erum búnir að
gera þetta einu sinni áður og það
var alveg frábært. Ég fíla alla
tónlist sem tilfinning er í og það
er nóg af henni í blúsnum. Að
detta í góðan gír með þessum
köllum er alveg frábært.“
Í nýstofnaðri, ónefndri hljóm-
sveit Kalla eru félagar hans Grét-
ar á gítar og Björn á hammond.
Einnig voru að bætast í hópinn
fyrrum bassa- og trommuleikari
Sóldaggar. Kalli er hljómsveitar-
stjórinn en virðist þó ekkert vera
með svipuna á lofti. „Ég stóla
náttúrlega á góð ráð góðra manna
en ég tek ákvörðunina um hvað
eigi að gera og hvert eigi að
fara,“ segir hann. „Við ætlum
ekkert að einsetja okkur að vera
bara ballsveit, bara tónleikasveit
eða bara eitt eða neitt. Við ætlum
bara að vera eins góðir og við
getum.“ ■
KALLI BJARNI
Hefur ekki mikinn tíma til þess
að halla höfði þessa dagana.
Fyrst varð vart við Ástu S.Guðbjartsdóttur þegar hún
var skráð fyrir þýðingu bókar-
innar Da Vinci lykillinn. Nafn
hennar vakti strax nokkra at-
hygli þar sem fáir höfðu áður
heyrt hennar getið og segist hún
hafa hellt sér í verkið af æðis-
gengnum krafti og lokið þýð-
ingu á fimm vikum.
„Ég hafði lesið bókina þegar
leitað var til mín og fannst hún
svo spennandi og dularfull að ég
gat ekki lagt hana frá mér, þótt
ég væri stödd í heimsókn hjá
ættmennum mínum sem ég hitti
afar sjaldan í portúgalska Pó-
dalnum.“
Ásta er álíka huldukona í ís-
lenskum bókmenntaheimi og
rithöfundurinn Stella Blómkvist
en virðist þó öllu fjölhæfari og
sigldari en auk þess að hafa tek-
ið að sér að hanna bókakápur
fyrir svörtu línu bókaútgáfunn-
ar Bjarts, starfar hún á lög-
fræðideild útgáfunnar og sér
um réttindastofu hennar. Hún
segir að þetta sé krefjandi
starfsvettvangur sem þurfi mik-
ið næði og því er oft erfitt að ná
á henni. Hjá Bjarti hefur hún
starfað í sex ár og hefur sinnt
þar ýmsum verkum. Í fyrstu var
hún eingöngu í léttum skrif-
stofustörfum og segir hún það
skýrast af því að hún hafi verið
hálfhölt í íslenskunni eftir ára-
tugadvöl í sunnanverðri Evrópu
en áður en hún skaut upp kollin-
um í íslenskum bókmenntaheimi
hafði hún ýmislegt reynt.
„Foreldrar mínir stunduðu
búskap í Jökuldalnum þar sem
ég ólst upp og voru með lítið
fjárbú þar. Sjálf er ég lögfræði-
menntuð og fór svo í framhalds-
nám í Alþýðuháskólanum í
Moskvu. Þar rak ég hjónabands-
ráðgjöf með skóla. Síðan gekk
ég til liðs við evrópskan leik-
flokk sem kallaði sig Mr Ryder
og starfaði í átta ár með honum
sem leikhöfundur og leikstjóri
við sýningarhald í öllum helstu
borgum Suður- og Austur-
Evrópu.“ ■
Dularfullur þýðandi og hönnuður
Huldukona
ÁSTA S. GUÐBJARTSDÓTTIR
■ Enginn hafði heyrt hennar getið fyrr en
hún var skráð fyrir þýðingunni á Da Vinci
lyklinum. Hún er ekki skráð í þjóðskrá en
er samt allt í öllu hjá bókaútgáfunni Bjarti.
Æviferill hennar og hæfileikar benda til
þess að hún sé ekki kona einhöm.
ÁSTA S. GUÐBJARTSDÓTTIR
Enginn hefur séð þessa dularfullu
konu sem virðist vera lífið og sálin í
bókaútgáfunni Bjarti. Hún þykist þó
ætla á stúfana á bókmenntakvöldi út-
gáfunnar á Súfistanum í kvöld og
mæta þar uppábúin með vellyktandi.
Kalli Bjarni
stofnar hljómsveit