Fréttablaðið - 03.06.2004, Síða 1

Fréttablaðið - 03.06.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 FIMMTUDAGUR ÞRÍR STÚLKNAKÓRAR Þrír kórar sem eru á leið í vikulangt tónleikaferða- lag til Ítalíu halda tónleika í Grensáskirkju í kvöld klukkan 20. Kórarnir eru Stúlkna- kór Reykjavík, Unglingakór Digraneskirkju og Stúlknakór Grensáskirkju. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG BJART MEÐ KÖFLUM í höfuðborginni og vestan og norðan til. Skýjað að mestu við suðurströndina. Smáskúrir á víð og dreif, einkum síðdegis. Sjá síðu 6. 3. júní 2004 – 149. tölublað – 4. árgangur ● ferðir ● tilboð Heldur upp á Þórshöfn Helga Haraldsdóttir: ● er í viðræðum við Miramax Stuttmyndin Bjargvættur sópar að sér verðlaunum Erla Stefánsdóttir: ▲ SÍÐA 42 EINN JÁTAR ALLA SÖK Fyrrverandi aðalféhirðir Landssímans játar á sig alla sök í Landssímamálinu. Hann segir að aðrir sak- borningar hafi ekki vitað að hann hafi dregið sér fé úr sjóðum fyrirtækisins. Sjá síðu 12 GEÐDEILD LOKAÐ Nær 40 manna geð- deild að Arnarholti á Kjalarnesi verður lokað í haust. Ástæðan er niðurskurður hjá Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Ekki hefur verið ákveðið hvað verður um sjúklingana. Sjá síðu 14 BRENNUVARGUR ÚR LANDI Maður sem kveikti í íbúð á Bræðraborgarstíg er farinn úr landi án þess að lögregla hafi haft tök á að yfirheyra hann. Það gerir rannsókn málsins erfiðari en ella og óvíst með næstu skref. Sjá síðu 17 LÆKKAR Á NÆSTA ÁRI Bifreiðaeig- endur þurfa ekki að gera sér vonir um að bensínverð lækki á næstunni, samkvæmt spá Seðlabankans. Verðið hækkar áfram í ár en lækkar hratt á næsta ári að mati bankans. Sjá síðu 14 ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS Kvikmyndir 38 Tónlist 34 Leikhús 34 Myndlist 34 Íþróttir 36 Sjónvarp 40 MÁLSSKOT Í fyrsta sinn í sögu lýð- veldisins hefur forseti Íslands neit- að lögum staðfestingu og vísað þeim til þjóðaratkvæðagreiðslu. Í gær tilkynnti Ólafur Ragnar Gríms- son á blaðamannafundi á Bessastöð- um að hann muni ekki undirrita fjölmiðlalögin. Varð hann þá fyrsti forseti landsins sem beitir þeim rétti sem honum er áskilinn sam- kvæmt 26. grein stjórnarskrárinn- ar. Þar segir að forseta sé heimilt að vísa lögum í dóm þjóðarinnar. Ólafur Ragnar las upp yfirlýs- ingu þar sem hann skýrði ástæður ákvörðunar sinnar. Þar sagði hann að skort hafi þann samhljóm sem þurfi að vera milli þings og þjóðar í svo mikilvægu máli. „Við búum við stjórnskipan þar sem forseti Íslands og aðrir kjörnir fulltrúar sækja vald sitt og umboð til þjóðarinnar. Þjóðin hefur sam- kvæmt stjórnar- skránni síðasta orðið,“ sagði Ólafur Ragnar. Fulltrúar allra fjölmiðla voru sam- an komnir á Bessa- stöðum og ríkti mikil óvissa um hver ákvörðun forseta yrði. Til- kynnt var fyrir upphaf fundarins að forsetinn myndi ekki svara spurn- ingum fréttamanna. Áður en forseti hóf lestur yfirlýsingar sinnar sagði hann við fréttamenn að honum þætti rétt að yfirlýsingin fengi að tala sínu máli ein og sér. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur ítrekað lýst yfir efasemdum sínum í fjölmiðlum um að forseti hafi rétt til að neita lögum staðfest- ingar. Hann kaus þó að tjá sig ekki um ákvörðun forseta í gær. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins telur hann að með ákvörð- un forsetans sé vegið að þingræð- inu. Að því er Fréttablaðið kemst næst er þetta mikið áfall fyrir ríkisstjórnina. Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í gær að ákvörðun forseta hefði komið ríkis- stjórninni algjörlega í opna skjöldu. Upp væri komið fullkomið óvissuá- stand um framhaldið og leita þurfi álits lögfræðinga vegna stöðu sem aldrei áður hefði komið upp. Hann sagði að öruggt væri að þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram um fjölmiðlalögin. Samkvæmt stjórnarskránni skuli hún fara fram svo fljótt sem verða má, og það beri að virða. „Ekkert liggur fyrir um það hvernig hún á að fara fram. Ljóst er að setja verður löggjöf um þjóðarat- kvæðagreiðslu og aðeins Alþingi getur gert það,“ sagði Halldór. Forseti tilkynnti forsætisráð- herra og utanríkisráðherra um ákvörðun sína símleiðis klukkan hálf fjögur í gær. Ráðherrar Fram- sóknarflokksins funduðu í kjölfarið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra var eini ráð- herra sjálfstæðismanna sem vildi tjá sig um málið. Hún sagðist halda að mikilvægari löggjöf en þessa hefði átt að leggja undir dóm þjóð- arinnar, fyrst verið væri að gera það í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Með ákvörðun sinni hefur Ólafur Ragnar kallað fram róttæka breyt- ingu á íslensku stjórnskipuninni eins og hún hefur verið í reynd, að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors í stjórnmálafræði. Hann sagði jafn- framt að ákvörðun forseta feli í sér umtalsverða breytingu á forseta- embættinu, það sé nú pólitískara. sda@frettabladid.is Til þjóðarinnar Forseti neitaði lögum staðfestingar í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins. Fjölmiðlalögunum verður vísað til þjóðaratkvæðagreiðslu en kalla þarf saman Alþingi til að setja lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. BT bæklingurinn fylgir Fréttablaðinu í dag „Þjóðin hefur samkvæmt stjórnarskrá- nni síðasta orðið. Opið til 21.00 í kvöld ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSON, FORSETI ÍSLANDS Braut blað í sögu þjóðarinnar með því að synja lögum staðfestingar. Aldrei áður í sögu lýðveldisins hefur forseti tekið þá ákvörðun. Sagði Ólafur Ragnar að skort hefði samhljóm milli þingvilja og þjóðarvilja í málinu. „Þjóðin hefur síðasta orðið,” sagði hann í yfirlýsingu sinni. Algjör óvissa um framhaldið . . .2 Embættið verður pólitískara en áður . . . . . . . . . . . . . . . . . . .4 Kalla verður saman Alþingi . .6 Þjóðaratkvæðagreiðsla í höndum forsætisráðherra . . . . . . . . . .8 Ítarleg umfjöllun um fjölmiðlafrumvarpsmálið FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.