Fréttablaðið - 03.06.2004, Síða 16
16 3. júní 2004 FIMMTUDAGUR
ALLT Á FULLU
Það var nóg um að vera á olíumörkuðum í
gær. Augljóst var að ekki voru allir á eitt
sáttir um hvernig mál þróuðust.
Undirskriftasöfnun hafin gegn kaupum á Liverpool:
Stjórnin kaupi ekki fótboltalið
TAÍLAND, AP Á fjórða hundrað Taí-
lendinga hófu í gær undir-
skriftasöfnun þar sem þess er
krafist að stjórnvöld hætti við
að kaupa hlut í enska úrvals-
deildarliðinu Liverpool en
stjórnvöld hyggjast nota lottó
landsins til að afla fjár til kaup-
anna.
Andstæðingar áformanna
héldu á lofti spjöldum þar sem á
stóð: „Stöðvið spillinguna - hætt-
ið að kaupa Liverpool með okkar
peningum!“. Einnig veifuðu þeir
myndum af leikmönnum Liver-
pool sem var búið að mála stopp-
merki yfir.
Thaksin Shinawatra, forsæt-
isráðherra Taílands, hefur boðið
í 30 prósenta hlut í Liverpool og
hyggst láta hlutafélag í eigu
íþróttamálaráðuneytis landsins
halda utan um hlutabréfin.
Sjálfur segir hann að samningur
um kaupin sé svo gott sem frá-
genginn og einungis eftir að
ganga frá smáatriðum.
Mótmælendurnir, sem flestir
eru námsmenn, segja að kaupin
verði til þess að draga úr sið-
ferðisvitund almennings og
kalla þau spillingu. Nái þeir að
safna 50.000 undirskriftum
verður þingið að yfirfara samn-
inginn og ákveða hvort hann
verði samþykktur eður ei. ■
Minnsta fylgi við ríkisstjórn-
ina frá stofnun hennar
Í þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að fylgi við ríkisstjórnina er einungis um 40 prósent og að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki mælst með minna fylgi frá árinu 1993. Samanburður við könn-
un Fréttablaðsins sýnir miklar sveiflur í fylgi við flokka og stjórn.
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnin er bara
með um 40 prósenta fylgi kjós-
enda, að því er fram kemur í
símakönnun sem IMG Gallup
gerði dagana 28. apríl til 26. maí
síðastliðinn. Fylgi ríkisstjórnar
hefur ekki mælst jafn lítið í ann-
an tíma og fylgi Sjálfstæðis-
flokks hefur ekki farið niður
fyrir 30 prósent síðan í október
1993. Samkvæmt þjóðarpúlsi
Gallup eru einnig talsverðar
breytingar á fylgi Samfylkingar
og Sjálfstæðisflokks frá því í
síðasta mánuði. Staða stjórnar-
flokkanna er þó heldur skárri í
þjóðarpúlsinum en fram kom í
könnun Fréttablaðsins 22. maí
síðastliðinn. Í henni mældist
stuðningur við ríkisstjórnina
bara 30,9 prósent. Þarna munar
tæpum 10 prósentum á könnun
Fréttablaðsins og IMG Gallup.
Að sögn Ásdísar G. Ragnars-
dóttur, verkefnisstjóra hjá IMG
Gallup, mældist ekki marktæk-
ur munur á svörum fólks eftir
vikum í þjóðarpúlsinum. „Svo
var frumvarpið um eignarhald
fjölmiðla líka í hámæli allan
tímann, því það var lagt fram 26.
apríl,“ sagði hún.
Kannanir eru tilviljanafræði
Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, sagði að honum
hefði þótt líklegast að munurinn
skýrðist á því að könnun IMG
væri gerð á mun lengri tíma en
Fréttablaðsins. „En fyrst svo er
ekki þá er nú líklegast að blaðið
hafi lent á óheppilegu úrtaki.
Hinn möguleikinn er svo auðvit-
að að einhver hópur svarenda
svari ekki Fréttablaðinu,“ sagði
hann. „En kannanir eru tilvilj-
anafræði og reglulega lenda
menn á skekktu úrtaki. Enda á
aldrei að ganga mjög langt í að
túlka niðurstöður kannanna, því
alltaf eru vissar líkur á skekkju
og stundum fæst bara kolvitlaus
niðurstaða.“ Gunnar Helgi sagði
að einnig gætu ótal þættir í
framkvæmd kannanna haft
áhrif.
Hann sagði þó fátt nýtt á
ferðinni í könnun IMG Gallup
frá því sem var í könnun Frétta-
blaðsins undir lok maí. „Niður-
staðan er svipuð. Og þótt að
sveiflan sé ekki jafn afgerandi í
könnun IMG Gallup þá er hún í
sömu átt,“ sagði hann og taldi að
enn gilti það sama um ástæður
mikillar niðursveiflu Sjálfstæð-
isflokksins, að þar kæmu fram
áhrif umræðu um frumvarp rík-
isstjórnarinnar um eignarhald á
fjölmiðlum. „Svo er Framsókn-
arflokkurinn svo sem ekki með
mikið fylgi, en hann heldur sér
þó betur en Sjálfstæðisflokkur-
inn í þjóðarpúlsinum. Ég veit
ekki vel hvað hægt er að lesa í
það,“ sagði Gunnar Helgi.
Samfylking stærri en Sjálf-
stæðisflokkur
Samkvæmt þjóðarpúlsi
Gallup missir Sjálfstæðisflokk-
urinn um 5 prósenta fylgi og
Samfylkingin eykur fylgi sitt
um 4 prósent og hefur nú sam-
kvæmt þjóðarpúlsinum um 4
prósentum meira fylgi en Sjálf-
stæðisflokkurinn. Fram kemur
að ef kosið yrði til Alþingis í
dag fengi Samfylkingin
naumlega 33 prósenta fylgi,
Sjálfstæðisflokkur rösklega
29 prósent, Vinstrihreyfing-
in grænt framboð bætti við
sig einu prósenti og fengi
tæp 19 prósent, Framsóknar-
flokkurinn fengi tæp 14 pró-
sent og Frjálslyndi flokkurinn
5,5 prósenta fylgi. Stjórnarand-
stöðuflokkarnir eru því með um
57 prósenta fylgi en stjórnar-
flokkarnir um 43 prósent, hjá
þeim sem afstöðu taka. Um 17
prósent tóku ekki afstöðu eða
neituðu að svara og 7 prósent
sögðust ætla að skila auðu.
Konur andsnúnari
ríkisstjórninni
Jafnframt kemur fram í
könnun IMG Gallup að stjórnar-
flokkarnir hafa innan við helm-
ingsfylgi í öllum kjördæmum og
líkt og í fyrri könnun Frétta-
blaðsins er greinilegt að ríkis-
stjórnin nýtur töluvert minna
fylgis meðal kvenna en karla. Í
þjóðarpúlsi Gallup kemur fram
að einungis um 39
prósent kven-
na styðja
stjórnar-
flokkana
á móti 46
prósent-
u m
k a r l a .
Þá fá
stjórn-
arand-
stöðu-
f lokk-
a r n i r
■ ASÍA
LEIFSSTÖÐ
Farþegum fjölgaði mjög í maí.
Leifsstöð:
Mikil fjölgun
farþega
FERÐALÖG Farþegum um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar fjölgaði um
tæplega 28 prósent í maímánuði
miðað við sama tíma í fyrra, úr
rúmlega 105 þúsund farþegum
árið 2003 í rúmlega 134 þúsund
farþega nú.
Fjölgun farþega til og frá Ís-
landi nemur tæplega 26 prósent
milli ára. Farþegum sem milli-
lenda hér á landi á leið yfir
Norður-Atlantshafið fjölgar þó
hlutfallslega enn meira eða um
37 prósent.
Alls hefur farþegum um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
fjölgað um rúmlega 22 prósent
það sem af er árinu miðað við
sama tíma árið 2003, eða úr
rúmlega 423 þúsund farþegum í
tæplega 517 þúsund farþega. ■
VERSLUNARMIÐSTÖÐ HRUNDI
Tíu manns slösuðust, þar af
tveir alvarlega, þegar hluti
verslunarmiðstöðvar í Bang-
kok, höfuðborg Taílands, hrun-
di. Verkamenn voru að rífa efri
hæðir byggingarinnar en þá
vildi ekki betur til en svo að
hluti hennar hrundi.
MANNSKAÐAVEÐUR Sextán lét-
ust og margir misstu heimili
sín þegar kröftugir vindar ollu
miklum usla í nokkrum þorpum
indverska fylkisins Bihar. Veð-
urfræðingar sögðu vindana fyr-
irboða monsúnrigninga og
spáðu því að fleiri stormar
kynnu að ganga yfir.
HNEPPTUR Í VARÐHALD Lýð-
ræðissinni frá Myanmar, sem
heldur úti dagblaði í Malasíu
þar sem hann berst fyrir lýð-
ræðisumbótum, segir að mala-
sískir öryggislögreglumenn
hafi hneppt sig í varðhald með-
an forsætisráðherra Myanmar
var þar í heimsókn. Hann hafði
ætlað að reyna að ná viðtali við
forsætisráðherrann.
STÖÐVIÐ SPILLINGUNA -
EKKI KAUPA LIVERPOOL
Það fór ekki á milli mála að Taílendingar eru
margir hverjir ósáttir við áform stjórnvalda
um að kaupa þriðjungshlut í Liverpool.
Tannlæknar:
Verðskrá á
stofurnar
HEILBRIGÐISMÁL Samkeppnisstofnun
hefur gefið út reglur um verðupp-
lýsingar á þjónustu tannlækna í
þeim tilgangi að bæta upplýsingar
til neytenda og auðvelda verðsam-
anburð.
Samkvæmt reglunum á gjald-
skrá að liggja frammi á tannlækna-
stofu sem sýnir verð á öllum að-
gerðarliðum sem framkvæmdar
eru hjá tannlækni. Reglurnar taka
til allra sjálfstætt starfandi tann-
lækna og þeim er gert skylt að hafa
útdrátt úr gjaldskrá á áberandi stað
á biðstofu sinni.
Reglurnar taka gildi frá 1. sept-
ember næstkomandi. ■
BREYTINGAR FRÁ KOSNING-
UNUM Í MAÍ 2003, SAM-
KVÆMT ÞJÓÐARPÚLSI GALLUP:
Sjálfstæðisflokkur missir 5 prósent
Framsóknarflokkur missir 4 prósent
Frjálslyndi flokkurinn missir 2 prósent
VG bætir við sig 10 prósentum
Samfylkingin bætir við sig 2 prósentum
FORMENN STJÓRNARFLOKKANNA
Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokks, og Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokks, gleðjast tæpast yfir niðurstöðum þjóðar-
púls IMG Gallups, enda stuðningur við ríkisstjórnina í sögulegu lágmarki.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Þróunin á fylgi
flokka og ríkisstjórn-
ar samkvæmt þjóðarpúlsi
Gallup frá því í ágúst í fyrra.
Áberandi er afgerandi nið-
urdýfa ríkisstjórnarinnar og
ríkisstjórnarflokkanna frá
því í apríl.
ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
FYLGISÞRÓUN FLOKKA OG
RÍKISSTJÓRNAR
,,
FJÖLMIÐLALÖG SKÝRINGIN
„Langlíklegast er að meginástæð-
an fyrir þessari niðursveiflu sé fjöl-
miðlafrumvarpið,“ segir Ólafur Þ
Harðarson.