Fréttablaðið - 03.06.2004, Síða 19
FIMMTUDAGUR 3. júní 2004
NEYTENDUR Offramleiðsla á kjúk-
lingi veldur því að varan er of oft
seld undir kostnaðarverði til neyt-
enda, sem gerir jafnframt rekstr-
argrundvöll kjúklingafyrirtækja
afar erfiðan. Þetta kemur fram í
máli Helgu Láru Hólm, fram-
kvæmdastjóra Ísfugls, á vefsíðu
Bændasamtaka Íslands en fyrir-
tækið er eitt fárra sem ekki hafa
verið í taprekstri í þessum mat-
vælageira undanfarin ár. Bindur
hún vonir við að dregið verði úr
framleiðslu hér á landi en segir
það erfitt þar sem margir óttast
að missa þá hlutdeild sína á erfið-
um matvælamarkaði hér á landi.
Mörg fyrirtæki í þessum rekstri
hafi farið yfir um á síðustu miss-
erum. ■
Kjúklingarækt:
Offramleiðsla veldur
lágu verði
KJÚKLINGARÆKT
Fyrirtæki innan greinarinnar standa flest
höllum fæti vegna offramleiðslu.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/H
AR
I
TÍGUR KÆLIR SIG Í HITABYLGJU
Mikil hitabylgja hefur gengið yfir nokkur héruð Indlands að undanförnu. Í Bhopal hefur
hitinn farið í 44 stig og varð það til þess að yfirvöld í Van Vihar dýrafriðlandinu settu upp
vatnsúðara svo dýrin, eins og þessi Bengaltígur, gætu kælt sig.
BRASILÍA, AP Lögreglumenn sem
héldu inn í Benfica-fangelsið í
Brasilíu eftir þriggja daga upp-
reisn fanga fundu í það minnsta
38 lík og voru sum þeirra mjög
illa leikin. Rannsóknarlögreglu-
menn telja að meðlimir glæpa-
klíka hafi ákveðið að nota tæki-
færið meðan á uppreisninni stóð
og hefna sín á óvinum sínum.
„Ég sá afskorin höfuð, ég sá
líkamshluta sem hafði verið kast-
að í jörðina og hent í ruslið,“ sagði
Geraldo Moreira, fylkisþingmað-
ur í Ríó. „Mér varð bumbult af
þessu og eftir nokkra stund varð
ég að fara út,“ sagði hann en þá
hafði hann talið 28 lík.
Fangarnir tóku völdin í fang-
elsinu á laugardag en henni lauk
aðfaranótt þriðjudags þegar lög-
reglan samþykkti að skilja á milli
fanga úr ólíkum klíkum, sem er
haldið í fangelsinu. Meðan á upp-
reisninni stóð flýðu í það minnsta
fjórtán af um 900 föngum en þrír
þeirra náðust. Fangavörður sem
fangar tóku í gíslingu var skotinn
til bana þegar hann reyndi flótta
úr fangelsinu. ■
SKILABOÐ TIL ÆTTINGJA
Fangar skrifuðu skilaboð til ættingja og vina á pappaspjöld og héldu þeim út um göt á
veggjum fangelsisins.
■ EVRÓPA
AJAX-AÐDÁANDI ELSTUR ALLRA 113
ára hollensk kona er orðin elsta
núlifandi manneskja í heimi eftir
að 114 ára kona
frá Púertó Ríkó
lést. Hendrikka
van Andel-
Schipper fæddist
29. júní 1890,
hefur haldið með
Ajax í 85 ár og spaugaði með það
að galdurinn við langlífið væri að
halda áfram að draga andann.
VOPNAHLÉ FELLT ÚR GILDI Samtök
Kúrda í Tyrklandi, sem áður gengu
undir nafninu Verkalýðsflokkur
Kúrdistan, hafa fellt einhliða
vopnahlé sitt gagnvart Tyrkjum úr
gildi og vara erlenda fjárfesta og
ferðamenn við því að koma til
Íraks. 37.000 manns létu lífið í
fimmtán ára átökum Kúrda og
Tyrkja fram til 1999.
KJARNORKUVERI LOKAÐ
Rífa á Salaspilskjarnorkuverið sem
er rétt fyrir utan Ríga, höfuðborg
Lettlands. Verið var byggt árið
1961, þegar Lettland var hluti af
Sovétríkjunum, en því var lokað
1999. Nú hafa stjórnvöld fengið
styrk frá Bandaríkjastjórn til að
rífa það og senda úraníum sem þar
er geymt til Rússlands.
Blóðugri uppreisn í brasilísku fangelsi lokið:
Nær 40 fangar myrtir
2.000 ÁBENDINGAR Bandarísku
alríkislögreglunni, FBI, bárust
rúmlega 2.000 ábendingar fyrsta
sólarhringinn eftir að birtar voru
myndir af sjö einstaklingum sem
yfirvöld leita að og telja að teng-
ist al-Kaída hryðjuverkahreyf-
ingunni. ■
■ BANDARÍKIN
M
YN
D
/AB