Fréttablaðið - 03.06.2004, Side 27

Fréttablaðið - 03.06.2004, Side 27
FIMMTUDAGUR 3. júní 2004 Léttöl Tóner í prentara er kostnaðarsöm rekstarvara og því hagstætt að kynna sér hvar hann er ódýrastur. Til að skera sig úr í harðri sam- keppni hafa Office 1-verslanirnar ákveðið að ábyrgjast ávallt lægsta verð á tóner. Því til tryggingar veita þær tveggja vikna verðvernd, sem þýðir að ef tónerinn er fáan- legur ódýrari annars staðar lækkar verslunin verðið hjá sér og endur- greiðir mismuninn. Viðskiptavinur- inn þarf því aðeins að koma með nótu í verslunina sem sýnir fram á lægra verð á tóner annars staðar. Mikið úrval vörumerkja er fáan- legt hjá Office 1, svo sem Canon, Lexmark, Epson, Ricoh, HP og fleiri. Verslanirnar eru í Skeifunni, Smáralind, Akureyri og Egilsstöð- um og í þeim er annars að finna fjölbreytt úrval af skrifstofubúnaði og rekstarvörum. ■ Office 1: Ódýrasti tónerinn Guðjón Benfield, sölumaður í Office 1, tryggir ódýrasta tónerinn. Tveir fyrir einn til Barcelona bjóðast 17. júní frá 19.990 kr. hjá Heimsferð- um. Hægt er að velja um flugsæti ein- göngu, flug og bíl á frábærum kjörum eða eitt af vinsælum hótelum í hjarta Barcelona. Tveir fyrir einn til Benidorm bjóðast einnig frá 19.990 krónum. Hótelgisting kostar frá 2.490 kr. nóttin á hótel Trinisol III miðað við tvo í íbúð á mann á nóttu. Stokkið til Mallorca 16. júní frá 34.995 kr. með Heimsferðum. Bókað er núna til að tryggja síðustu sætin og þremur dögum fyrir brottför færðu að vita á hvaða gististað þú býrð. Verð 34.995 kr. miðað við hjón með 2 börn, 2-11 ára. Verð er frá 44.990 krónum miðað við tvo í íbúð. Krít á góðu verði stendur til boða hjá ferðaskrifstofunni Heimsferðum. Verð á mann er 49.900 kr. miðað við tvo í stúdíói í viku. Íbúðahótelið Helios er með fallegum og rúmgóðum íbúð- um, sundlaug, barnalaug og snakkbar. Örstutt á ströndina. Verslanir og veit- ingastaðir eru í næsta nágrenni. Örfáar íbúðir á tilboðsverði. Aukavika kostar 16.600 kr. á mann. Grískur lúxus stendur til boða hjá ferðaskrifstofunni Úrval Útsýn. Um er að ræða vikudvöl á lúxushóteli með hálfu fæði. Sumartilboðið er 21. og 28. júní. Hótelið stendur við ströndina í Platanias í göngufæri við veitingstaði, verslanir og bari. Loftkæld herbergi, sundlaug, barir og veitingasalur. Örfá herbergi á þessu tilboði. Verð á mann er 59.720 kr. í tví- býli í sjö nætur með hálfu fæði. 56.720 kr. í þríbýli í sjö nætur með hálfu fæði. Aukagjald fyrir einbýli er 12.600 kr. [ ÚT Í HEIM ] Spurningin „Já, ég versla á tilboðum og fylgist með þessum blöðum sem verslanirnar dreifa heim til manns. Það er ekki spurning að það borgar sig.“ Jón Axel Pétursson Verslarðu á tilboðum?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.