Fréttablaðið - 03.06.2004, Qupperneq 54
42 3. júní 2004 FIMMTUDAGUR
Bubbi semur hugljúfa barnabók
Það eru fjögur ár síðan égteiknaði upp hugmyndina að
sögunni,“ segir Bubbi Morthens
sem hefur að undanförnu unnið að
barnabók í samvinnu við breska
rithöfundinn og blaðamanninn
Robert Jackson. „Hugmyndin var
síðan í salti í nokkurn tíma en í
millitíðinni las ég bók eftir Robert
Jackson, sem heitir 69 gráður
norður og gerist á bökkum lax-
veiðiár í Rússlandi. Svo vildi það
til að ég hitti breska kappann í
laxveiði í Laxá og sagði honum frá
þessari hugmynd minni. Þá
ákváðum við að slá saman og gera
þessa bók sem við byrjuðum á í
lok desember.“
Bókin er nú tilbúin og Halldór
Baldursson hefur séð um að
myndskreyta söguna. „Silja Aðal-
steinsdóttir hefur nýverið lokið
við að þýða bókina á íslensku.
Það hefði ekki verið hægt að fá
betri þýðanda í verkið því Silja
hefur svo góðan skilning á barna-
bókmenntum,“ segir Bubbi en
Silja hefur haft veg og vanda að
þýðingu á barnabókum Madonnu
og má því segja að hún sé farin
að sérhæfa sig í að þýða barna-
bækur eftir stórstjörnur í tónlist-
arbransanum.
En um hvað skyldi svo bók
Bubba fjalla. „Þetta er lítil, sæt
saga sem kemur út í haust og mun
líklega bera titilinn Djúpríki. Í
grófum dráttum er þetta þroska-
saga tveggja laxa sem leggja af
stað í fyrsta, stóra ferðalagið sitt
frá ísilögðu heimskautasvæðinu
upp í ána sína heima á Íslandi. Þeir
lenda í allsvaðalegum ævintýrum,
þrengingum og hasar áður en þeir
rata heim. Sagan fjallar í raun um
lífsferil laxins en um leið erum við
að segja, án þess að í bókinni sé að
finna einhverja predikun, að mað-
ur getur það sem vill ef maður þor-
ir og hefur kjark.“
tora@frettabladid.is
BÆKUR
ROKKKÓNGUR ÍSLANDS
■ Bubbi Morthens hefur nú gert sér lítið
fyrir og samið barnabók ásamt breska
rithöfundinum Robert Jackson. Bókin
kemur út hjá Eddu í haust.
BUBBI MORTHENS
Segja má að laxinn hafi sjálfur séð til þess
að barnabók Bubba lítur nú dagsins ljós
enda er bókin þroskasaga tveggja laxa.
Þetta var lokaverkefnið mitt íNew York University þar sem
ég lagði stund á leikstjórn og kvik-
myndatöku,“ segir Erla B. Skúla-
dóttir um stuttmyndina Bjarg-
vættur en myndin hefur sópað að
sér verðlaunum í Bandaríkjunum.
„Skólinn hélt hátíð í lok apríl í
samstarfi við New York Magazine,
sem er stærsta tímaritið hér í
borginni, en í dómnefndinni voru
utanaðkomandi aðilar, meðal ann-
ars kvikmyndagagnrýnandi frá
tímaritinu New York Magazine og
fulltrúi frá Miramax.“
Bjargvættur skartar íslensk-
um leikurum og er tekin upp á Ís-
landi. „Aðalleikkonan Freydís
stóð sig svo vel í tökum að maður-
inn minn ákvað að verðlauna hana
með því að bjóða henni í heimsókn
til New York þegar myndin yrði
sýnd. Það var alveg stórkostlegt
og það sem mér finnst hafa verið
mest gefandi er að hafa setið hjá
henni þegar nafnið hennar var
nefnt og hún fór upp á svið til að
taka við verðlaunum,“ segir Erla
en Freydís Kristófersdóttir hefur
áður leikið í kvikmyndunum
Stikkfrí og Íkingút.
Stuttmynd Erlu er 28 mínútur
að lengd og fjallar um fjórtán ára
stelpu sem er send í sumarbúðir
eftir að foreldrar hennar komast
að því að hún er byrjuð að drekka.
„Kaja er að leita að sínum stað í
lífinu eins og svo margir aðrir en
það sem ég held að heilli Banda-
ríkjamenn sérstaklega er íslenska
landslagið í myndinni. Kaja strýk-
ur úr sumarbúðunum og náttúran
og veðrið leika nokkurs konar
andhetju Kaju þegar hún reynir
að koma sér frá sumarbúðunum
til Reykjavíkur.“
Bjargvættur vann einnig
fyrstu verðlaun sem besta stutt-
myndin á kvikmyndahátíðinni í
Nashville. „Þessi verðlaun gera
mig gjaldgenga til að sækja um
Óskarsverðlaunin og það verður
spennandi að sjá hvernig það fer.
Það hefur mikið gerst í kjölfar
þessara hátíða og mér hefur verið
boðið að fara til Los Angeles þar
sem verður haldin sýning á mynd-
inni fyrir stúdíófólk og umboðs-
menn í Hollywood. Eftir það hef
ég svo verið boðuð á fund til að
ræða við starfsmenn Miramax.“
Erla, sem útskrifaðist úr Leik-
listarskóla Íslands árið 1982 og
lagði eftir það stund á látbragðs-
leik í París og síðar kvikmynda-
gerð í New York, virðist hafa
fundið sinn stað og er byrjuð að
skrifa handrit að kvikmynd í full-
ri lengd. „Ég er að bræða með
mér séríslenska hugmynd og þyk-
ir líklegt að næsta mynd verði
spennusaga þar sem nútímatækni
blandast þjóðsögum og trú á tröll,
álfa og huldufólk.“ ■
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Tryggvi Þór Herbertsson.
Í Svíþjóð.
Róbert Melax. Hann er annar
tveggja stofnenda Lyfju.
Þetta er nútímaskáldsaga semgerist á Þorláksmessu. Hún
verður tengd þessu heilsulífskölti,
Herbalife og þannig dóti. Annars
gefum við lítið upp um efni bókar-
innar,“ segir Hannes Óli Ágústs-
son sem situr við bókaskriftir
þessa dagana. Það sem gerir þessi
skrif óvenjuleg er að Hannes vinn-
ur við bókina ásamt þremur öðr-
um háskólanemum. „Hitt Húsið
styrkir á hverju ári fólk sem vinn-
ur skapandi sumarstörf og við
hlutum styrk ásamt 18 öðrum hóp-
um. Hinir hóparnir eru mjög fjöl-
breyttir, það eru tónlistar-, leik-
listar, myndlistar- og skriftarhóp-
ar.“
Þremenningarnir sem vinna
með Hannesi að bókinni eru Frið-
geir Einarsson, Kári Tulinius og
Þórdís Helgadóttir. „Við erum nú á
fullu í hugmyndavinnu en við
erum komin með ákveðinn grunn
til að vinna út frá. Þetta verður
unnið mikið í viðtalsformi en við
gerum sem mestan hluta í sam-
vinnu þó við komust ekki hjá því
að vinna eitthvað hvert í sínu
horni,“ segir Hannes en hann
stundar nám í bókmenntafræði við
Háskóla Íslands ásamt Kára. Frið-
geir er hins vegar íslenskunemi og
Þórdís er í heimspeki.
Vinna við bókina mun standa í
sex vikur en skáldin hafa fengið
aðstöðu í Fjósinu, einu af kennslu-
húsum MR. Enn sem komið er hef-
ur ekki verið tekin ákvörðun um
útgefendur en Hannes segir þau
hafa viðrað hugmyndina við
nokkra aðila, „við komum bókinni
að sjálfsögðu út,“ segir Hannes að
lokum. ■
BÓKAÚTGÁFA
FJÖGUR UNGMENNI
■ sitja við skriftir þessa dagana.
Skáldin eru skapandi starfshópur á veg-
um Hins Hússins.
UNGU SKÁLDIN
Þórdís, Friðgeir, Kári og Hannes vinna hörðum höndum að sinni fyrstu skáldsögu þessa dagana.
Skrifa skáldsögu í Fjósinu
Í viðræðum við Miramax
Hrósið
... fær íslenska kvennalandsliðið í
fótbolta. Þó svo að þær hafi ekki
náð að leggja franska liðið, hafa
þær staðið sig með ólíkindum.
Lárétt: 1 líf, 5 í röð, 6 prófgráða, 7 tveir eins,
8 reitur, 9 stefna, 10 hvíldist, 12 sigað, 13
frestaði, 15 atviksorð, 16 á fæti, 18 skýjahula.
Lóðrétt: 1 uppalandi, 2 hestur, 3 ósigrar, 4
herbergi, 6 orð tengt bridds, 8 eiga heimili,
11 djöfull, 14 kverk, 17 nes.
Lausn:
Lárétt:1fjör, 5hóp,6ba,7rr, 8beð,9
kúrs,10lá,12att,13dró,15ao,16rist,
18tása.
Lóðrétt:1foreldri,2jór, 3töp,4bað-
stofa,6berta, 8búa,11ári,14óst,17tá.
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
ERLA B. STEFÁNSDÓTTIR
Er að gera það gott sem kvikmyndaleikstjóri í Bandaríkjunum.