Tíminn - 04.03.1973, Page 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 4. marz. 1973.
McNab og Keegan
Hér á siöunni i dag, kynnum við fyrir lesendum tvo af beztu knattspyrnumönnum Englands, leikmenn,
sem eiga þaösameiginlegt,að vera frábærir knattspyrnumenn, þeir eru vinsælir og eru báðir að berjast
um Englandsmeistaratitilinn i ár. BOB MCNAB leikur stöðu bakvarðar hjá Lundúnarliðinu Arsenal og
KEVIN KEEGAN leikur stöðu framherja hjá Liverpool. Báðir þessir leikmenn hafa verið keyptir til
félaga sinna. — McNab var keyptur frá Huddersfield Town i okóber 1966 á 50 þús. pund og Keegan var
keyptur frá 4. deildarliðinu Scunthope I april 1971 á 35 þús. pund. Þessir tveir leikmenn hafa leikið með
enska landsliðinu og eru fastir leikmenn með félagsliðum sinum. Þeir eru báðir smávaxnir leikmenn,
sem gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana.
,,ÞU ERT BEZTI BAK-
• •
VORÐUR I HEIMI
II
sagði Bill Shankly, framkvæmdastjóri Liverpool við Bob AAcNab.
„Viltu ekki koma til bezta félagsliðs í heimi?". McNab hefur
leikið vel með Arsenal d yfirstandandi keppnistímabili
BOB McNAB... er einn vinsælasti knattspyrnumaður Arsenal. Hann
hefur veriö fyrirliöi liösins I fjarveru McLintock.
BOB McNAB er tvímæla-
laust einn bezti bakvörður á
Bretlandseyjum í dag.
Þennan litla og eldsnögga
28 ára bakvörð keypti
Arsenal frá Huddersfield
Town í október 1966 á 50
þús. pund — metupphæð
fyrir bakvörð þá. Hann er
einn vinsælasti leimaður
liðsins, hefur yfir geysilegri
yfirferð að ráða, hann
hreinlega þeysist um völl-
inn og valdar upp stöður
fyrir aðra leikmenn
Arsenal. Flestir sóknarleik-
menn 1. deildarliðanna
ensku eru smeykir við
McNab, því að þeir geta
ekkert gert gegn honum —
McNab er það f Ijótur á sér,
að hann leikur oft harð-
skeyttustu sóknarleikmenn
mjög grátt. Á yfirstand-
andi keppnistímabili hefur
McNab heldur betur verið í
essinu sínu, því að hann
hefur fengið að leikja
frjálst og þá kemur snilli
hans bezt í Ijós.
Hin æsispennandi nýja leikað-
ferð, sem kom Arsenal, eða „The
Gunners” eins og liðið er kallað,
svo vel áfram I byrjun keppnis-
timaþilsins, að enskir knatt-
spyrnuunnendur fylltust aðdáun.
Arsenal-liðið byrjaði að leika
nýja leikaðferð. ÓTEÚLEGT! er
eina orðið til að lýsa breytingun-
um. Gunners, sem lék áður þéttan
og sterkan varnarleik, með löng-
um spyrnum fram á hina snjöllu
miðherja. Ray Kennedy og John
Radford, leikur nú skemmtilega
sóknarknattspyrnu, með mjög vel
útfærðum sóknarlotum, en það er
þannig knattspyrna, sem áhorf-
endur vilja sjá og gerir knatt-
spyrnuna að skemmtun.
Þegar Arsenal fór upp á topp-
inn, hló enginn hærra en hinn vin-
sæli Bob McNab, sem likaði nú
lifið. Fyrrverandi enska lands-
liðsbakverðinum þykir ekkert
skemmtilegra, en að taka þátt i
sóknarleikjum. Þótt gamla leik-
aöferðin, sem færöi Arsenal bæði
deildar- og bikarmeistaratitilinn
„Double” 1971, hentaði honum
betur en öðrum. En nú nýtur hann
leikhæfileika sinna betur, þvi að
þeir koma bezt fram I hinu háþró-
aða miðvallarspili Arsenal, þar
sem leikmennirnir leika frábær-
lega á miðjunni og þeir stefna
alltaf fram. Menn segja, að Mc-
Nab sé fæddur til að hlaupa frjáls
um völlinn — hann geti ekki leikiö
öðru visi og þannig hafi hann
leikið frá þvi að hann kom til
Huddersfield, sem áhugamaður.
Þegar hann kom til Huddersfield,
var þar fyrir bakvörður, Ray
Wilson, sem var meistari i „over-
lap” (að taka þátt I sóknarlotum)
og átrúnaðargoð I Englandi, hann
lék i peysu nr. 3, þegar England
varð heimsmeistari 1966.
Bob McNab, hefur sagt um hinn
frábæra Wilson: ,,Ég dáöist alltaf
af Ray Wilson og ég geri ráð fyrir,
að það hafi mótað knattspyrnu-
feril minn mest. Hann var bezti
bakvörður i heimi, og þeir leikir,
sem ég lék með honum hafa kom-
ið mér að miklum notum, þvi að
það sem ég lærði af honum, var
góður skóli”.
Þegar Wilson var seldur til
Everton, tók Bob McNab við
stöðu hans hjá Huddersfield og
aðeins fáum mánuðum, eftir að
Wilson sýndi hæfni sina i heims-
meistarakeppninni 1966, var Mc-
Nab einnig á leiðinni upp á topp-
inn. Þá slógust Arsenal og Liver-
pool um hann, — bæði félögin
buðu honum 50 þús. pund. Og þá
komst af stað enn ein Bill
Shankly-sagan. Frank Mc-
Lintock, segir að Bob McNab segi
oft frá þessari Shankly-sögu i
samkvæmum, sem sinum
skemmtilega skozka málrómi.
Sagan byrjar þannig: Bill
Shankly, framk'væmdastjóri
Liverpool, hitti McNab og sagði:
,,Þú ert bezti bakvörður i heimi,
vilt þú ekki koma og leika með
bezta félagsliði i heimi”. McNab
sagði honum, aö hann væri búinn
að lofa að tala við forráðamenn
Arsenal, daginn eftir. Þegar hann
kom á Highbury, var hann yfir sig
hrifinn af aðstöðunni hjá Arsenal
og liðsandanum hjá leikmönnum
félagsins, og hann ákvað að
ganga i raðir Arsenal-manna.
Bob McNab hringdi I Shankly,
daginn eftir og fer simtalið hér á
éftir:
SHANKLY: „Bill Shankly,
hér”.
McNAB: „Halló, hr. Shankly,
þetta er Bob McNab”.
SHANKLY: „Aha, blessaður
vinur”.
McNAB: „Mér þykir það leitt,
hr. Shankly, en ég hef ákveðið að
leika með Arsenal”.
SHANKLY: „Hvað? ég skil
ekki. . . Allt I lagi, vinur”.
Seinna sögðu leikmenn Liver-
pool, að Shankly hefði sagt við
þá: „Þetta er allt I lagi, strákar,
ég ætlaði aðeins að nota hann i
varaliðið”.
í ljósi þessarar Shankly-sögu,
er það kaldhæðnislegt, að McNab
átti erfitt með að komast I lið á
Highbury fyrr en eftir tvö
keppnistimabil hjá Arsenal. Hann
lék með unglingaliði félagsins,
fyrsta keppnistimabilið 25 leiki og
það siðara 30 leiki. En svo fékk
hinn óheppni McNab slæmt högg
á fótlegg og auk þess slitnaöi
vöðvi og þetta skapaði slæm ökla-
meiðsli. McNab sagði um þessa
erfiðu daga: „Ég var eins og „yo-
yo”. Þegar ég komst i liðið, var
ég hafður sem hægri bakvörður á
móti þeim Simpson og Storey,
sem léku vinstri bakvörð. Þið get-
ið imyndað ykkur hvað ég var
langt niðri”.
Þegar þeir endurskipulögðu
varnarleikinn á Highbury, fékk
McNab uppáhaldsstöðuna sina,
vinstri bakvörð, og hann lék hana
eins og töframaður. Þetta varð til
þess að hann fékk að leika fyrstu
landsleiki sina fyrir England,
fyrst gegn Rúmeniu I nóvember
1968 og siðan i þremur öðrum
sigurleikjum enska liðsins á
keppnistimabilinu.
Staða hans hjá Arsenal var
tryggð og þegar Sir Alf Rasmey
var að velja enska landsliðið fyrir
heimsmeistarakeppnina i Mexikó
1970, var McNab fastur maður i 28
manna hópnum. En þá yfirgaf
Framhald á bls 29
A yfirstandandi keppnistfmabili hefur BOB McNAB,
sóknarknattspyrnu.
fengiö aö leika frálst og sýnt hæfileika sina i
„Ég dáöist alltaf að Ray Wilson og ég geri ráö fyrir
að það hafi mótað knattspyrnuferil minn mest" —
sagði Bob McNab.