Tíminn - 04.03.1973, Side 27
Sunnudagur 4. marz. 1973.
TÍMINN
27
An'na Sveinsdóttir, verkstjóri. Hún byrjaði há fyrirtækinu árið 1932, er það var að Grettisgötu 60. Anna
er 72 ára, en i fullu starfi og hefur góöa stjórn á sinum mátum.
Uppskriftir og
framleiðsla
Uppskriftir af ýmsum
stærðum, (1972) eru endurbættar
ár frá ári, til að bæta vöruna, eig-
inleika hennar og umbúðir.
Uppskriftirnar eru flestallar
erlendar, en það segir ekki nema
hálfa söguna. íslendingar hafa
ekki sama smekk á sælgæti og
aðrar þjóðir. Við viljum ekki hafa
það eins sætt og aðrar þjóðir, t.d.
Danir. Það hefur þvi orðið að
færa þetta til okkar smekks, laga
vöruna að markaðinum.
öðru hverju hafa verið fengnir
erlendir sérfræðingar til að vinna
að framleiðslumálunum, en ella
værihætta á að fyrirtækið forpok-
aðist og einangraðist, þvi að ör
þróun er i sælgætisgerð, og er til
dæmis þýzkur sérfræðingur hjá
okkur núna til aðstoðar.
Um það hvort „islenzkt” sæl-
gæti sé til,er mjög erfitt að segja.
Þetta eru, eins og áður sagði er-
lendar, alþjóðlegar uppskriftir,
sem notaðar eru, en ég hefi þó
aldrei rekizt á sumar vinsælar
brjóstsykurtegundir, sem hér eru
framleiddar, á erlendum mark-
aði. Samt vil ég ekki fullyrða, að
þær fáist ekki ytra, en algengar
eru þær að minnsta kosti ekki.
Umboðsmannakerfi
Sölumál eru með hefðbundnu
sniði i sælgæti. Viö hérna seljum
og afgreiðum beint til seljenda á
Stór-Reykjavikursvæðinu, en höf-
um umboðsmenn úti á landi, sem
hafa lager og afgreiða til kaup-
manna. Birgðastöð SIS tekur vör-
urnar á lager hjá sér og afgreiðir
kaupfélögin. Umboösmenn okkar
eru: Suðureyri — Guðbjörn Krist-
mannsson.
ísafjörður — Sveinbj.
Sveinbjörnsson
Bolungarvik — Einar
Þorsteinsson
Sauðárkrókur — Bjarni
Haraldsson
Akureyri — Guðmundur
Guðlaugsson.
Siglufjörður — Gestur Fanndal.
Seyðisfjörður, — Umb. Hjalta
Nielsen
Sigurbjörn Björnsson sprautar „buff”. Buffin sprautar hann og gerir
stærðog lögun frihendis.Hvert buff á á vega 33 grömm og þaö gera þau
svo ekki skeikar grammi, og ókunnugur undrast leiknina.
Neskaupstaður — Aðalsteinn
Halldórsson og Vestmannaeyjar
— Tryggvi Guðmundsson, en nú
er ekki selt þangað, sem skiljan-
legt er.
Erlend samkeppni
og tollamál
Um samkeppni er það að segja,
að auövitað er mikil samkeppni á
sælgætismarkaöinum. Framleið-
endur eru i harðri samkeppni,
þóttsegja megi að samvinna sæl-
gætisgerðanna sé mjög góð og til
fyrirmyndar. Innflutningur á sæl-
gæti hefur þóhaft sitt að segja, og
tel ég hana ekki óeðlilega, en
hinsvegar er núverandi sam-
keppnisaðstaða óviðunandi.
Innflytjendur búa aö kvóta-
kerfi. Leyft verður að flytja inn
sælgæti fyrir 50.000.000 króna.
Það gerir um það bil 130—150
milljónir króna á heildsöluverði,
eða um 245 milljónir króna á út-
söluverði. Þetta er um 50% af inn-
lendri framleiðslu sælgætis.
Kvótakerfið hefur marga ó-
kosti. Ég held að það ætti bara að
gefa þennan innflutning frjálsan,
þvi leyfin beina viðskiptunum inn
á óæskilegar brautir. Tollar á
sælgæti eru háir, en þeir eiga að
fara lækkandi eftir vissu kerfi og
verður erlent sælgæti tollfrjálst á
Islandi árið 1980.
Ég ætla nú ekki að úttala mig
um framtiðarhorfur sælgætisiðn-
aðarins, vegna harðnandi sam-
Jón Kjartansson, stofnandi og
eigandi sæigætisgerðarinnar Vik-
ingur. Framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins til 1968.
Ragnar Guðmundsson, gjaldkeri
Vfkings. Hefur unnið hjá fyrir-
tækinu I yfir 30 ár.
Texti:
Jónas
Guðmundsson
AAyndir:
Gunnar V.
Andrésson
Sölumenn Vfkings. Friðrik Baldvinsson og Loftur Magnússon.