Tíminn - 04.03.1973, Side 36
Sunnudagur 4. marz. 1973.
Hlégarður j ^'Samkomusalir til leigu fyrir: ^r-rÁ Arshátiöir, Þorrablót, fundi, mrfé ráðstefnur, afmælis- og ferm- SGOÐI l^^Afyrir góöan nmi
> MERKIÐ, SEM GLEÐUR ingarveizlur. Fjölbreyttar ff\ veitingar, stjórir og litlir salir,
- '**—111 *“!*#***»• stórt dansgólf. Uppl. og pantan- MJr lKr xx húsverði I sima 6-61-95. $ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS
Leikir í Laugar-
nesi, þó að lægð
sé yfir landinu
TÍÐIN hefur verið
ieiðinleg að undanförnu,
og þá er mikilvægt, að
geðlægð fylgi ekki lægð-
unum, sem þeir á veður-
stofunni eru sifellt a<T
segja okkur frá. Og
þetta vita hrossin hans
Sigurðar ólafssonar
söngvara i Laugarnesi.
Þau glettast hvert við
annað, þegar illhryss-
ingur er i veðrinu, enda
eru þau vist flest eða öll
af Glettukyni, svo sem
alkunna er.
Þess vegna mundaöi ljós-
myndari Timans, Róbert Agústs-
son, sem var á ferö þarna inn frá
núna einn daginn, vélina sina og
festi fáein leikatriöi á filmu.
Kambur, hestur Snúllu, húsfreyj-
unnar i Laugarnesi, fór meö
annaö hlutverkiö, en meö nafniö á
mótleikarann, sem óneitanlega
lét þó meira aö sér kveöa, þorum
viö ekki aö fara. Nýja Gletta,
gula Gletta eöa þá Hrollur — þótt
allt séu þetta vel þekkt hross, þá
erum viö á Timanum ekki svo
glöggskyggn, aö treystum viö
okkur ekki til þess aö kveöa upp
meö, hvert þeirra þaö er.
En eins og viö höfum áöur tekiö
fram, er skeggiö skylt hökunni,
og allt er þetta Glettukyn. Og
myndirnar geta sannfært menn
um, aö þaö ber nafn meö rentu.
Sauðburður um miðj-
an vetur á Héraði
JK—Egilsstöðum. — Það virðist vera linnulaus
sauðburður hjá Birni Ágústssyni á Móbergi i
Hjaltastaðaþinghá. Hjá honum bar ein ærin 9.
janúar, og 26. febrúar bar svo önnur. Báðar voru
þessar ær einlembdar, en a.m.k. sú, sem bar núna á
dögunum skilaði vænum dilki i haust, og það er
útilit fyrir að hún geri enn betur á hausti komanda.
Ekki sagðist Björn vita neitt um ástæður þess að
ærnar gerðust svo snemmbærar, og hann veit ekki
heldur til, að fleiri eigi að bera nú fljótlega.
Hitaveitan ó
Hvammstanga
reynist vel í
vetrarríkinu
BS— Hvammstanga. Vetrarriki
er mikiö hér i kringum Vatnsnes-
fjall, og má heita, aö allt sé á kafi
i fönn. Samt sem áöur þjakar
okkur ekki kuldi á Hvamms-
tanga, þvi að hitaveitan, sem
komst i gagniö i vetur, reynist
ágætiega.
Engar áhyggjur þarf lengur að
hafa af olluflutningum, og allt,
sem þarf aö gera, er aö snúa
krönum.
Alls eru þaö áttatiu og
fimmhús, sem nú njóta hitaveit-
unnar, og i sumar veröa tengd viö
kerfið þau hús, bæöi á Hvamms-
tanga og meöfram leiðslunni
innan af Laugarbakka, er ekki
hafa enn fengiö héitt vatn. Þau
munu vera tiu til fimmtán.
Guðmundur I.
sendiherra í
Svíþjóð og
Finnlandi
Guðmundur 1. Guðmundsson
afhenti hinn 16. febrúar s.l. Uhro
Kekkonen, forseta, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra i Finnlandi. í
dag afhenti hann Gustaf Adolf
Sviakonungi trúnaðarbréf sitt
sem sendihena i Sviþjóð.
Utanrikisráðuneytið,
Reykjavik, 27. febrúar 1973.