Tíminn - 22.07.1973, Síða 8
8
TÍMÍMft'1
Sunnudagur 22. júli 1973.
■ -
.
a *r. f|
Ilift fræga Parthenon—musteri gnæfir yfir Aþenu sem tákn hins forna draums
[ Draumurinn
um frið og frelsi
FYRIR 2400 árum eða svo leit
lýðræðið dagsins ljós i Hellas og
blómstraði i frelsi og fegurð i 50
stutt ár.
Sigrar Grikkja yfir Persum —
við Maraþon árið 490 f.kr. og við
Salamis árið 480 f.kr. — færðu
landinu þann frið og hin auðugu
ár, sem urðu grundvöllur lýð-
ræðis og fæddu af sér fyrsta
liðveldi veraldarsögunnar.
Lýðræðið kom þó ekki af himnum
ofan og var heldur ekki verk eins
manns, heldur árangur hægfara
stjórnmálaþróunar i Aþenu, og
náði hámarki þegar snillingurinn
Perikles var við völdin.
Það var á þessum gullnu árum,
frá 447 til 433 f. Kr. að nokkrar af
fegurstu byggingum heimsins
urðu til: Parthenon og Erekt-
heion á Akropólishæðinni.
Með friðnum eftir Persastriðið
komu ný vandamál til sögunnar.
Fjárhagurinn hafði verið grund-
vallaðurá striði i fjölda ára. Allir
höfðu haft nóg að gera
annaðhvort við að byggja og
viðhalda flotanum, eða berjast i
hernum og reisa virki.
Snillingurinn Perikles
Perikles — höfðinginn, spek-
ingurinn, stjórnmálamaðurinn og
lýðræðistalsmaðurinn — var bezti
ræðumaðurinn á þjóðþinginu
„Ekklesia-”, sem allir frjálsir
menn áttu aðgang að og höfðu
jafnan rétt. Hann var hvorki for-
sætisráðherra eða i stjórn, en
hann naut mestrar virðingar
meðal sinna jafningja og alltaf
var tekið tillit til alls, sem hann
lagði til málanna.
Til að korna i veg fyrir atvinnu-
leysi og þar með að greiða þyrfti
bætur úr rikiskassanum til
manna, sem unnu ekkert fyrir
rikið, stakk hann upp á þvi, að
reistar yrðu nokkrar opinberar
byggingar, sem krefðust mikils af
öllum. 1 þær skyldi nota grjót,
filabein, gull, ibenvið, sýprusvið
og fleira. Við það fengju vinnu
steinsmiðir, trésmiðir, gull-
smiðir, málarar, myndhöggv-
arar, skipasmiðir, verkamenn,
flutningamenn og flestir aðrir.
Sem sagt, vinna handa öllum og
góðir dagar myndu gera Aþenu
að fagurri og voldugri borg.
Farið var að ráöum Periklesar
og rústirnar á Akropolis, sem
flestar voru af byggingum, sem
eyðilagzt höfðu i striðunum, voru
fjarlægðar til að rýma fyrir
hinum nýju og glæsilegu bygg-
ingum. Þær áttu að verða tákn
fiíns glæstasta og fegursta, sem
sprottið gæti af griskri menningu.
Musterin risu, griðarstór og
hátignarleg og áttu engan sinn
lika, hvað snerti fegurð og iburð.
Verkamenn og listamenn
kepptust við að slá öll met.
Enginn hefði getað trúað þvi, að
slikar byggingar yrðu til á
skemmri tima en nokkrum kyn-
slóðum, en þær risu allar undir
leiðsögn eins manns.
Perikles hafði, eins og allir
miklir stjórnmálamenn, þann
hæfileika að finna réttu mennina i
réttu störfin. Það var snilld að
velja málarann og myndhöggv-
arann Fidias, sem var einn af
mestu snillingum samtiðarinnar,
eins konar da Vinci Grikklands og
hafði vit á bókstaflega öllum
hlutum. Fidias hafði þann hæfi-
leika, að laða það bezta fram i
Gúmmíbótar
Úrvalið er mest
í langstœrstu
sportvöruverzlun landsins
★
é
★ 5 gerðir
★ Þar af þrjór gerðir
fyrir utanborðsmótor
★ Björgunarvesti (verðið
mjög gott)
Póstsendum
SP0RTVAL
Hlemmtorgi — Simi 14390
öllum sinum samverkamönnum.
Árangurinn varð Akropolis —
musterishæðin, þar sem trú,
fegurð og list af guðs náð rennur
saman i eitthvað svo stórkostlegt,
að jafnvel enn i dag, 2400 árum
siðar og i rústum, vekur það
ógleymanlega tilfinningu að
koma þangað upp. Árlega koma
milljónir manna til að skoða
þennan fæðingarstað lýðræðisins.
Sú stærsta og merkasta af
byggingunum á Akropolis er
Parthenon, sem var tákn hins
andlega valds Aþenu. Musterið
var helgað verndargyðju borgar-
innar, Pallas Aþenu, visdóms-
gyðju, dóttur Seifs.
Fullkominn
arkitektúr
Við skulum fara 2400 ár aftur i
timann, til fagurs vormorguns
árið 438 f ,kr. þegar Parthenon var
vigt á árlegri hátið til heiðurs
Pallas Aþenu.
Flötin uppi á hinni 80 metra háu
Akropolishæð, gnæfir yfir
borgina. Skrúðganga er á leið upp
mjóa stiginn á vesturhlið
bjargsins. Fremstir ganga em-
bættismenn i miklum skikkjum,
siðan konur með skálar körfur og
reykelsisker. Þá koma ungu
stúlkurnar, sem ofið hafa og
saumað út klæði mikið handa
gyðjunni. Klæðið er hengt upp i
mastur á skipi, sem dregið er af
vögnum, þannig að allir geti séð
það og dáðst að þvi. Heil hersing
af dýrum, sem fórna skal, fylgir
göngunni, uxar, hrútar og kálfar.
Þá koma þeir, sem halda á
f ór na r g j öf u num , kökum,
hunangi, olifugreinum og vigðu
vatni. Að lokum stolt Aþenu:
Ungir menn á fögrum gæðingum,
riðandi sex og sex i röð.
Áfram upp mjakast gangan og
upp á flötina, að hinu fagra
musteri Pallas Aþenu. Þar eru
fyrir nokkrir heiðursgestir og
biða þess að hátiðahöldin hefjist.
Hinn aldraði Fidias, meistari
þessa alls, strýkur um sköllótt
jafna múga — KS8D— Vinnslubreidd 2,8 m — Lyftutengd
og því mjög lipur
P ÞORHF
REYKJAVIK SKÓLAVÓRDUSTÍG 25
TRAKTORAR