Tíminn - 22.07.1973, Side 17
Sunnudagur 22. júli 1973.
TÍMINN
17
ARNÓR Stigsson var
aðalfararstjóri i ferð
Átthagafélags Sléttu-
hrepps að Horni, enda er
hann borinn og barn-
fæddur að Horni, svo að
hann þekkir þar hvern
stein.
Stigur faðir hans
Haraldsson fæddist að
Horni og bjó þar ásamt
konu sinni Jónu
Jóhannesdóttur ættaðri
úr Grunnavikurhreppi
fram til ársinsi 1946, þeg-
ar ekki var lengur vært
þar vegna mannfæðar.
Ljósmyndir:
Lars Björk
flokki. Þriðja flokks egg borðuðu
við hér heima, en reyndum að
selja hin til Isafjarðar og i skip.
Það mátti lika harösjóöa eggin og
láta i súr. Súrsuð egg þóttu af-
bragðsmatur. Þaö kom oft fyrir,
að bátar kæmu hingað inn
snemma vors að spyrja eftir
súrsuðum eggjum. Núna er þetta
ekki gert lengur, en þó veit ég, að
þeir gerðu þetta á Isafirði i fyrra,
þvi að þeir fengu meira en þeir
gátu selt.
— Var sjálfur fuglinn ekki
drjúgur til búsilags?
— Það var nú ekki mikið tekið
af fugli, eftir að ég fór að vera i
þessu. Við tókum 300-400 fugla,
en áöur fyrri hafði verið meira
um fuglatekju. Menn notuðu
bambusstöng með lykkju úr viti-
tág á endanum og snöruðu fugl-
inn á syllunum. Stundum voru
gerðir út nokkrir menn i einu og
þeir fóru þá niður á stórar syllur
til veiðarinnar. Kjötið af
fuglinum var saltað og fiðrið
náttúrlega nýtt i sængur og
kodda. Aður fyrri var nýtnin
meiri en siðar varð — mér er til
dæmis i barnsminni, að gengið
var fyrir björgin til þess að hirða
fugl, sem var eitthvað krankur,
svo að hann gat ekki flogið.
Þannig fugl var kallaður vanfær-
ur og hann var reyttur og fiðrið
hirt.
Aldrei hræddur i bjarg-
inu
— Varst þú aldrei hræddur i
bjarginu?
— Nei, manni fannst þetta bara
spennandi. Ég hef þó einu sinni
orðið lofthræddur, en það var nú
ekki i bjargsigi heldur á leið upp
götuna hérna fyrir ofan bæinn
upp á fjallsöxlina Þá var ég að
fara með kaffi á engjar handa
pabba og var i fylgd með fullorð-
inni konu. Ég man, að ég var svo
hræddur, að ég skreið yfir brún-
ina, þegar upp var komið. Reynd-
ar var ég nú bara fimm ára, svo
að það var kannski ekki nema
von, að ég yrði svolitið skelkaður.
Eitt sinn fjórbýli
— Við fluttum 1946 um haustið.
Þá voru allir farnir úr nágrenn-
inu, svo að ekki var um annað aö
tala. En þegar ég man fyrst eftir
mér var hér fjórbýli. Hér er ekki
hægt að búa, ef ekki er mannafli
til þess aö manna bát. Um leið og
svo fámennt er orðið, að það er
ekki hægt lengur, verða þeir sem
eftir eru að flytjast á brott, hvort
sem þeim likar betur eða verr.
Auk þess var pabbi ekki heill
heilsu og ekkert okkar systkin-
anna hafði hug á að taka við bú-
inu. Okkur fannst þetta ósköp ein-
manalegt — ekki sizt ef við bárum
þetta saman við Isafjörð, þar sem
við höfðum verið annað veifið.
Pabbi hvatti okkur lika til þess aö
fara, þvi að hann taldi enga
framtið i þvi að vera að hokra hér
úr þvi að allir voru farnir eða á
förum. Eftir að sildarstöð Kveld-
úlfs á Hesteyri hafði verið lögð
niður fór fólk að flytjast i burtu,
en aðalskriðan kom þó ekki fyrr
en Bretinn fór úr Aðalvik og at-
vinnan með honum. — Reyndar
sá ég strax eftir þvi að hafa flutt.
Eftir að ég kvæntist 1949 var ég að
spekúlera i þvi að fara að búa hér
— við vorum tveir búnir að tala
okkur saman um þetta — en þá
var ég nýbyrjaður að læra hús-
gagnasmiði og viTdi ljúka þvi, —
og svo varð aldrei úr búskapnum.
Félagi minn bjó hér i eitt ár, en
gafst svo upp.
— En bjargið lokkar þig enn?
— Já, ég hef ekki farið i bjargið
i mörg ár — en mig langar alltaf á
vorin. — HHJ.
Tveir fararstjóranna. Lengst til vinstri Magnús Reynir Guðmundsson, sem jafnframt er formaður
stjórnar Atthagaféiags Siéttuhrepps, i miðið Arnór kímileitur mjög, en þvi miður vitum við ekki nafn á
unga manninum lengst til hægri.
KARNABÆR
PIOMEER
Hin fullkomna hljómtækni
George Harrison — Living in the material world !
Eagles — Desperado ! Music from Free Creek !
Hard stuff — Bolex dementia ! Byrds — History of
the byrds ! Keef Hartley — Lanchire Hustler !
Scaffold — Fresh liver ! Cabaret — Cabaret ! Robin
Trower — Twice removed from yesterday ! Roxy
music — For your pleasure ! Blackfoot Sue — Noth-
ing to hide ! Savoy Brown — Lion’s share ! Alex
Harvey — Souvenirs ! Manor — Manor live ! Gas
works — Gas works ! Procol Harum — Grand hotel
! The moody blues — ;
. .... SIMI
Postsendum um allt land 13630
KARNABÆR
íslenzki dansflokkurinn
Stjórnandi Alan Carter
í Félagsheimili Seltjarnarness alla sunnu-
daga og fimmtudaga i júli kl. 21.15.
Aðgöngurniðasala frá kl. 18, sýningar-
daga.
Simi 22676.
r
SOXK.AK ^
KAFOEYMK
þjónusta - sala - hleðsla - viðgerðir
Alhliða rafgeymaviðgerðir og hleðsla
Notum eingöngu og seijum járninnihaldslaust
kemiskt hreinsaö rafgeymavatn
Næg bílastæði — Fljót og örugg þjónusta
Tækniuer
AFREIÐSLA
I Laugavegi 168 — Sími 33-1-55
RÆSIÐ
BÍLINN MEÐI
SÖNNAK