Tíminn - 22.07.1973, Page 20
20
TÍMINN
Sunnudagur 22. júlí 1973.
Spjallað við Harald Sigurðsson
um hitt og þetta, einkum þó
Vestur-lndíur og Trinidad, þar
sem hann hefur dvalizt við
rannsóknir og störf
síðastliðin þrjú og hólft ór
Dr. Haraldur Sigurðsson, jarð-
fræðingur hefur dvalizt hér á
landi undanfarnar vikur, en er
nú farinn til Sikileyjar til rann-
sókna á Etnu. Undanfarin 3 og
1/2 ár hefur hahn hins vegar
verið við University of The West
Indies á Trinidadsemer eyja rétt
undan strönd Venezueia. Þar
hefurhann kennt sem lektor, en
aðallega stundað rannsóknir á
vegum skólans. Næsta vetur
tekur hann við starfi sem
prófessor við háskólann á
Rhode Island i Bandarikjunum.
Doktorsritgerð Haraldar
fjallaði um jarðfræði Snæfells-
ness, en Haraldur er raunar
ættaður þaðan og fæddur og
uppalinn i Sty kkishólm i.
Doktorsritgerðina varði hann
við Durham-háskóla f Englandi
(Timamynd: Gunnar)
„Jarðfræðingurinn, sem
kemur heim úr hitanum"
— Fjögur — fimm ár á þessum slóöum, það er
alveg nóg. Enda þótt ágætt sé að vera þarna, lofts-
lagið frábært, ódýrt að liía' og næturlifið afar
fjörugt. Það er einmitt þessar notalegu aðstæður,
sem eru ,,hættulegar”. Maður verður smám saman
værukær, samofin umhverfinu og vill hvergi annars
staðar vera. Ef maður heíur einhverjar taugar til
föðurlandsins og einhverjar ,,ambitionir”, eru 4-5
ár hániarkið.
Þannig komst dr. Haraldur
Guömundsson jarðfræðingur að
orði, er við ræddum við hann fyrir
skömmu. Það virðtal var svo að
segja tekið á hlaupum og allra
siðustu stund, þvi dr. Haraldur
var á förum til Italiu morguninn
eftir, nánar tiltekið til Sikileyjar i
rannsóknaleiðangur.
Sty kkishólmur —
Belfast
England — Trinidad
Dr. Haraldur er 34 ára að aldri,
fæddur og uppalinn i Stykkis-
hólmi. Sonur hjónanna önnu
Oddsdóttur og Sigurðar Stein-
þórssonar, sem lengi var kaup-
félagsstjóri i Stykkishólmi. Að
loknu menntaskólanámi hér lagði
hann leið sina til Belfast á N-
trlandi. Það var árið 1961, áður en
allur djöfulgangurinn þar fór af
stað. í Belfast stundaði hann
háskólanám í fjögur næstu ár i
jarðfræði, með aðaláherzlu á
bergfræði.
Frá háskólanum i Belfast lauk
dr. Haraldur B.A. prófi 1965 og
kom þá til föðurlandsins, þar sem
hann starfaði næstu tvö árin, — i
þáverandi atvinnudeild
Háskólans sem sérfræðingur og
siðar hjá Rannsóknastofnun
iðnaðarins.
Arið 1968 lagði hann leið sina til
Durham á N-Englandi, þar sem
hann stundaði framhaldsnám við
háskóla jafnframt rannsóknum.
Við háskólann i Durham varði
hann siðan doktorsritgerð sina
.1969, en hún fjallar um jarðfræði
Snæfellsnes, en „Snæfellsnes er
eins konar vasabókaútgáfa
islenzkrar jarðfræði, þar fyrir-
finnst nánast allt”, eins og
Haraldur orðar það.
Að loknu doktorsprófi lagði dr.
Haraldur enn land undir fót, — að
þessu sinni til Vestur India, — til
eyjunnar Trinidad, sem er rétt
undan strönd Venezuela. „Maður
sér i land. segir Haraldur).
Réðst dr. Haraldur til Háskóla
Vestur-India (University of The
West Indies) sem lektor, en það
er sameiginlegur háskóla þriggja
eyja, þ.e. Jamaica, Trinidad og
Barbados og telur 10 þúsund
nemendur. Dr. Haraldur starfaði
sem sagt við Trinidad deild þessa
háskóla og hefur verið búsettur á
Trinidad siðastliðið 3 1/2 ár.
Vítt og breitt um
Vestur Indiur
Þótt dr. Haraldur hafi stundað
nokkuð kennslu þessi ár, hefur
hann varið langmestum af þess-
um tima i rannsóknastörf á veg-
um skólans. Aðallega hafa það
verið rannsóknaleiðangrar vitt og
breitt um Vestur-Indiur, og hefur
dr. Haraldur þvi ferðast til og
dvalið á fjölmörgum af þessum
veðursælu og fögru eyjum. Svo
sem til Virgin Island (Jómfúrar-
eyjar), Jamaica, Purto Rico,
frönsku sýslanna Guadeloupe og
Martinique, brezku nýlendanna
St. Vincent og Barbados, svo að
dæmi séu nefnd.
Fyrst og fremst hefur hann þó
kynnzt lifinu á Trinidad, en ibúa-
fjöldinn þar er um 1 milljón.
Trinidad var áður brezk nýlenda,
en fékk fullt sjálfstæði árið 1962.
Skammt liðið
frá þrælahaldi
Við spyrjum dr. Harald hvernig
loftslagið sé á Trinidad, þessar •
spurningar, sem flestum mör-
landanum er efst i huga, er hann
hrfðskjálfandi i föðurlandsbrók-
inni sinni fregnar af öðrum þjóð-
um.
— Loftslagið á Trinidad og V-
Indium yfirleitt er mjög aðlað-
andi. Hitinn yfir daginn er svo til
árið um kring þetta 25—27 stig
yfir daginn, en fer niður i 20 stig
stundum á nóttinni. Hitinn fer
sjaldnast mikið hærra, og aldrei
verður óþægilega heitt, þar sem
nær sifellt blæs nokkur hafgola.
Þetta er sem sé prýðisloftslag.
— En hvað er að segja um
þjóðlifiðog hin ýmsu þjóðarbrot á
Trinidad?
— Þetta er á margan hátt
merkilegt og sérstætt þjóðfélag.
Er Trinidad fékk fullt sjálfstæði
árið 1962, voru ekki liðin nema 130
ár frá afnámi þrælahalds og það
setur sinn svip á þjóðlifið. Þróun-
in hefur annars orðið mjög ör.
Pólitikin er mjög flókin og fylgir i
rauninni ekki hinum venjulegu
pólitisku linum heldur kynþáttum
i megindráttum.
— Helztu þjóðabrotin eru
þessi: Svertingjar og kynblend-
ingar, sem eru i meirihluta. 1
öðru lagi Indverjar (35—40%), en
þeir voru fluttir inn sem leigulið-'
ar frá Indlandi eftir að þrælahaldi
lauk á Trinidad, en þeir voru engu
að siður settir i eins konar þræla-
hald. t þriðja lagi er svo mikið af
fólki frá löndunum umhverfis
Miðjarðarhaf, svo sem frá Spáni,
Alsir, Libanon og Marokkó. Þá
má ekki gleyma Kinverjunum, né
heldur frönsku „nýlenduherrun-
um” eða nýlendufólkinu, sem set-
iö hafa þarna að búi sinum uni
aldir.
En hvað um tslendinga á
Trinidad?
— Þeir eru ekki margir. Ása
Guðmundsdóttir Wright heitin,
sem flestir tslendingar hafa heyrt
getið, átti plantekru á Trinidad og
hitti ég hana mjög oft meðan hún
lifði(Guðmundur faðir hennar
var læknir i Stykkishólmi upp úr
1920). Aðra íslendinga kann ég
vart að nefna. Þó munu vera einir
fjórir — fimm islenzkir skipstjór-
ar viðloðandi eða búsettir á
Trinidad, en ég hef ekkert sam-
band haft við þá. Þeir gera út á
rækju á vegum útgerðarfyrirtæk-
is i Bandarikjunum, á ein auðug-
ustu rækjumið heims, út af minni
Amazonfljótsins i Brasiliu. Þá
hafa Islendingar eitthvað lagt leið
sina til Trinidad i frium sinum, en
það er ekki mikið um það, enda
þótt þessi staður ásamt fleiri i V-
Indium sé sannkölluð paradis til
sliks.
,,Ekki eiginlegt
Black Power”
Eflaust kanntu frá fjölmörgu
skemmtilegu að segja frá dvöl
þinni þarna vestur frá og ferða-
lögum. Hvað er t.d. að segja um
stjórnarfarið á Trinidad. Er ekki
eitthvað um róstur og uppreisnir?
— Ekki getur það talizt mikið.
Þó hafa róttækir vinstrimenn
reynt að láta nokkuð til sin taka á
siðari árum einkum stúdentar en
ekki orðið mikið ágengt. Þeir
kalla hreyfingu sina „Black Pow-
er” enda þótt það heiti eigi raun-
ar alls ekki við þarna, miðað við
hina viðamiklu og öflugu „Black
Power”-hreyfingu sem við þekkj-