Tíminn - 22.07.1973, Page 24

Tíminn - 22.07.1973, Page 24
24 TÍMINN Sunnudagur 22. júll 1973. Hans Fallada: Hvaðnú,ungi maður? Þýðing Magnúsar Ásgeirssonar blaðinu ástæðuna til heimsóknar- innar, vefst það góða stund fyrir Pinneberg, hvað hann eigi að skrifa. Loksins ræður hann af að skrifa aðeins eitt orð: Jachmann, og þvi næst blður hann ennþá lengi, lengi þangað til að skrif- stofusendill I gráum einkennis- búningi kemur og tekur við seðl- inum og fer með hann eftir að hafa athugað bæði seðilinn og sendandann mjög gaumgæfilega. En að vörmu spori kemur dreng- urinn aftur og fer með hann gegn- um dyr á langborðinu inn í hliðar- skrifstofu, framherbergi Leh- manns, þar sem einkaritari hans biöur hann að taka sér sæti, þvi að skrifstofustjórinn sé ekki viðlát- inn I bili. Einkaritarinn er dama komin af æskuladri, gulbleik i framan og kjökurleg bæði á svip og í rómi. Skjalaskápar standa hvar sem litið er. Þeir standa opnir þessa stundina og i þeim sjást heilar fylkingar af bláum gulum og grænum og rauðum bréfahylkj- um með litlum nafnseðli á herju þeirra. Pinneberg les nöfnin Fiechte, Filchner, Fischer. Þetta eru nöfn á væntanlegum sam- verkamönnum hugsar hann — þetta er skrá yfir starfsfólkið og skjöl sem það varða. Mörg heftin eru fjaska þunn, sum örlaga- plöggin eru miðlungsþykk, en fram úr þeirri þykkt fara örlög verzlunarþjóna tæplega. Ungfrúin með gulbleika andlit- iö gengur fram og aftur um skrif- stofuna. Hún tekur pappirsörk, virðir hana fyrir sér með þján- ingasvip, gatar hana og festir hana inn i eitt heftið. Er það upp- sögn eða launahækkun? Stendur kannski i bréfinu, að ungfrú Bier verði að vera vingjarnlegri við viðskiptamennina eftirleiðis? A morgun — eða strax i dag — verð- ur ungfrúin með gulbleika andlit- ið kannski að skrifa Jóhannes Pinneberg utan á eitt skjalahylk- iö. Betur að svo færi! Síminn hringir tvisvar. Ungfrú- in fleygir þvi frá sér, sem hún er með i höndunum, og segir: ,,Já, herra Lehmann — já, herra Leh- mann — undir eins, herra Leh- mann”, og opnar slðan renni- hurðina, sem er klædd og bólstr- uð, fyrir Pinneberg. Það er gott að ég hefi fylgzt með þessu sjálf- ur, segir hann. Maður á auðsjá- anlega að vera svo auðmjúkur og fáorður, sem mögulegt er. Já, herra Lehmann — Undireins, herra Lehmann. Þetta er feiknastórt herbergi. Einn veggurinn er næstum ein- tómar rúður og fyrir framan þennan glervegg stendur geysi- mikið skrifborð. Á þvi er ekkert nema simaáhald og stór, gulur blýantur. Ekki pappirsblað eða neitt annað. Ekki neitt. öðrum megin við skrifborðið stendur hægindastóll. Hinum megin er litill tágastóll og á honum situr Lehmann. Hann er hávaxinn, gul- leitur I andliti, sköllóttur með lltið svart yfirskegg. Augun eru dökk, kringlótt og hvöss og andlitiö fullt af þverhrukkum. Pinneberg staðnæmist fyrir framan skrifborðið. Hann lætur hendurnar lafa niður með buxna- skálmunum og hefir dregið höf- uöiö alveg niður á milli axlanna til þess að vera ekki of stór frammi fyrir herra Lehmann. Þvi að það er aðeins að nafninu til að herra Lehmann situr I tágastól. Ef sýna ætti hina raunverulegu fjarlægð milli þeirra, ætti hann að sitja i efsta þrepi i háum stiga. „Góðan daginn”, segir Pinne- berg lágt og auðmjúklega og hneigirsig. Herra Lehmann svar- ar engu, heldur gripur blýantinn og lætur hann standa upp á end- ann. Pinneberg biður átekta. „Erindið?” segir herra Leh- mann loksins i höstum og harð- neskjulegum rómi. Orðin hafa svipuð áhrif á Pinneberg og hnefahögg fyrir neðan beltisstað: „Ég — ég hélt að herra Jachmann —” Svo stendur hann alveg á öndinni og kemur ekki orði út úr sér. Lehmann skrifstofustjóri sér hvað Pinneberg liður. „Herra Jachmann kemur mér ekki nokk- urn skapaðan hlut við. Ég vil vita, hvaða erindi þér eigið”. „Ég sæki um afgreiðslumanns- stöðu”, segir Pinneberg. Hann talar ákaflega hægt til þess að standa ekki á öndinni i annað sinn og verða orölaus. Herra Lehmann leggur blýant- inn á borðið og lýsir yfir þvi, að fyrirtækið taki alls enga nýja menn i atvinnu. En af þvi að hann er þolinmæðin sjálf, biður hann dálitið við þangað til að hann, snýr blýantinum aftur upp á end- ann og segir: „Var það nokkur annað?” „Það gæti kannske orðið seinna?” stamar Pinneberg. „Meðan að timarnir eru eins og þeir eru? — nei”, segir herra Lehmann og hristir höfuðið. Þögn. Jæja, þá get ég farið. Það er sama sagan aftur. — Aumingja Pússer, hgsar Pinneberg. — Hann ætlar að fara að kveðja, þegar Lehmann spyr allt i einu eftir meðmælum, sem hann hafi. Pinneberg breiðir úr þeim og breiðir úr þeim og réttir honum þau. Hendurnar á honum titra greinilega. Og ótti hans er engin uppgerð. Hver herra Lehmann er veit maöur ekki, en i Mandels- verzluninni starfa yfir þúsund manns, og Lehmann skrifstofu- stjóri ræður yfir öllum þessum hóp og er þess vegna voldugur maður. Kannski er herra Leh- mann að gera að gamni sinu. Meðmælin eru öll ágæt og hann les þau mjög hægt, og eftir þvi sem séð verður hafa þau ákaflega litil áhrif á hann. Síðan litur hann upp. Hann virðist hugsa sig um. Hver veit? — hver veit?------- „Ja — tilbúinn áburð verzlum við nú alls ekki með —” Auðvitað. Þarna kom það, og náttúrlega stendur Pinneberg uppi eins og þvara og stamar eitthvað um að hann hafi haldið — hann hafi hugsað — að karlmannafatnaður sé nú eiginlega hans grein, þótt hann hafi farið i áburðinn út úr neyð til bráðabirgða. Lehmann er svo skemmt með þessu, að hann endurtekur’ „Nei, með áburð verzlum við reyndar ekki. Og ekki með kartöflur heldur”. Hann gæti auðvitað blandað öll- um þeim fræ- og korn-tegundum inn i málið, sem nefndar eru i meðmælabréfinu frá Kleinholz, en honum finnst þessi fyndni sin um kartöflurnar ekki merkilegri en svo að hann lætur hér staðar numið. Það rymur i honum spurning um það, hvort Pinne- berg hafi tryggingarvottorðið sitt og kvittun fyrir skatti. Svo þegir hann aftur, og hjá Pinneberg þoka enn björtustu vonir fyrir myrkustu örvæntingu — og svo birtir yfir honum aftur”. „Mergurinn málsins er sá”, segir Lehmann, „að viö bætum ekki við okkur nýjum mönnum, heldur þvert á móti, þvi að við segjum þeim upp, sem fyrir eru”. En samt heldur hann ennþá hönd- inni kyrri á meðmælaskjölunum og styður nú jafnvel lika gula, stóra blýantinum á þau. „Annað mál er það, að við höfum leyfi til að flytja fólk — það allra duglegasta — frá útibú- unum okkar, i þjónustu okkar, og þér eruð einn af þeim allra dug- legustu — er ekki svo? Pinneberg umlar eitthvað — ekki i mót- mælaskyni þó, og það er Leh- mann nóg. „Þér verðið fluttur hingað frá útibúinu okkar i Bres- lau. Þér komið frá Breslau, ef ég man rétt. Það vill svo vel til að i karimannafatadeildinni, sem þér verðið settur i, er enginn maður frá Breslau. Skiljið þér mig?” — Aftur tautar Pinneberg eitthvað fyrir munni sér, og Lehmann tek- ur það fullgilt sem svar. „Jæja, gott og vel, þér byrjið þá á morg- un klukkan átta. Gefið yður fram við ungfrú Semmler þarna frammi. Þar skrifið þér undir samning og fáið allar nauðsyn- legar upplýsingar. Verið þér sæl- 1455 Lárétt í) Hungraða.- 5) Hvæs,- 7) Spé.- 9) Fiska.- 11) Titill.- 12) Fléttaði.- 13. Svei.- 15) Muld- ur.- 16) Klók,- 18) Blundar,- Lóðrétt 1) Mettur,- 2) For.-3) Númer.- 4) Þungbúin,- 6) Kapituli.- 8) Tima.- 10) Fugl,- 14) Sjá,- 15) Bára,- 17) Reið.- Ráðning á gátu No. 1454 Lárétt 1) Nálhús,- 5) Már,- 7) Gin,- 9) Sál - 11) LL,- 12) Ró,- 13) Alt,- 15) Lap,- 16) Ari.- 18) Glaður.- Lóðrétt 1) Naglar,- 2) LMN.-3) Há.-4) Úrs.- 6) Glópur,- 8) 111.- 10) Ara,- 14) Tál,- 15) Lið.- 17) Ra,- 1 Sunnudagur 22. júli 8.00 Morgunandakt. Séra Sigurður Pálsson vígslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög Austur-þýzkir listamenn leika og syngja létt lög. 9.00 Fréttir. Útdráttur úr forustugreinum dag- blaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10. Veðurfregnir). a. óbókonsert i C-dúr (K.314) eftir W. A. Moxart. Heinz Holliger leikur með Nýju Filharminiusveitinni: Edo de Waart stjórnar. b. „Sónasta a Quattro” nr. 3 i C-dúr eftir Rossini. I Musici leika. c. Þættir úr Jóns- messunæturdraumi op. 61 eftir Mendelssohn. Concert- gebouw-hljómsveitin i Amsterdam leikur: Bernard Haitink stjórnar. d. Pianókonsert i a-moll op. 54 eftir Schumann. Géza Anda leikur með Filharmóniu- sveit Berlinar: Rafael Kubelik stjórnar. 11.00 Prestvigslumessa i Dómkirkjunni (Hljóðrituð 1. júli s.l.) Biskup Islands herra Sigurbjörn Einarsson vigir Pál Þórðarson cand. theol. til Norðfjarðarpresta- kalls og Sveinbjörn Bjarna- son til aðstoðarþjónustu i Hjarðarholtsprestakalli. Viglsuvottar: Séra Óskar J. Þorláksson dómprófastur, séra Trausti Pétursson prófastur og séra Harald Sigmar. Séra Sveinbjörn Bjarnason predikar. Organleikari: Ragnar Björnsson 12.15. Dagskráin. Tónleikar. 12.25. Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.15 Mér datt það i hug. Björn Bjarman rabbar við hlustendur. 13.35. islenzk einsöngslög Guðrún A Simonar syngur. Guðrún Kristinsdóttir leikur undir á pianó. 13.55 Betri borg Barniö og borgin Umsjónarmenn: Jóhanna Þórðardóttir, Jón Reykdal, Kristin Gisladóttir og Þórunn Sigurðardóttir. 14.25 Kynni min af Árna Páls- syni prófessor Vilmundur Gylfason ræðir við Sverri Kristjánsson sagfræðing. 15.00 Miðdegistónleikar: Frá alþjóðlegri hátið léttrar tón- listar i B.B.C. Guðmundur Gilsson kynnir siðari hluta. 16.10 Þjóðlagaþáttur Kristin ólafsdóttir sér um þáttinn. 16.55 Veðurfregnir. Fréttir 17.00 tslandsmótið, fyrsta deild. ÍA:ÍBK Jón Ásgeirs- son lýsir siðari háflleik frá Akranesi 18.00 Stundarkorn með ameriska fiðluleikaranum Michael Rabin. 18.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Fréttaspegill 19.35. Kort frá Spáni Send- andi: Jónas Jónasson. 19.55 Frá tónleikum i Há- skólabiói 16. april s.l. Vladimir Askenazi leikur: a. Sónötu i c-moll (K. 457) eftir W.A. Mozart b. Sónötu nr. 30 i E-dúr op. 109 eftir Beethoven 20.30 Frainhaldsleikrit: „Gæfumaður” eftir Einar H. KvaranLeikstjóri: Ævar Kvaran, sem færði söguna i leikbúning Persónur og leikendur i þriðja þætti: Signý, Sigriður Þorvalds- dóttir. Sigfús, Baldvin Halldórsson, Gerða, Bryndis Pétursdóttir. Rósa, Jóna Rúna Kvaran Ing- veldur, Herdis Þorvalds- dóttir. Anna, Briet Héðins- dóttir. Slúlka Signýjar, Auður Guðmundsdóttir. 21.25 Kórsöngur i útvarpssal Karlakór Keflavikur syngur islenzk og erlend lög. Ein- 21.45 Smásaga: „Portin” eftir Björg Vik Silja Aðalsteins- dóttir þýðir og les

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.