Tíminn - 22.07.1973, Page 27
Sunnudagur 22. júli 1973.
TÍMINN
27
flokki, auk þess, sem hann varð
tvisvar sinnum bikarmeistari 2.
flokks. Það er næsta fágætt, að
sami leikmaðurinn hafi svo glæsi-
legan feril að baki, áður en hann
tekur sin fyrstu skref meö
meistaraflokki.
Einar og Guðni
erfiðastir
A fyrsta ári sinu sem meistara-
flokksmaður, varö Asgeir bikar-
meistari meö IBV-liðinu, en með
sigri sinum i Bikarkeppni KSÍ i
fyrra, öðlaðist lið Vestmannaeyja
rétt til þátttöku i Evrópubikar-
keppni bikarhafa og mætir þar
hinu heimskunna vestur-þýzka
knattspy rnuliði Borussia
Mönchengladback. Veröur þaö
eflaust erfið raun fyrir Asgeir og
félaga hans að leika gegn þessu
sterka liði eftir nokkrar vikur.
Asgeir segir, að erfiðustu mót-
herjarnir i islenzkri knattspyrnu
séu Keflvikingar, og þá einkum
og sér i iagi hinir sterku varnar-
menn Keflavikur, Guðni
Kjartansson,og Einar Guðnason.
En þó að Guðni og Einar séu
harðir i horn að taka, gekk þeim
illa að hemja ÍBV-liðið i 1. deildar
keppninni i fyrra. Leik Keflavik-
ur og Vestmannaeyja i 1. deildar
keppninni, sem háður var i Eyj-
um, lauk nefnilega með stórsigri
Vestmannaeyinga, sem skoruðu 6
mörk gegn 1. Telur Asgeir þetta
vera einn minnisstæðasta leik,
sem hann hefur leikið.
Einnig telur Asgeir leiki Vest-
mannaeyja-liðsins gegn norsku
Vikingunum i Evrópukeppninni i
fyrra minnisstæða, en eins og
kunnugt er, sýndi Vestmanna-
eyja-liðið góða leiki gegn Norð-
mönnunum, bæði i Noregi og hér
heima á Laugardalsvellinum.
„Niósnararnir"
komu auga á hann
Vegna góðrar frammistöðu
Hvernig er bezt að komast framhjá Helga Ragnarssyni i Val? Þessi mynd er tekin í bikarleik i Vest-
mannaeyjum I fyrra. Asgeir sækir að marki Vals.
með unglingaliðum Vestmanna-
eyja, tóku forustumenn unglinga-
nefndar KSt fljótlega eftir As-
geiri, og var hann margsinnis
valinn til að leika með unglinga-
landsliðinu. Seinast lék hann með
unglingalandsliðinu i Evrópu-
keppninni á ttaliu. Svo kann að
fara, að sú ferð skipti sköpum
fyrir hann sem knattspyrnu-
mann. Astæðan er sú, að út-
sendarar stóru knattspyrnufélag-
anna i Evrópu sendu menn til
ttaliu til að fylgjast með keppn-
inni, ef ske kynni, að þeir kæmu
Asgeir sést á þessari mynd sækja að marki Austur-Þýzkalands.
„Guðni og
Einar
erfiðustu
varnar-
mennirnir
að kljást við"
auga á efnilega knattspyrnu-
menn, fyrir félög sin.
Þessir útsendarar eða
„njósnarar” festu augun á is-
lenzka framlinuleikmanninum
Asgeiri Sigurvinssyni og vilja
gjarnan ræða við hann i þeim til-
gangi að bjóða honum samning
sem atvinnumanni i knattspyrnu,
ef um semst. Það voru einkum
Celtic frá Skotlandi og Standard
Liege frá Belgiu, hvort tveggja
mjög fræg félög, sem sýndu einna
mestan áhuga. Og einmitt i dag er
væntanlegur frá Belgiu fulltrúi
Standard Liege til viðræðna við
Asgeir.
Næsti atvinnuknatt-
spyrnumaður isiendinga?
Þeir eru ekki margir islenzku
knattspyrnumennirnir, sem gerzt
hafa atvinnuknattspyrnumenn.
Frægastur er Albert Guðmunds-
son, er lék sem atvinnuknatt-
spyrnumaður bæði á Bretlands-
eyjum og meginlandi Evrópu.
Þórólfur Beck gerði einnig garð-
inn frægan, en hann lék i Skot-
landi, Frakklandi og Banda-
rikjunum. Þá má nefna Hermann
Gunnarsson, sem lék stuttan tima
i Austurriki og Jóhannes Eð-
valdsson, sem lék i Suður-Afriku.
Nú er spurningin sú, hvort As-
geir Sigurvinsson fetar i fótspor
þeirra. Hann virðist hafa öll skil-
yrði til að geta náð langt i knatt-
spyrnu. Hann hefur góða knatt-
meðferð og er harður og fylginn
sér, auk þess, sem hann hefur
næmt auga fyrir samleik. Sjálfur
segist hann hafa áhuga á þvi að
gerast atvinnuknattspyrnumað-
ur, en segist ekki skrifa undir
samning, nema honum liki vel við
viðkomandi félag. Þess vegna er
liklegt, að hann fari utan til
reynslu til að byrja með. Annars
þarf hann engu að kviða varðandi
samninga, þvi að Albert Guð-
mundsson, formaður KSI, stend-
ur viö bakið á honum og er honum
til ráöuneytis. E.t.v. verður úr þvi
skorið núna um helgina, hvort As-
geir fer utan eða ekki.
Hefur áhuga á
„popp" og „klassík" Eins
og áður segir, er Asgeir 18 ára
gamall. Hann er ólofaður og býr
hjá foreldrum sinum að Mariu-
bakka i Reykjavik. Ásgeir segist
hafa mestan áhuga á knatt-
spyrnu, en þar fyrir utan þykir
honum gaman að hlusta á góða
músik, hvort sem um er að ræða
„popp” eða „klassik”. Þá segist
Ásgeir um tima hafa haft gaman
af golfiþróttinni, eins og sumir
knattspyrnumenn Vestmanna-
eyinga.
Asgeir hefur unnið við pipu-
lagnir á sumrin milli þess, sem
hann er i skóla, en hann segist i
aðra röndina hafa áhuga á þvi að
fara á íþróttakennaraskólann að
Laugarvatni.