Tíminn - 26.08.1973, Page 9

Tíminn - 26.08.1973, Page 9
Sunnudagur 26. ágúst 1973. TÍMINN 9 þvi getur ekki tarið og við erum þvi reiðubúnir til þess að taka á móti henni i söltunarstöðina og til bræðslu, þótt hins vegar efist ég um að sild verði brædd meir i stórum stil á íslandi. Hjá okkur er öllu vel við haldið og við getum fyrirvaralaust byrjað sildarsölt- un. Hjá söltunarstöðinni geta 50 sildarstúlkur saltað undir þaki og við höfum sildarbragga (heimili fyrir sildarfólk) og stórt mötu- neyti fyrir 100 manns, allt i topp lagi. Hér á árunum vann hér hundr- að manns að sildarsöltun og pækl- un og sildarvinnslu og nóg var að gera allt árið fyrir verkafólk við prósessa og afskipanir. Sildarverksmiðjan bræðir loðnu Eins og þér mun kunnugt, þá erum við bræður aðalhluthafar i Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Þar eigum við fullkomna sildarverk- smiðju, sem brætt hefur sild og loðnu. Að visu bræddi hún sild að- eins siðari hluta sumars árið 1967, en hefur verið notuð til loðnu- bræðslu eftir það. Þar voru brædd 30.000 tonn af loðnu árið 1971, 15.000 tonn árið 1972 og i ár voru brædd 30.000 tonn. Astæður fyrir þviu að aðeins 15.000 tonn voru brædd i fyrra voru þær, að þá var mikil ferð á loðnunni vestur með landi og bátarnir velja auðvitað þær hafnir sem stytzt er á til lönd- unar. Þetta er einhver fullkomn- asta fiskimjölsverksmiðja lands- ins og afkastar 400 tonnum á sól- arhring og hefur geymslurými fyrir 10.000 tonn, eða 25 daga vinnslu. — Hvað með skipakaup? Sildarflotinn i Norðursjó — Um það hefur ekkert verið afráðið. 1 svipinn eru allar linur of óskýrar til að hægt sé að úttala sig með það. Vissuiega væri freistandi að láta smiða nýtt skip hér innanlands. En eitthvað verð- ur að vera til að veiða. Núna eru okkar stóri sildarfloti að veiðum i Norðursjó og leggur upp aflann i Danmörku og Þýzkalandi. Æski- legast væri að geta landað hér heima. Talað er um nýjar fiskteg- undir og svo frameftir götunum, en auðvitað höfum við augum op- in fyrir hráefnisöflun. Núna hefur mest verið fjárfest til að tryggja hraðfrystihúsinu hráefni og til að bæta vinnsluskilyrðin i hrað- frystihúsinu og saltfiskverkun. Viðhöfum fengið einn skuttogara og annar, sem við eigum meö Reyðfirðingum er væntanlegur. Skipakaup til nótaveiða verða aö viða enn um sinn. Sildarköttur með bandið laust Við gegnum siðan út á sildar- planið með Kristni Jónss. Auð húsin ilma enn af kryddi, sætum berki og allehone. Færiböndin standa kyrr og sildarkötturinn sefur með bandið laust. Verkfæri dixilmanna hanga á vegg og liggja á borðum, eins og þeir hafi fjeygt sér til svefns eftir langa I törn. Allt er smurt og farðað og okkur er ljóst aö hér er sett i gang með einum hnapp. Uppi i sildar- bragganum er allt i finasta lagi. Sprengingamenn úr Oddsskarði hafa hér viðlegu i sumar, mat og húsnæði og bragginn minnir á velbúið og snyrtilegt sumarhótel, fremur en bragga i sildarlausu plássi, þar sem skuggar hafa lengzt úr hömlu og þegar við kveðjum Kristin Jónsson, for- stjóra uppi við hundrað ára gamla, litla húsið hans, er okkur það ljóst, að enn verður tekið á móti sild á Eskifirði, ef hún gefur sig til. —JG. Rætt við Kristin Jónsson forstjóra ó Eskifirði og gengið með honum um söltunarstöðina miklu, þar sem 50 stúlkur geta saltað undir þaki og braggarnir minna ó sumarhótel. Texti og myndir Jónas Guðmundsson A nýju liainarsvæði, hefur Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. reist fullkomna sildarverksmiöju, sem hefur geymslurými f tönkum og steinþró fyrir 16.000 tonn af loðnu. Vélsmiðjan Héöinn hf hefur reist verksmiðj una sem ber fagran vott um kunnáttu og afl Islenzks iönaöar. Síldarverksmiðjan á Eskifirði bræðir 400 tonn af loðnu á sólarhring. Þetta er cin fullkomnasta vcrksmiðja á tslandi og þrifnaður er þar með ólikindum. þekkja allir, sem komnir eru til vits og ára. Flestir þó, sem nafn á frægu sildarskipi, en bankar og yfirvöld, sem Jón Kjartansson hf, milljónafélag, sem græddi á sild, En nú er hún Snorrabúð stekkur og þótt eigendur Jóns Kjartans- sonar hf. séu siður en svo blankir og hafi fyrir lifandislöngu snúið sér að öðru viðfangsefnum, hafa þeir ekki gleymt sildinni. Hjá þeim fær marfló og ormur ekkert næði til langvinnra veizluhalda. Fullkomin sildarsöltunarstöð þeirra biður tilbúin, eins og stopphlaðin kanóna, svo ekki þarf nema eitt orð til þess að setja allt i gang aftur, eftir sex, eða sjö ára hlé og þegar menn frá Timanum voru á ferð á Eskifirði á dögun- um, þá notuðu þeir timann og ræddu við hinn fræga sildarmann, Kristin Jónsson, forstjóra Jóns Kjartanssonar hf. á Eskifirði, en Kristinn er einhver mesti sildar- stjóri Austfjarða, fyrr og siðar. Býr i 90 ára gömlu húsi Við hittum Kristin að máli i hundrað ára gömlu húsi hans ofan við plönin á Eskifirði, en þetta litla timburhús, sem stendur i yndislegum garði, var reist árið 1882, og var þá barnaskóli Esk- firðinga. Báðum við Kristin að segja okkur ögn frá tildrögum að sildarævintýri þeirra bræðra, Alla rika og hans, og varð hann góðfúslega við þeirri beiðni. Sagðist honum frá á þessa leið: Jón Kjartansson SV III — Happaskip Jón Kjartansson hf. var stofnað árið 1956, þegar við keyptum samnefnt skip JÓN KJARTANS- SON SU III til landsins, en bátur- inn var 64 tonn. Eigendur hluta- félagsins voru fjölskyldur okkar Aðalsteins, en við höfðum þá unn- ið margvisleg störf og stundað sjóinn. Ég var vörubilstjóri og gerði út þrjá vörubila, en Aðal- steinn var verkstjóri i hraðfrysti- húsinu á Eskifirði. Jón Kjartansson SU III varð strax happaskip á sildveiðum undir stjórn Þorsteins Einarsson- ar skipstjóra úr Garðinum og svo fengum við okkar góða mann Þorstein Gislason, skipstjóra, sem lika var úr Garðinum, til að vera með bátinn á sildveiðum, en hann er sem kunnugt er einhver mesti aflamaður á sildveiðum, sem um getur. Var Þorsteinn með bátinn á $umrin, en var kennari að vetrinum við barnaskóla suður að skuttogaraútgerð og bolfisk- vinnslunni að mestu. Síldarsöltun Upphafið að sildarsöltun okkar var það, að Aðalsteinn bróðir hafði verið i sildarsöltun með nokkrum mönnum á Ólafsfirði. Ég gerðist síðar hluthafi i þessari stöð og þegar sildin færðist á Austfjarðamið, þá fór Jón Kjart- ansson hf að salta hér sild og varð fljótlega ein stærsta sildarstöðin hér á Austurlandi og var saltað hér i 30.000 tunnur á stöðvum okk- ar. Hélt þessi mikla sildarsölt- un áfram til ársins 1967, er sild- veiðarhættu. Siðan höfum við að- eins saltað einhverja slatta, mest úr Norðursjó og t.d. i fyrra voru saltaðar ér tæpar 1200 tunnur af sild. — Er sildarævintýrið þá búið, spyrjum við? Kemur aftur sild? — Nei við erum ekki i vafa um, að sildveiðar verða leyfðar aftur við Suðurland og Austurland. Hjá með sjó, og siðar við Stýrimanna- skólann, en á vetrum var Böðvar Einarsson frá Eskifirði með þennan bát. Frá þessu er auðvitað sagt, þar eð þessir duglegu skipstjórar áttu sinn þátt i þvi sem á eftir kom, með þvi að afla betur en flestir aðrir. Jörundur sökk, — ekkert skip til nótaveiða Þennan bát áttum við i ein sex ár. Svo fengum við Guðrúnu Þor- kelsdóttur, sem var 150 tonna sildarskip, sem byggt var fyrir okkur i Noregi og bar 1600 mál af sild. Svo nýjan Jón Kjartansson, en sá siðasti með þvi nafni var togari (Jörundur), sem við keypt- um og létum endurbyggja i Nor- egi i fyrra, en hann sökk hér i fjarðarkjaftinum undir 400 tonn- um af loðnu i sinni fyrstu veiði- ferð á loðnuvertiðinni, svo að i svipinn eigum við nú ekkert sild- arskip, þvi við höfum snúið okkur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.