Tíminn - 26.08.1973, Side 19

Tíminn - 26.08.1973, Side 19
Sunnudágur 26. ágúst'ISTS. TÍMINN^ 19 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Heigason, Tómas Karlsson, Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðaistræti 7, simi 26500 — afgreiðslusfmi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 18 kr. eintakið. Biaðaprent h.f “ : 25.7 aukning kaupmáttar á tveimur árum Skv. útreikningum Hagrannsóknadeildar Framkvæmdastofnunarinnar jókst kaupmátt- ur atvinnutekna einstaklinga um 18.2% á árinu 1972 miðað við visitölu framfærslukostnaðar. Hagrannsóknadeildin spáir svo, að á þessu ári aukist kaiiþmáttur atvinnuteknanna um 6.4%. Séu þessi tvö ár tekin saman, sem eru tvö fyrstu heilu árin á valdáferli núverandi rikis- stjórnar, mun kaupmáttur atvinnuteknanna aukast um 25.7% á þessu timabili. Rikisstjórnin kom til valda á miðju árinu 1971. Aukning kaupmáttar atvinnutekna ein- staklinga varð 17% á þvi ári miðað við árs- meðaltal skv. skýrslu Hagrannsóknadeildar. Þær ráðstafanir, sem núverandi rikisstjórn gerði i kjaramálum þegar er hún kom til valda, þ.e. visitöluleiðrétting, stórhækkun launa sjó- manna og fl. áverulegan þátt i þeirri miklu aukningu kaupmáttar sem varð á þvi ári. Kaupmáttaraukning á valdatima núverandi rikisstjórnar fram til loka þessa árs verður þvi verulega meiri en 25.7%, þótt að sinni verði við þá tölu haldið, þar sem um meðaltal tveggja ára er að ræða skv. töflu Hagrannsóknadeild- ar, en skyl.t er þó að geta þess, að i þessum út- reikningum er aukning atvinnumagns þessara ára meðtalin. Verðbólgan Sú verðbólguaukning, sem verið hefur hér á landi að undanförnu hefur valdið rikisstjórn- inni miklum áhyggjum. í skýrslu Hagrann- sóknadeildar Framkvæmdastofnunarinnar er spáð 22% hækkun verðlags á þessu ári. 1 skýrslunni kemur einnig fram, hve stóran hlut erlendar verðhækkanir og gengisbreytingar eiga i þessari þróun. Á tveggja ára afmæli rikisstjórnarinnar lét Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, i ljós ugg vegna þessarar þróunar, en benti á þá staðreynd, að yið vissa þætti þessarar þróunar fengi enginn við ráðið. Ólafur sagði þá rma.: „Verðbólgan hefur reynzt erfið viðureignar. Verðbólguþróun hefur verið hér meiri én við hefðum viljáð. Það hefur heldur alls ekki verið á valdi rikisstjórnarinnar að ráða við vissa þætti, sem stuðlað hafa að verðbólgu hér á landi, — erlendar gengisbreytingar og verð- bólgu og stórkostlegar verðhækkanir á heim- markaði á mörgum helztu innflutningsvörum okkar. Þessar verðhækkanir allar fær enginn mannlegur máttur á íslandi við ráðið og þær verðum við að taka á okkur nauðugir viljugir. Og miðað við þessar óviðráðanlegu aðstæður hefur a.m.k. á vissum sviðum tekizt vel að halda verðhækkunum svo i skefjum sem nokk- ur kostur var. En verðbólgan er nú eitt mesta áhyggjuefni okkar i rikisstjórninni og væntum við góðrar samvinnu við öll öfl þjóðfélagsins til að halda henni i skefjum.” Michael Brown, The Scotsman: Reynt verður að forða Eystrasalti frá eyðingu Frárennsli frá þéttbýli, úrgangsefni frá verksmiðjum og sjóflutningar um erfiðar siglingaleiðir valda síaukinni mengunarhættu BÆTT sambúð rikja i Evrópu hefir valdið flóði umræðna, ráðstefna og samn- inga, sem gæti haft þær óvæntu afleiðingar að bjarga Eystrasalti. Visindamenn hafa árum saman varað við þvi, að lif i Eystrasalti væri i bráðri hættu. Sumir spá, að það verði orðið aldauða um næstu alda- mót. Visindamennirnir hafa hvatt stjórnir rikja við strend- ur Eystrasalts til sameigin- legra ráðstafana, þar sem þvi verði aldrei bjargað með öðru móti, en slik samvinna hefir ekki verið möguleg um langt skeið. Samtök rikja við Eystrasalt hafa ekki komið til greina meöan þýzku rikin tvö nutu ekki viðurkenningár annarra rikja og viðurkenndu ekki hvort annað. Barátta visinda- mannanna hefir þvi staðnað eins og Eystrasaltið sjálft. Baráttan gegn menguninni hefir magnazt og orðið að krossferð viða annars staðar á undangengnum árum, en við Eystrasaltið hefir þeirra framvindu ekki notið við. FLESTIR hafa nú að lokum viðurkennt tilveru þýzku rikj- anna tveggja. Þá fyrst varð unnt að gera einhvers konar sameiginlegar ráðstafanir. Sérfræðingar i haffræði, mengun og löggjöf frá Dan- mörku, Finnlandi, Austur- Þýzkalandi, Vestur-Þýzka- landi, Póllandi, Sviþjóð og Sovétrikjunum komu saman i Helsinki i sumar. Viðræður urðu „furðulega jákvæðar og sýndu óvætnan einhug” og fram komu uppástungur um nýjar, viðtækar sameigin- legar ráðstafanir. Eystrasalt er náttúruvernd- armönnum erfitt viðfangsefni. Það er sagt stærsta svæði sjó- og ferskvatnsblöndu i heimi hér og þvi um flesta eiginleika mitt i milli fersksvatns og sævar. Margs konar lifverur finnast i Eystrasalti. Dýr og jurtir úr fersku vatni halda þar i sér liftórunni i umhverfi, sem er þeim allt að þvi of salt. Eins er um sjávardýr og sjávargróður, að umhverfið er þeim helzt til ferskt. Um- hverfisjafnvægið er þvi ákaf- lega viðkvæmt og mengun, sem varla gætti jafnvel i Norðursjó, gæti nægt til að raska þessu jafnvægi og þurrka út ákveðnar gerðir lifs á stórum svæðum i Eystra- salti. EN fleira veldur vandkvæð- um. Eystrasalt er tiltölulega grunnt, meðaldýpi ekki nema 55 metrar. Misdýpi er allmik- ið, margar skálar bptninn en örgrúbnt milli þeirra. Sundið út i Norðursjóinn er jafnvel þröngt og grunnt. Sjávarskipti milli djúpsvæðanna i Eystra- salti og milli þess og Norður- sjávar eru þvi afar íitil. Auk þess gætir sjávarfalla varla svo aö heitið geti og lóð- rétt hreyfing sjávar er þvi af- ar litil. Eystrasalt er oft Isi lagt þriðjung ársins, en kuld- inn dregur úr starfsemi gerla og annars þess, sem á eitur- efnum vinnur. Ef einhver hluti Eystrasalts verður verulega mengaöur verða fá öfl þvi til þess að eyöa, slæva eöa dreifa mengunarvaldinum. MARGT getur valdiö meng- un og er þvi margt að varast. Taliöer, að fjórir fimmtu hlut- ar mengunar i Eystrasalti séu af landi runnir. Þar má nefna óhreinsað frárennsli byggðar, úrgangsefni frá verksmiðjum og efnasambönd notuð við landbúnað. Meðal afrennslis frá verk- smiðjum eru úrgangsefni frá trjákvoðuframleiðslu og trjá- vöruiðnaði hvers konar, en hann er afar snar þáttur og áhrifamikill i atvinnulifi á Norðurlöndum. Flestir hafa sýnt ýmiss konar viðleitni til mengunarvarna, en þegjandi samkomulag má heita um, að Sovétrikin valdi mestri megn- un. Iðnbylting hófst þar miklu .sjðaren i öðrum rikjum og þar ýandi er þvi enn litið á tillit til áferifa á umhverfið sem óþarft óíióf eða luxus öðru nafni. • Flutningar á sjó vaida einn- ig hættu i Eystrasalti. Hættan af losun úrgangs liggur i aug- um uppi, en flestir aðilar að sjóflutningum eru hættir að hendaúrgangi i hafið. Avallt vofir yfir hætta af vanrækslu. eða slysum, sem valda missi oliu i hafið eða annars hættu- legs varnings. ÞEGAR höfð er i huga hin margvislega, sifellda hætta þarf engan að undra, þó að fulltrúar strandrikjanna sjö fylgi fast fram kröfum, um, að ráðstefna um vernd Eystra- salts verði haldin i april að ári. Verið er að undirbúa fund með fulltrúum aðila i nóvember i haust, og á þar að semja upp- kast að samþykkt eða starfs- áætlun um verndun og endur- lifgun Eystrasalt. Ekki þarf heldur að koma neinum á óvart, þó að eðlileg- ur og réttmætur fögnuður yfir niðurstöðum fyrstu viðræðna sé nú tekin að þoka fyrir áhyggjum og kviða vegna þess, hve tröllaukið viðfangs- efnið er við nánari athugun. Kröfurnar, sem gera verður um starfskrafta visinda- manna og lögfræðinga við samningu nauðsynlegra til- lagna, verða hlutaðeigandi stofnunum þungar i skauti, einkum þó i hinum mannfærri rikjum. ENGINN, sem heilbrigða raunsæi aðhyllist, gerir sér vonir um alþjóðalög, sem dragi verulega úr mengun, að minnsta kosti ekki þeirri mengun, sem runnin er af þurru landi. Reynt verður að ná samkomulagi um tak- markanir, sem aðilar geti sætt sig viö, en hvert riki um sig taki að sér að sjá um, að þeim takmörkunum verði fylgt inn- an sinna landamæra. Visinda- menn munu sækja fast á um algert bann við notkun sumra efna, svo sem DDT, PBS og vissra kvikasilfursambanda. Einnig verður reynt að ákv. öryggismörk um frárennsli al- mennra úrgangsefna úr byggð og úrgangsefna frá verk- smiðjum, og er mjög senni- legt, að öryggisákvæðin verði þyngd smátt og smátt á ákveðnu árabili.. Lögð mun verða mikil áherzla á mun viðtækara eft- irlit með sjóflutningum en nú tiðkast. Fulltrúar rikja við Eystrasalt gera efalitið kröfur til sérstakra reglria um þa6 efni þegar þessi mál veröa til umræðu á alþjóðaráðstéfnum, en allmargar slikar ráðstefn- ■ ur eru fyrirhugaðar á næst- unni. Aform eru uppi um strangar reglur um sjóleiðir og ef til vill einstefnubrautir i siglingu.. Einnig hafa verið settar fram kröfur um skyldu til að hafa hafnsögumann með á ákveðnum svæðum, stöðug- ar tilkynningar um staðar- ákvörðun skipa (einkum þo þegar um háskalegan flutning er að ræðp) og algert bann við þvi að varpa úrgangi fyrir borð. SKANDINAVAR eru vel á veg komnir með smiöi nýrrar geröar skipa til notkunar á Eystrasalti. Byrjað er á skip- um, sem flytja oliu með ströndum fram i þessu eyj- ahafi, en þau skulu máluð i mjög sterkum litum, hafa sér- stakan radar til öryggis og jafnt útsýni i allar áttir af stjórnpalli. Gera má ráð fyrir, að erlendir skipaeigendur þurfi allt i einu að fullnægja afar ströngum og margbrotn- um reglum ef þeir ætla að annast flutninga á þessum slóðum. Mikið er i húfi fyrir þá, sem ■ búa umhverfis Eystrasalt. Fiskveiðar, ferðalög og öll af- þreying er meira -eða minna háð þvi, að heilbrigt lif haldist i sjónum. Visindamenn greinir á um, hve lengi Eystrasalt kunni að þrauka, en þeir eru sammála um nauðsyn á skjót- um aðgerðum. En þær aðgerð- ir verða að vera samræmdar ef þær eiga að koma að haldi. Við sj.-'um svo um þetta leyti að sumri, hvort bjartsýnin, sem rikti i vor, hefir átt rétt á sér. TK

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.