Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 4
4 24. september 2004 FÖSTUDAGUR
Framsóknarkonur í hringferð:
Eggin brýnd
STJÓRNMÁL Framsóknarkonur
lögðu í gær af stað í ferðalag um
landið undir kjörorðinu Konur til
áhrifa. Ætla þær að halda fundi á
fjölmörgum stöðum á næstu vik-
um til að efla starfið og fá nýjar
konur í flokkinn. Ferðast er á
Toyota Land Cruiser jeppa sem
merktur er flokki og slagorði og
er viðbúið að góð stemning ríki á
þjóðveginum.
Una María Óskarsdóttir, for-
maður Landssambands framsókn-
arkvenna, sagði í samtali við blað-
ið að þar sem hún væri ekki með
meirapróf gæti hún ekki ekið
langferðabifreið, og þess vegna
hefði jeppinn orðið fyrir valinu.
Fundað var á Akranesi í gær-
kvöld en hlé verður á fundaher-
ferðinni þar til á miðvikudag í
næstu viku þegar Selfoss verður
heimsóttur. Hólmavík, Ísafjörður,
Patreksfjörður, Bifröst, Sauðár-
krókur, Akueyri og Egilsstaðir
eru einnig í ferðaáætluninni og
fleiri staðir eiga eftir að bætast
við.
Einlægur vilji framsóknar-
kvenna er að lögum og jafnréttis-
áætlun flokksins verði fylgt þegar
kemur að skipan í trúnaðarstöður
en þeim fannst stórlega á sér og
kyni sínu brotið þegar Siv Frið-
leifsdóttur var gert að hverfa úr
ríkisstjórn. ■
FÍKNIEFNI Rannsókn á einu um-
fangsmesta fíkniefnamáli síð-
ustu ára sem staðið hefur yfir
síðan í mars er á frumstigi og
heldur áfram næstu vikur að
sögn Ásgeirs Karlssonar, yfir-
manns fíkniefnadeildar lögregl-
unnar í Reykjavík. Hann segir
að enn sé ekki allt komið fram í
málinu.
Upphaf málsins var þegar
tæplega þrjú kíló af amfetamíni
og nokkuð af kókaíni fannst í
vörusendingu í Dettifossi, skipi
Eimskipafélagsins. Lögreglan
og tollgæslan í Reykjavík hófu
rannsókn í framhaldinu sem
leiddi til að mikið magn af am-
fetamíni fannst í vörusendingu í
Dettifossi. Heimildir blaðsins
herma að það hafi verið um átta
kíló en lögreglan viljað stað-
festa það. Þriðja sendingin voru
2.000 skammtar af LSD sem
komu með pósti í síðustu viku.
Ein kona og þrír menn voru
handtekin á föstudaginn fyrir
viku og hafa öll verið úrskurðuð
í gæsluvarðhald. Fíkniefna-
deildin hefur verið í samstarfi
við lögregluna í Hollandi en
fíkniefnasendingarnar koma all-
ar þaðan. Einn íslenskur lög-
reglumaður fór til Hollands og
var viðstaddur þegar tveir Ís-
lendingar voru handteknir þar í
landi. Annar var handtekinn
sama dag og fjórmenningarnir
en hinn síðasta mánudag þegar
húsleit var gerð þar sem þeir
dvöldu í Hollandi. Þar fundust
kannabisplöntur og rúmt kíló af
kókaíni.
Tvær af þremur fíkniefna-
sendingunum komu með Detti-
fossi. Í yfirlýsingu frá Eim-
skipafélag Íslands segir að for-
ráðamenn og starfsfólk harmi
að skip félagsins hafi verið mis-
notað til að flytja ólögleg og lífs-
hættuleg fíkniefni til landsins.
Félagið leggur áherslu á for-
varnir og öflugt eftirlit til að
koma í fyrir smygl á fíkniefnum
og vinnur í nánu sambandi við
lögreglu og tollayfirvöld í öllum
höfnum sem skipin hafa við-
komu í.
hrs@frettabladid.is
TÆKNIVAL SÝKNAÐ Tæknival hf.
var með dómi Hæstaréttar í gær
sýknað af kröfu Bjarna Þ. Áka-
sonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra félagsins, um þóknun
vegna ábyrgðar sem Bjarni hafði
tekið á sig í tengslum við við-
skipti félagsins.
Fórstu frítt í strætó á bíllausa
deginum?
Spurning dagsins í dag:
Er íslenski fótboltinn leiðinlegur
á að horfa?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
85%
15%
Nei
Já
KJÖRKASSINN
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
Landlæknisembættið:
Fylgist
grannt með
orkufólki
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknisemb-
ættið fylgist með framvindu
mála hvað
varðar „orku-
fólkið“ svokall-
aða hér á landi,
að sögn Sigurð-
ar Guðmunds-
sonar land-
læknis. Að-
s t a n d e n d u r
þeirra sem sótt
hafa svokölluð
orkunámskeið
hafa kvartað til
embættisins.
Landlæknir tjáði Fréttablað-
inu að tengiliður þeirra Lydiu og
Stephen Kane, sem staðið hafa
fyrir orkunámskeiðunum hér,
yrði kallaður fyrir embættið á
allra næstu dögum. Tengiliður-
inn umræddi er Gitte Lassen,
sem búsett hefur verið hér á
landi um árabil.
Þá hefur stjórn Geðhjálpar
fundað um málið, að sögn Sveins
Magnússonar framkvæmda-
stjóra. ■
Nýr Corolla. Tákn um gæði.
www.toyota.is
Það gerir lífið spennandi að vita ekki alltaf hvað bíður manns. En um bíla gegnir
öðru máli. Þér finnst nýr Corolla spennandi kostur af því að þú veist hvað bíður
þín í nýjum Corolla. Þú gerir kröfur um öfluga, hljóðláta og sparneytna vél,
öryggi í umferðinni, þægindi í akstri og bíl sem er góður í endursölu. Þess
vegna viltu nýjan Corolla og ert spenntur þegar þú sest undir stýri í fyrsta
skipti.
Komdu og prófaðu nýjan Corolla.
Njóttu þess að lífið er spennandi!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
25
72
4
09
/2
00
4
Vestmannaeyjar:
Vatnsleiðslan í sundur
FRAMSÓKNARKONUR Á ÞJÓÐVEGINUM
Fundaherferð framsóknarkvenna um landið hófst í gær. Lagt var í'ann frá Stjórnarráðinu,
skrifstofu Halldórs forsætisráðherra og flokksformanns.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
VATNSVEITA Vatnsleiðslan sem
færir íbúum Vestmannaeyja
ferskt vatn fór í sundur seinnipart
miðvikudags. Slysið gerðist þegar
unnið var að dýpkun hafnarinnar
með gröfu á dýpkunarpramma.
Gróf gröfumaður óvart í báðar
vatnsleiðslurnar, sem liggja frá
meginlandinu til Eyja, með þeim
afleiðingum að rifa kom í þær
báðar.
Að sögn Ívars Atlasonar hjá
Hitaveitu Suðurnesja freistuðu
kafarar þess í gærmorgun að at-
huga umfang skemmdanna en
vegna aurs og drullu var slíkt ill-
mögulegt. Unnið var að því í gær
að dæla sandi ofan af leiðslunum
og var vonast til þess að kafarar
kæmust að skemmdunum seinni-
partinn svo hægt yrði að gera við
leiðslurnar um kvöldið eða fyrri-
part dagsins í dag. Yrðu slíkar við-
gerðir einungis til bráðabirgða.
Viðgerðarmenn keppa við tím-
ann því vatnstankur í Eyjum get-
ur séð Eyjamönnum fyrir vatni í
þrjá daga án þess að meira komi í
hann frá vatnsleiðslunum. Á
morgun yrði því vatnslaust í Eyj-
um ef ekki tækist að gera við
leiðslurnar. ■
DÝPKUN HAFNARINNAR
Rifa kom á vatnsleiðslur til Eyja eftir að grafa á dýpkunarpramma rakst óvart í þær.
FRÁ ATHAFNASVÆÐI EIMSKIPS
Tvær fíkniefnasendinganna sem lögregla hefur lagt hald á í málinu komu í Dettifossi, skipi
Eimskipafélagsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
SLUPPU ÓMEIDDIR ÚR BÍLVELTU
Tveir útlendingar sluppu
ómeiddir þegar þeir lentu í bíl-
veltu á Krýsuvíkurvegi, við
Hlíðarenda. Ökumaðurinn
missti bílinn út í lausamöl og
við það fór hann út af veginum
og valt.
FLUTTUR Á SLYSADEILD Einn var
fluttur á slysadeild eftir að eldur
braust út í herbergi á jarðhæð
íbúðarhúss í Mosarima í Reykja-
vík. Maðurinn varð fyrir reyk-
eitrun en hann var ekki talinn í
hættu.
Dópinu smyglað í
pósti og með skipi
Rannsókn í tengslum við þrjár stórar fíkniefnasendingar heldur áfram
næstu vikur. Eimskipafélag Íslands harmar að skip félagsins hafi verið
notað til að smygla fíkniefnunum.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
LANDLÆKNIR
Kallar tengilið
„orkufólks“ fyrir.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Vanaafbrotamaður:
Samfelldur
3ja ára
brotaferill
HÆSTIRÉTTUR Hæstiréttur dæmdi
í gær karlmann til fangelsisvist-
ar í tvö ár og sex mánuði fyrir
ítrekuð afbrot, þar á meðal
þjófnað, húsbrot og fíkniefna-
brot.
Í niðurstöðum réttarins segir
að brotaferill mannsins, sem
rauf reynslulausn með þeim af-
brotum sem til umfjöllunar
voru, hafi staðið samfellt frá því
í nóvember árið 2001. Komst
rétturinn að því að maðurinn
væri vanaafbrotamaður í skiln-
ingi refsilaga og var refsing
mannsins þyngd í því ljósi. Það
var hins vegar talið manninum
til málsbóta að hann hafði játað
brot sín hreinskilnislega. ■
HÆSTIRÉTTUR
„Þegar litið er til sakaferils ákærða er ljóst
að hann er vanaafbrotamaður,“ sagði í
forsendum Hæstaréttar.