Fréttablaðið - 24.09.2004, Side 6
6 24. september 2004 FÖSTUDAGUR
LANDBÚNAÐARMÁL Sauðfjárbændur
hafa komist að samkomulagið við
sláturleyfishafa um verð fyrir
lambakjöt. Það mun hækka um
tvö prósent umfram það sem gert
var ráð fyrir í verðskrám slátur-
húsanna í sumar. Í kjölfarið náðu
þeir samkomulagi um svonefnt
vaxta- og geymslugjald, sem nem-
ur um 240 milljónum króna og er
greitt að hluta til sláturhúsa.
Sauðfjárbændur voru afar
ósáttir við verðskrárnar í sumar
og um tíma leit út fyrir að Bænda-
samtökin greiddu ekki sláturhús-
unum vaxta- og geymslugjaldið.
Vegna þess höfðu sláturleyfishaf-
ar kannað lagalegan rétt samtak-
anna til að ákveða einhliða hvern-
ig því yrði varið.
Kindakjöt hefur selst vel í
sumar og í júlí seldist rúmlega
helmingi meira af því en á sama
tíma í fyrra. Þá jókst sala síðasta
ársfjórðungs um tæp fjörutíu
prósent miðað við sama tímabil í
fyrra. Í fréttatilkynningu frá
Markaðsráði kindakjöts segir að
birgðir af kindakjöti, sem safnast
hafi upp í verðstríði á kjötmark-
aði síðustu tvö ár, séu nú langt
um minni vegna mikillar sölu. Á
sama tíma hefur verð á lamba-
kjöti hækkað mikið. Undanfarna
tólf mánuði nam hækkunin rúm-
um þrettán prósentum en á sama
tíma var verðbólga tæp fjögur
prósent. ■
ORKUMÁL Um áttatíu manns frá
tuttugu löndum sitja fund fram-
kvæmdanefndar um vetnisvæð-
ingu, IPHE, sem fer fram í Þjóð-
menningarhúsinu í Reykjavík og
lýkur í dag. Fimmtán þjóðir hófu
verkefnið í nóvember í fyrra en
fleiri þjóðir hafa sýnt áhuga á
þátttöku og á fundinum verður
fjallað um umsóknir fimm landa.
Ísland og Þýskaland eru í for-
ystu framkvæmdanefndarinnar
og Þorsteinn Ingi Sigfússon pró-
fessor er annar formanna hennar.
Hann segir að tvö mál hafi verið
til umræðu á fundinum, í fyrsta
lagi menntun á sviði vetnisþróun-
ar og í öðru lagi vetnisverkefni
víða um heim, meðal annars
strætisvagnaverkefnið í Reykja-
vík. „Við förum yfir þann árangur
sem náðst hefur. Við finnum fyrir
miklum þrýstingi á að árangur ná-
ist, enda sjá menn að olían verður
senn á þrotum. Þá þarf að finna
eitthvað til að taka við og við telj-
um að það sé vetni.“ Hann segir
að fundurinn í Reykjavík eigi eft-
ir að verða til margra hluta nyt-
samur. „Þjóðirnar íhuga til dæmis
að taka sig saman um fjárfestingu
í stórum vetnisbílaflota. Það
myndi hraða þróun vetnisbílsins.“
Vetni hefur verið gagnrýnt af
ýmsum umhverf-
isverndarsinnum
sem benda á að
það sé oftast búið
til úr óhreinum
orkugjöfum. Þor-
steinn segir að Ís-
lendingar njóti
sérstöðu með því
að geta búið til
vetni úr endur-
nýjanlegri orku.
Hins vegar standi
Ástralir, til að
mynda, frammi
fyrir allt annarri
stöðu sem fram
kom á fundinum.
„Þeir búa á kola-
fjalli sem getur
nýst þeim í hundrað ár. Fram-
leiðslan er því ekki umhverfis-
væn, en hins vegar er afurðin það.
Það er stóra breytingin. Kíló af
vetni ber með sér þrisvar sinnum
meiri orku en kíló af bensíni og
það myndast engin mengun við
notkun þess, einungis gufa.“ Þor-
steinn segist búast við að margar
þjóðir auki kjarnorkuframleiðslu
sína til að framleiða vetni sem
yrði síðan flutt á sölustaði með
tankbílum eða pípum.
Aðspurður um möguleika á út-
flutningi á vetni héðan segir Þor-
steinn að ef við nýttum allar orku-
lindir okkar til að framleiða vetni
dygði það til að sjá landi eins og
Danmörku fyrir orku. Hann seg-
ist ekki hafa mikla trú á að úr því
verði, en hann hefur heyrt rætt
um það að Grænlendingar virki
fallvötn landsins og flytji vetni til
Danmerkur á tankskipum.
Þorsteinn segir að hann og
Bragi Árnason við Háskóla Ís-
lands hafi um aldamótin gert sér í
hugarlund að það tæki fimmtíu ár
að vetnisvæða Ísland. ,,Það hefur
ekkert breyst í þeim efnum.
Mörgum þótti við vera svartsýnir
en það hefur sýnt sig að það tekur
mannkynið tvær kynslóðir að
skipta um orkukerfi.“
Hann segist ekki sjá ástæðu til
að nota vetni hér á landi nema til
samgangna. ,,Það eru bílarnir sem
blása um þriðjungi af gróðurhúsa-
lofttegundunum út í andrúmsloft-
ið og skipin öðrum þriðjungi. Ef
við vetnisvæðum þetta verða níu-
tíu prósent af orkunotkun Íslend-
inga endurnýjanleg. Það yrði ein-
stakt.“
ghg@frettabladid.is
,,Þjóðirnar
íhuga til
dæmis að
taka sig
saman um
fjárfestingu
í stórum
vetnisbíla-
flota. Það
myndi
hraða þró-
un vetnis-
bílsins.
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir formaður launanefndarsveitarfélaga?
2Hversu margir Íslendingar hafa veriðhandteknir í einu umfangsmesta fíkni-
efnamáli síðari ára?
3Hvað heita þjálfarar Vals og KR í fót-bolta sem hafa verið reknir?
Svörin eru á bls. 42
Sláturtíð:
Sátt um verð fyrir
lambakjötið
LAMBFÉ
Undanfarna tólf mánuði hefur verð á lambakjöti hækkað um rúm þrettán prósent. Bænd-
ur hafa náð fram hækkun á verði til sláturhúsa.
Umhverfisnefnd Alþingis:
Guðlaugur
Þór nýr
formaður
STJÓRNMÁL Guðlaugur Þór Þórðar-
son alþingismaður verður næsti
formaður umhverfisnefndar og
leysir nýskipaðan umhverfisráð-
herra, Sigríði Önnu Þórðardóttur,
af hólmi. Þá valdi þingflokkur
sjálfstæðismanna arftaka Sigríð-
ar Önnu í varaformennsku þing-
flokksins og varð Arnbjörg
Sveinsdóttir fyrir valinu.
Drífa Hjartardóttir var kosin í
utanríkismálanefnd í stað Árna
Ragnars heitins Árnasonar og hún
verður jafnframt fulltrúi þing-
flokksins í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins. ■
Á TRÖPPUM BESSASTAÐA
Tarja Halonen, forseti Finnlands, og Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands á tröpp-
um Bessastaða í gær.
Forseti Finnlands:
Heimsótti
Bessastaði
FORSETAHEIMSÓKN Herra Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
tók á móti Tarja Halonen, forseta
Finnlands, á Bessastöðum í gær
en Halonen er hingað komin til að
taka þátt í málþingi sem haldið er
vegna 30 ára afmælis norræns
samstarfs um jafnréttismál.
Málþingið ber yfirskriftina
„Hver erum við – hvert stefnum
við“ og ásamt Halonen munu þar
flytja erindi frú Vigdís Finnboga-
dóttir og Marko Pomerants,
félagsmálaráðherra Eistlands. ■
ÞORSTEINN INGI SIGFÚSSON
Formaður alþjóðlegrar nefndar um vetnis-
verkefni.
VETNISBÍLL VIÐ VETNISSTÖÐINA Í REYKJAVÍK
Vetnisstöðvum fer fjölgandi víðs vegar um heim og eru nú um 87 talsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Kann að flýta
þróun vetnisbílsins
Alþjóðleg ráðstefna í Reykjavík um vetnisorku. Olía á þrotum og vetni tekur við. Kjarnorku-
framleiðsla mun aukast vegna þess. Grænlendingar gætu flutt út vetni í tankskipum.